Trúðatækni eins og að spila djass Ugla Egilsdóttir skrifar 10. febrúar 2014 11:00 London kallar Sólveig kynntist trúðatækninni í London. Fréttablaðið/Vilhelm „
Ég er búin að vera viðloðandi trúðabransann í að verða sautján ár,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir leikkona sem verður með námskeið í trúðatækni í Tjarnarbíói í febrúar. Kenndar verða grunntækniæfingar í þrjú kvöld. „Við finnum trúðinn hjá hverjum og einum og þróum hann,“ segir Sólveig. Námskeiðið er öllum opið, en takmarkaður fjöldi sem kemst að. „Það eru enn nokkur pláss laus,“ segir Sólveig. Leikarar nýta gjarnan trúðatækni. „En þetta er ekki bara fyrir leikara, þetta nýtist í leik og starfi fyrir svo marga,“ segir Sólveig. „Ég hef kennt kennurum. Tónlistarfólk hefur líka lært til trúðs. Kristjana Stefánsdóttir djasssöngkona er til að mynda stórkostlegur trúður. Spuninn og samvinnan í trúðatækninni er svolítið eins og að spila djass. Stjórnendur fyrirtækja í útlöndum eru byrjaðir að nýta sér þessa tækni í auknum mæli. Þetta er auðvitað frábrugðið hefðbundnum framkomunámskeiðum. Tinna Lind Gunnarsdóttir vinkona mín skrifaði meistararitgerð í verkefnastjórnun um trúðatækni í stjórnum fyrirtækja,“ segir Sólveig. „Þetta er góð æfing í að vera í núinu og að hlusta,“ bætir Sólveig við. „Þú lærir að bregðast við því sem er að gerast í salnum, hvort sem þú ert að flytja fyrirlestur eða leika, eða eitthvað annað. Margt sprettur skemmtilegt upp af mistökum í spunavinnu. Þá er mikilvægt að hlusta vel.“Námskeiðið verður 17., 18., og 19. febrúar klukkan 18.00 til 21.00. Tekið er við skráningum á námskeiðið á netfanginu sgudmundsdottir@hotmail.com.
Mest lesið Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Lífið Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Lífið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Lífið Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Prótein á að vera í forgangi Lífið samstarf Af hverju haldast ekki liðir & krullur í hárinu? Lífið samstarf Fleiri fréttir Þurfti að vara syni sína við eftir umfjöllun um meintan eltihrelli Fór á skeljarnar á toppi hæsta tinds Fréttatía vikunnar: MS, þungunarpróf og glaumgosi Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Sjá meira