Rosalegur leikur hjá Þóri og stelpunum í kvöld | Myndbönd Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. desember 2014 16:45 Norsku landsliðskonurnar Ida Alstad og Heidi Löke. Vísir/AP
Noregur og Danmörk mætast í kvöld í lokaleik B-riðils á Evrópumóti kvenna í handbolta en mótið fer fram í Króatíu og Ungverjalandi þessa dagana. Þetta er mjög mikilvægur leikur fyrir Þóri Hergeirsson og stelpurnar hans í norska landsliðinu. Leikurinn í kvöld er eins stór og þeir gerast í riðlakeppni á stórmóti en þarna mætast tvö sigursælustu liðin í sögu keppninnar í úrslitaleik um sigurinn í riðlinum og mikilvæg stig inn í milliriðil. Norska liðið er með fullt hús eftir tvo örugga sigra í fyrstu tveimur leikjum sínum og er komið áfram í milliriðil alveg eins og dönsku stelpurnar. Það þýðir að leikur liðanna í kvöld er í raun fyrsti leikur í milliriðlinum því liðin munu taka með sér stigin sem þau fá í þessum leik. Dönsku stelpurnar unnu brons á síðasta stórmóti, HM í Serbíu í fyrra, en þar urðu Norðmenn í fimmta sæti. Danska liðið gerði óvænt jafntefli á móti Rúmeníu í síðasta leik og fer því bara með eitt stig inn í milliriðilinn takist liðinu ekki að vinna Noreg í kvöld. Þjálfarar liðanna, Þórir Hergeirsson hjá Noregi og Jan Pytlick hafa báðir verið lengi með liðin og þekkjast orðið mjög vel. Þórir var að stríða Pytlick í aðdraganda leiksins með því að tala alltaf um hversu sigurstranglegt danska liðið er á EM en Pytlick hefur verið duglegur í gegnum tíðina að setja pressuna á Þóri og stelpurnar hans. Leikur Noregs og Danmerkur í Fönix-höllinni í Debrecen hefst klukkan 19.30 í kvöld. Það er hægt að horfa á hann á sjónvarpsstöð evrópska handboltasambandsins. Hér fyrir neðan má sjá nokkur myndbönd frá Youtube-síðu Evrópumótsins.
Handbolti Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport „Gangandi martröð“ Enski boltinn Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu Enski boltinn Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli Handbolti Laus úr banni aðeins mánuði eftir að hafa tekið kókaín Sport Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Enski boltinn Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Enski boltinn „Var ekki langt frá því að tárast“ Handbolti Nýi Japaninn aðstoðaði Hákon við rán Fótbolti Dagskráin í dag: Liverpool ætlar að landa fyrsta sigrinum Sport Fleiri fréttir Sjáðu rauða spjaldið sem Gísli fiskaði og fékk svo sjálfur „Var ekki langt frá því að tárast“ Sá besti í ham en meistarar Vals þurftu að hafa fyrir sigrinum Fullkomin byrjun eftir heimkomu Dags Árna Fólskubrot á Gísla sem var sjálfur rekinn af velli „Leikmenn í hópnum sem þurfa að taka við keflinu“ Lærisveinar Guðjóns Vals ekki lengi að jafna sig á tapi í fyrsta leik Sauð upp úr og Bjarka fleygt í jörðina Haukur var markahæsti leikmaður síns liðs í naumu tapi Magdeburg hafði betur í jöfnum Íslendingaslag Titilvörnin byrjar vel hjá Díönu og Elínu Stórleikur Donna dugði skammt Valsmenn slógu í klárinn undir lokin Arnar Freyr fagnaði sigri í frumrauninni með Flensburg en naumt tap hjá Arnóri Jóhanna Margrét skoraði fimmtán þegar Haukar unnu Meistarakeppnina Eyjakonur og Haukar meistarar samkvæmt spánni Gísli tekur við og stýrir Víkingi í næstefstu deild Reynir Þór með fína frammistöðu í tapi Víkingar gefa frá sér sætið í Olís-deildinni Sá rautt eftir nokkrar sekúndur: „Maður lætur muna eftir sér“ Óvænt hætt sem þjálfari af persónulegum ástæðum Ólafur fékk rautt spjald eftir sjö sekúndur í endurkomunni Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Einn af strákunum okkar biðlar til Trump um samning Áfall í undirbúningi Íslands fyrir HM Gísli Þorgeir með níu mörk í níu skotum þegar Magdeburg vann Ofurbikarinn Díana varð meistari meistaranna eftir vítakeppni Fjórtán ára undrabarn spilar með Þorsteini Leó Sjá meira