Staðfest að ungviði makríls elst upp við strendur Íslands Svavar Hávarðsson skrifar 31. desember 2013 07:00 Áhöfninn á Huginn VE 55 er hér að ganga frá síðustu makríltonnunum á síðustu vertíð. mynd/Óskar
Hafrannsóknastofnun hefur nú fyrstu vísbendingar um að ungviði makríls hafi klakist út við Ísland og alist nú hér upp. Þetta staðfestir það sem menn hafa talið um árabil, en ársgamall makríll fannst víða við Suðurland í vorralli stofnunarinnar í mars 2011 sem benti til vetursetu makrílseiða hér við land. Þessar nýju niðurstöður byggja á aldursgreiningum á makrílungviði frá 2010 sem benda til þess að seiðin hafi klakist út á sama tíma og hrygning makríls átti sér stað innan íslensku lögsögunnar sama ár. Aðrar niðurstöður rannsókna benda einnig til þess að uppruni ungviðisins megi rekja til þessarar hrygningar. Sveinn Sveinbjörnsson, fiskifræðingur hjá Hafrannsóknastofnun, segir að niðurstöðurnar, sem kynntar voru í gær, séu mjög áhugaverðar í ljósi þeirra breytinga sem eru að verða í lífríki sjávar með hlýnandi veðurfari. Hins vegar segir hann of snemmt að tala um að staðbundinn íslenskur makrílstofn sé að vaxa hér upp. „Það er ekki hægt að tala um slíkt, enda er þetta ekki í slíku magni ennþá,“ segir Sveinn. Flökkustofn makríls sem gengur nú inn í lögsöguna ár hvert er yngstur tveggja ára gamall makríll. Megnið af göngunni er eldri fiskur. „En þessi ungfiskur sem við erum að sjá hann verður rúmlega 20 sentímetra eftir vetursetuna, enda vex hann mjög hratt,“ segir Sveinn. Spurður hvaða þýðingu niðurstöðurnar hafi til framtíðar litið segir Sveinn það ráðast af því hvort umhverfisaðstæður verða áfram hagstæðar tegundinni. Sveinn dregur ekki úr því að hrygning makrílsins hafi komið mönnum nokkuð á óvart, en á sama tíma séu breytingarnar svo miklar að búast hefði mátt við þessari þróun, sem erfitt sé að sjá fyrir endann á. Þegar megi sjá miklar breytingar á útbreiðslu staðbundinna stofna við landið; ýsa og skötuselur haldi sig nú sífellt meira fyrir norðan land sem sé mikil breyting frá því sem áður var.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Erlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Sjá meira