GoPro-æðið mikla á Íslandi 4. apríl 2014 13:30 Skíðakappar nota GoPro vélar mikið þegar fanga á fönguleg augnablik „
Þetta kom hingað til Íslands fyrir svona þremur til fjórum árum og varð strax mjög vinsælt,“ segir Hjörvar Freyr Hjörvarsson, vörustjóri tæknideildar Elko, en á Íslandi og um heim allan er mikið GoPro-myndavélaæði og ekki að ástæðulausu. GoPro-myndavélar eru vatnsheldar, höggvarðar og einfaldar í notkun. „Þetta er lítil og meðfærileg tökuvél sem þolir ýmislegt. Hún þolir að fara á fjörutíu metra dýpi, er höggvarin og með góða linsu,“ segir Hjörvar Freyr um nytsemi vélarinnar. Vélin, sem kom hingað til lands fyrir um fjórum árum, er hönnuð af manni að nafni Nick Woodman. Árið 2002 vildi hann taka upp myndband af sér á brimbretti við strendur Ástralíu en þá var erfitt að finna vél sem þoldi það að fara ofan í vatn og þess háttar.Hér er fjallgöngukappi að mynda ferð sína.Hægt er að festa GoPro-myndavélina á nánast allt, til dæmis hjálminn á meðan þú skíðar niður brekku eða hjólar í fjöllunum, á gæludýrið, á bílinn eða framan á kajakinn. „Þú getur notað þetta í nánast hvað sem er. Stórfyrirtæki eins og BBC eru farin að nota svona vélar. Þetta er líka mjög sniðugt fyrir þá sem eru ekkert of tæknivæddir því þetta er svo einfalt í notkun,“ bætir Hjörvar Freyr við. GoPro Hero 3+ er nýjasta útgáfan, sem er í raun fjórða útgáfa vélarinnar. „Það eru svo til mismunandi útgáfur. Þetta kostar frá 40.000 krónum upp í 80.000 krónur. Við hjá Elko seljum mikið af þessu,“ segir Hjörvar Freyr. Allar GoPro-vélarnar taka upp í HD gæðum en dýrari vélarnar taka upp í 4K-upptöku. 4K-upptakan er með um það bil fjórum sinnum meiri upplausn en Full HD.GoPro-myndavélin þolir ýmislegt og virkar því vel þegar fanga á mikilfengleg augnablik í lífi okkar.Vinsælir aukahlutir við GoPro-vélina eru til dæmis sogskálafestingar sem hægt er að nota við ýmis tilefni, höfuðólar sem eru hentugar fyrir þá sem eru í miklum hamagangi. Þá er einnig hægt að fá festingar fyrir hjálma, festingar fyrir bringu og handlegg. Í raun eru möguleikarnir rosa miklir með GoPro-myndavélum. Þetta er tilvalin leið fyrir þá sem vilja fanga góð augnablik og leyfa öðrum að upplifa upplifun sína, til dæmis með því að festa vélina á höfuðið og skíða niður brattar brekkur og deila þar með upplifun sinni og reynslu í gegnum GoPro-vélina.
Mest lesið „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Lífið Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Lífið Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Lífið Tólf barna móðir selur sveitadraum Lífið Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Lífið Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Lífið Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Gagnrýni Góðgerðartreyja til styrktar Ingvari hönnuð af 66° Norður Tíska og hönnun Ölvuðu Íslendingarnir í Kristjaníu stóðu upp úr Tónlist Eignaðist barn, missti ömmu sína og erfði púðlusafnið Menning Fleiri fréttir „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn Sjá meira