„Verð hissa ef ég sé meira en hundrað þúsund kall“ Lillý Valgerður Pétursdóttir skrifar 9. nóvember 2014 20:49
Hátt í sjötíu þúsund umsóknum um niðurfærslu á höfuðstól verðtryggðra húsnæðislána verður svarað eftir helgina en ríkisstjórnin kynnir niðurstöðuna á morgun. Þegar að lokað var fyrir umsóknir í byrjun september höfðu 69 þúsund umsóknir borist frá 105 þúsund einstaklingum. Ríkisstjórn ákvað að settir yrðu áttatíu milljarðar í niðurfærsluna en hver og einn einstaklingur fær þó aldrei meira en fjórar milljónir. Ásmundur Einar Daðason þingmaður Framsóknarflokksins og aðstoðarmaður Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar forsætisráðherra sagði í þættinum Sprengisandi á Bylgjunni í dag að meðalleiðréttingin verði á bilinu ein til tvær milljónir. Gert er ráð fyrir að skuldaniðurfærslan komi öll til framkvæmdar í einu. Til að sjá hver áhrifin verða er hægt að skoða eins og hálfs milljón króna lækkun á láni sem ber 3,7% vexti. Ef það lækkar úr fimmtán milljónum í þrettán og hálfa fara mánaðarlegar afborganir 60.041 kr. í 54.049 kr. og lækka þá um 5.992 krónur á mánuði. Það þýðir um sjötíu þúsund krónum lægri afborganir á ári. Fréttastofa tók vegfarendur tali í dag til að forvitnast um væntingar þeirra til niðurfærslunnar og virtust þær hóflega hjá flestum. Þannig sagði Óskar Guðnason, einn viðmælendanna, að hann yrði hissa ef hann sæi meira en hundrað þúsund krónur.
Mest lesið Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Innlent Ítreka yfirráð yfir Falklandseyjum eftir hótun Bandaríkjamanna Erlent Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit Innlent Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Innlent Netanjahú greindist með krabbamein Erlent Hlýtt í dag en kuldi í kortunum Veður Segja engan fund á dagskrá Erlent Bilið á milli turnanna breikkar Innlent Vesturlönd tali opinskátt um fyrirætlað stríð við Rússland Erlent „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Innlent Fleiri fréttir Kosningaspá Vísis: Líkur Alberts aukast en Bjarnveigar dvína Handtekinn eftir að hafa valdið umferðarslysi Fjölgar í hópi sakborninga og ráðist í húsleit „Viðreisn er í algjörri lykilstöðu“ Bilið á milli turnanna breikkar Vendingar í borginni og tónleikar í heimahúsum Fimm bíla árekstur á Reykjanesbraut Listaverkið muni auka öryggi og vernda náttúruna á svæðinu Sinueldur kviknaði við bensínstöð Safna gögnum um ferðamanninn og meta stöðuna daglega Bein útsending: Þorgerður situr fyrir svörum um þjóðaratkvæðagreiðsluna Fékk í skrúfuna skammt frá landi Hvarf Hákonar á borði ríkislögreglustjóra Raforkureikningur í dreifbýli gæti lækkað strax í júlí Leita íslensks manns í Búdapest og ráðherra boðar jöfnun á raforkukostnaði Réðu aftur starfsmann sem var rekinn í siðanefndarfári Engin ákvörðun tekin eftir uppsögn dagdvalarsamnings Alvarlegt slys þegar ekið var á aldraða konu Starfsfólki MAST ógnað: „Ég veit hvar þú átt heima“ Fullyrðingar um ETS-kerfi og strandsiglingar standast ekki Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Sjá meira