Djamm er snilld í Perlunni Baldvin Þormóðsson skrifar 25. mars 2014 10:00 Leiksýningin er sett upp í einum af gömlu vatnstönkum Perlunnar. vísir/daníel „
Við mættum bara fyrst í gær að skoða tankinn og taka til,“ segir Vilhelm Þór Neto, meðlimur Stúdentaleikhússins, en leikhópurinn er að undirbúa nýtt verk sem nefnist einfaldlega Djammið er snilld. Það var leikstjórinn Tryggvi Gunnarsson sem skrifaði verkið í samstarfi við leikhópinn. „Sagan er unnin úr ýktum sögum af djamminu og reynslu okkar allra af íslensku djammi,“ segir Vilhelm og bætir því við að samskipti kynjanna séu einnig viðfangsefni sem þreifað verður á í leikritinu. „Verkið er tilbúið, við eigum bara eftir að renna í gegnum það í þessum nýju aðstæðum,“ segir Vilhelm en sýningin verður sett upp í einum af gömlu vatnstönkum Perlunnar. „Síðan á brunavarnaeftirlitið eftir að koma og sjá hvort allt gangi ekki upp,“ segir Vilhelm en hópurinn er mjög spenntur að fá að njóta sín á svona óvenjulegu sviði. „Tanknum verður líklegast skipt í tvennt, áhorfendur öðrum megin og leikhópurinn hinum megin,“ segir Vilhelm en leikhópurinn ætlar að reyna að skapa ákveðna stemningu á vettvangnum. „Við viljum hafa svona fyrirpartístemningu þarna, verkið fjallar um djammið og við viljum að áhorfendum líði eins og þeir séu hluti af partíinu,“ segir Vilhelm. „Eitt af vandamálum okkar núna er hversu mikið það ómar í tanknum,“ segir Vilhelm en Stúdentaleikhúsið leitar til fólks til þess að fá afnot af einhvers konar tjöldum sem hægt er að nota til þess að dempa hljóðið. Stúdentaleikhúsið stefnir að frumsýningu 4. apríl og segir Vilhelm undirbúning ganga vel. „Við hvetjum alla áhugamenn um íslenskt djamm til þess að sækja sýninguna,“ segir Vilhelm.Leikhópur Stúdentaleikhússins.vísir/daníel
Mest lesið Dorrit missti aðgang á forrit Lífið Komin á eftirlaun og með skotheldar leiðir til að ferðast ódýrt um Ítalíu Ferðalög Stjörnufans á frumsýningu Um tímann og vatnið Bíó og sjónvarp Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Lífið Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Lífið Hvað kýs fræga fólkið? Lífið Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Lífið Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Lífið Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Lífið Hvað veistu um… Dolly Parton? Lífið Fleiri fréttir Dorrit missti aðgang á forrit Dolly skildi eftir sig lag fyrir hundrað ára afmælið Fréttatía vikunnar: Dolly, ESB og malaría Nadía Atla og Arnar Freyr hætt saman Þau sjá um Áramótaskaupið í ár Stórglæsilegt einbýlishús á Arnarnesi til sölu Afmælispartý Bylgjunnar í beinni Hvað kýs fræga fólkið? Bylgjan heiðraði goðsögnina Þorgeir Hvað veistu um… Dolly Parton? Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Birta Líf og Gunnar Patrik hætt saman Doppudrottningin Yayoi Kusama er látin Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát Sjá meira