Segist ekki hafa tekið stöðu gegn krónunni 24. október 2013 15:06 Hannes Frímann Hrólfsson mynd/stefán
Hannes Frímann Hrólfsson, fyrrverandi aðstoðarframkvæmdastjóri markaðsviðskipta hjá Kaupþingi, segist ekki hafa tekið stöðu gegn krónunni, eins og kom fram í veftímaritinu Kjarnanum í morgun. Hannes segir í yfirlýsingu að framsetningin sé röng og villandi, enda komi síðar fram í umfjölluninni að samningarnir hafi verið gerðir til að verja erlend lán sem voru til staðar. Kjarninn vitnaði í skýrslu sem endurskoðunarfyrirtækið PwC gerði fyrir slitastjórn Kaupþings. Þar kom fram að fjórir fyrrverandi starfsmenn Kaupþings hafi tekið stöðu gegn krónunni fyrir hrun. „Í fyrsta lagi skal tekið fram að farið var að öllu með réttum hætti og ekki um neinskonar frávik frá lögum og reglum að ræða. Í öðru lagi var til staðar kaupréttarkerfi í Kaupþingi þar sem lykilstarfsmenn keyptu hlutabréf í bankanum gegn láni, eins og alþekkt er af umfjöllun. Í mínu tilfelli var um að ræða erlend lán til kaupa á hlutabréfum í krónum. Þeir gjaldeyrissamningar sem nú eru til umfjöllunar er hin hliðin á því máli. Þannig myndaðist tap af lánasamningunum vegna veikingar krónunnar en hagnaður á móti af gjaldmiðlasamningunum. Því er það rangt sem haldið er fram að um stöðutöku gegn krónunni hafi verið að ræða. Í þriðja lagi hefur átt sér stað fullnaðaruppgjör við slitastjórn Kaupþings vegna þessara mála í heild. Mikil óvissa var um stöðu svokallaðra Kaupþingslána eftir að persónuleg ábyrgð á þeim var felld niður. Í fyrra féll hins vegar dómur í mínu máli í Héraðsdómi Reykjavíkur í tengslum við Kaupþingslánin. Ég tapaði því máli. Í framhaldinu gekk ég frá uppgjöri við slitastjórn Kaupþings þar sem m.a. var tekið fullt tillit til framangreindra þátta," segir í yfirlýsingu Hannesar Frímans.
Tengdar fréttir Starfsmenn Kaupþings tóku stöðu gegn krónunni Nokkrir háttsettir menn hjá Kaupþingi fyrir hrun tóku stöðu gegn krónunni áður en hún féll í mars árið 2008. Veftímaritið Kjarninn birti í dag skýrslu sem endurskoðunarfyrirtækið PwC vann fyrir slitastjórn Kaupþings. 24. október 2013 10:11 Mest lesið Ríflega þrjátíu þúsund einstaklingar kaupa hlut ríkisins Viðskipti innlent Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Viðskipti innlent Að nýta kvíðann sem styrkleika og okkur til framdráttar Atvinnulíf Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Viðskipti innlent Greiðsluáskorun Samstarf Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent Sjóvá tapar hálfum milljarði Viðskipti innlent Fyrsta íslenska grænkera ostagerðin í hættu Viðskipti innlent Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Viðskipti innlent Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Viðskipti innlent Fleiri fréttir Heinemann svarar Sameyki: „Þetta er rangt“ Gömlu höfuðstöðvar Icelandair verða hjúkrunarheimili Ríflega þrjátíu þúsund einstaklingar kaupa hlut ríkisins „Þetta er framar okkar björtustu vonum“ Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Líklega stærsta eignasala ríkissjóðs frá upphafi Selja allan eignarhlut ríkisins í Íslandsbanka Sjóvá tapar hálfum milljarði Málaferli vegna innkaupa ÁTVR halda enn áfram Jón Ólafur nýr formaður SA Hefja flug til Edinborgar og Malaga Árni hættir sem forstjóri Húsasmiðjunnar Landsbankinn við Austurstræti falur Spá sömuleiðis óbreyttum stýrivöxtum Margföld umframáskrift en útboðið ekki stækkað í bili Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Bein útsending: Lokadagur Nýsköpunarviku Bjarni nýr framkvæmdastjóri RVK Bruggfélags Borgunarmálinu lokið og bankinn fær ekki krónu Bein útsending: Kynningarfundur um hlutafjárútboð í Íslandsbanka Skor aftur synjað um lengri opnunartíma vegna hávaða Segja Heinemann brjóta gegn stjórnarskrárvörðum rétti Íslendinga Spá óbreyttum stýrivöxtum Útboðið fari vel af stað og allar líkur á að magnið aukist Jákvætt að almenningur njóti forgangs við söluna Áskriftir borist í 20 prósenta hlut í Íslandsbanka Verslun Nettó í Glæsibæ opnar líklega á morgun Dregur úr tapi og notendum fjölgar um 66 prósent Vonar að almenningur nýti forganginn í bankasölunni Ráðinn forstöðumaður Öryggislausna OK Sjá meira
Starfsmenn Kaupþings tóku stöðu gegn krónunni Nokkrir háttsettir menn hjá Kaupþingi fyrir hrun tóku stöðu gegn krónunni áður en hún féll í mars árið 2008. Veftímaritið Kjarninn birti í dag skýrslu sem endurskoðunarfyrirtækið PwC vann fyrir slitastjórn Kaupþings. 24. október 2013 10:11
Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent
Heildarvirði tæpur 91 milljarður og líkur á að nær allir hlutir fari til almennings Viðskipti innlent
Átök auðkýfinganna: „Ekki farið fram hjá neinum að á milli okkar hefur andað köldu“ Viðskipti innlent