Rannsóknarnefndir þurfa tvo og fjóra mánuði í viðbót Stígur Helgason skrifar 28. febrúar 2013 07:30 Nefndirnar tvær voru kynntar á blaðamannafundi í september 2011. Síðan eru liðnir átján mánuðir.
Forseti Alþingis segir að breyta þurfi lögum um rannsóknarnefndir í ljósi þess hversu lengi nefndirnar um Íbúðalánasjóð og fall sparisjóðanna hafa starfað. Kostnaðurinn við þær nemur þegar hálfum milljarði. Rannsóknarnefnd Alþingis um fall sparisjóðanna þarf minnst fjóra mánuði til viðbótar til að ljúka vinnu sinni. Þetta kom fram á fundi nefndarmanna með forsætisnefnd Alþingis í síðustu viku, að sögn Ástu Ragnheiðar Jóhannesdóttur þingforseta. Forsætisnefnd fundaði einnig með rannsóknarnefndinni um Íbúðalánasjóð, og þar kom fram að nefndin stefndi að því að ljúka vinnu sinni eftir um tvo mánuði, eða í apríllok. Báðar nefndirnar áttu samkvæmt því sem sagði í þingsályktunum að skila skýrslum sínum í fyrrasumar, en skilin hafa frestast ítrekað. „Það er auðvitað áhyggjuefni, bæði mitt og fleiri, hvað þetta tekur langan tíma og hvað þetta er dýrt," segir Ásta Ragnheiður. Heildarkostnaðurinn við nefndirnar tvær hafi numið 506 milljónum til dagsins í dag, sem sé 25 milljónum fram úr fjárheimildum. Hún segir þetta kalla á endurskoðun laganna um rannsóknarnefndir, sem Alþingi setti árið 2011. „Þetta er í fyrsta skipti sem við erum með svona löggjöf og látum vinna svona fyrir okkur. Við þurfum án efa að endurskoða lögin og meta ýmsa þætti í ljósi reynslunnar." Rannsóknarnefndin um fall sparisjóðanna var skipuð í lok ágúst 2011 og átti upphaflega að skila skýrslu sinni 1. júní í fyrra. Hrannar Már S. Hafberg, formaður nefndarinnar, segist telja að nefndinni hafi verið skammtaður of naumur tími til vinnunnar. „Ég veit bara ekki hvort menn hafi áttað sig á umfangi verkefnisins. Þingsályktunin er ansi víðtæk og þetta er fjöldi fjármálafyrirtækja sem nefndinni er gert að rannsaka mjög ítarlega, og bera auk þess saman lagaumhverfi sparisjóðanna á Íslandi og í nágrannalöndunum." Í raun gæti rannsókn af þessu tagi hæglega tekið fjöldamörg ár, að hans sögn. Þá hafi það óneitanlega haft einhver áhrif þegar fyrrverandi formaður, Sigríður Ingvarsdóttir héraðsdómari, sagði sig frá verkefninu í haust. Hrannar segir skýrsluskrifin komin vel á veg, en vill ekki tjá sig um hversu viðamikil skýrslan verði. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins er þó líklegt að hún verði, þegar allt er talið, á stærð við skýrslu Rannsóknarnefndar Alþingis sem kynnt var 2010. Nefndin um Íbúðalánasjóð var skipuð í byrjun september 2010 og veittur enn skemmri tími til vinnunnar; átti að skila af sér í byrjun mars í fyrra. „Ég fullyrði að matið í okkar tilviki var óraunhæft – mjög, mjög, mjög óraunhæft," segir Sigurður Hallur Stefánsson, formaður nefndarinnar. „Í öðru lagi þá hefur þetta verkefni undið upp á sig, sem erfitt er að skýra fyrr en skýrslan kemur út og sést við lestur hennar."
Mest lesið Óveður gengur yfir landið Innlent Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Innlent Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Innlent Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Innlent Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Innlent Fylgstu með lægðinni í beinni Veður Fleiri fréttir Hreyfingin stærri en einstakar persónur Aftakaveður gengur yfir landið og búist við vegalokunum vegna ófærðar Setja á ráðningarbann og lækka greiðslur til bæjarfulltrúa Deilur við Höllu eigi sér langa sögu Inga vill áfram banna atvinnumannahnefaleika Vatnið finni sér leið í gegnum sprungur Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings „Útlit fyrir að þetta sé allt að ganga eftir“ Undirbúa Litla spítalann við Háaleitisbraut Tilkynnt um líkamsárás í miðbænum Óveður gengur yfir landið Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Bein útsending: Stormur við setningu ASÍ-þings Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Sjá meira