Nýr gervigrasvöllur algjör bylting Stefán Árni Pálsson skrifar 19. júní 2013 06:30 Sævar Pétursson á nýjum gervigrasvelli KA á Akureyri. fréttablaðið/pjetur
Knattspyrnufélagið KA á Akureyri tekur í notkun glænýjan gervigrasvöll á næstu dögum en völlurinn mun gjörbreyta æfingaaðstöðu félagsins allt árið. „Síðustu tvö sumur höfum við getað æft á okkar svæði í átta vikur á ári og því er þetta mikil búbót fyrir okkur KA-menn,“ segir Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA. „Það verður rosalegur munur fyrir okkur að vera með völl í fullri stærð sem er nothæfur allt árið.“ Æfingasvæði KA-manna hefur komið verulega illa undan vetri síðastliðin ár og í raun alveg ónothæft stóran hluta sumarsins. „Við erum svona að gera okkur vonir um að geta hleypt okkar iðkendum inn á grasið í næstu viku. Þetta hefur verið skelfilegur vetur og mikill klaki undir öllu svæðinu. Á síðasta ári var ekki hægt að hleypa inn á svæðið fyrir en um miðjan júlí.“ Knattspyrnuhöllin Boginn var byggð árið 2003 en KA og Þór deila höllinni fyrir sitt íþróttafólk. „KA hefur aðgang að Boganum þrjá daga í viku og það er alls ekki nægilega mikill tími fyrir okkar iðkendur. Allir flokkar fá aðeins hálfan völlinn út af fyrir sig en 2. flokkur karla, sem eru yfir fjörutíu strákar, eru til að mynda aðeins með tíma í Boganum í eina klukkustund á viku. Við verðum samt sem áður enn þá með einhvern tíma í Boganum út af veðrum og vindum. Þórsarar eiga líklega einnig eftir að nýta sér okkar gervigrasvöll í vetur.“ Gervigrasið sem lagt var á KA-svæðinu er sams konar og á Stjörnuvelli í Garðabæ. „Þetta er völlur sem er í fullri stærð með frábært gras. Allir flokkar félagsins geta núna farið að spila einhverja æfingaleiki á vellinum allt árið um kring. Ég er viss um að félögin nálægt Akureyri eins og Magni á Dalvík og fleiri eiga eftir að koma og nýta sér þessa aðstöðu.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Sænskur varnarjaxl ólétt og segir að ferlinum sé lokið Fótbolti Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Íslenski boltinn Bandaríkin byrja sterkt á heimavelli Fótbolti Braut nálgunarbann með því að heimsækja kærustu sína Sport Segir að það sé bara einn heimsklassaleikmaður í enska landsliðinu Fótbolti Ung frjálsíþróttakona lést í fríi með fjölskyldunni Sport Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Íslenski boltinn Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Íslenski boltinn Brasilísk fótboltagoðsögn lést rétt fyrir HM Fótbolti Lærisveinar Heimis missa heimaleik á hlutlausan völl Fótbolti Fleiri fréttir Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka „Það vill enginn í hópnum sjá hann fara“ Tekur meira á fjölskylduna en hann sjálfan Ögmundur laus allra mála hjá Val Fór á sjó til að núllstilla sig: „Þetta sleppur hjá mér“ „Allar spár kolrangar og vitlausar“ Sjá meira