Vilja konur út úr kaffihúsum í Kúvæt Þorgils Jónsson skrifar 28. október 2013 11:17 Hér sést kona njóta reykinga úr vatnspípu á shisha-kaffihúsi. Það þykir harðlínumönnum þar í landi ósæmilegt. Mynd/AP
Harðlínumenn í Persaflóaríkinu Kúvæt hafa skorið upp herör gegn því að konur fái að koma inn á svokölluð shisha-kaffihús til að reykja úr vatnspípum. Telja þeir þetta dæmi um innreið frjálslyndrar vestrænnar úrkynjunar. Kúvæt og valdastéttin þar í landi hafa um langa hríð tengst Vesturveldunum sterkum böndum, en undanfarin misseri hafa deilur um siði og samfélagslegar hefðir orðið æ háværari. Nú er barist um hvort konur eigi að fá að fara inn á shisha-kaffihús, hvort sem þær eru einar og þá á sérstökum kvennasvæðum, eða með karlmönnum í för, en kaffihús þessi voru áður aðeins ætluð körlum. Deilumálin eru hins vegar fleiri þar sem meðal annars er tekist á um hvort hleypa eigi samkynhneigðum farandverkamönnum inn í landið og hvort þar eigi að halda alþjóðlegt mót í knattspyrnu kvenna. Þá var í síðustu viku hætt við hrekkjavökuhátíð í félagsmiðstöð fyrir börn eftir mikinn þrýsting þar sem mörgum þótti sem þar væri um guðlast að ræða.
Mest lesið Íslendingar handteknir á Spáni með mikið magn fíkniefna Innlent Lalli Johns er látinn Innlent Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Erlent Hlýnandi veður og gæti farið í tuttugu stig á morgun Veður Láta bandarískan gísl lausan Erlent Sker upp herör gegn kínverskum netrisum Innlent Kölluð út vegna viðskiptavinar með æsing Innlent „Eiga sína síðustu daga í faðmi ástvina undir hamraslætti og múrborum“ Innlent Íslenskur morðingi í Bandaríkjunum: „Gerðu það pabbi, ekki gleyma mér“ Innlent „Þau ákváðu einfaldlega að hann væri minna fatlaður í Garðabæ“ Innlent Fleiri fréttir Leysa upp samtökin og leggja niður vopn Vopnahlé hélt í nótt og viðræðum fram haldið Láta bandarískan gísl lausan Mun bíða Pútíns í Tyrklandi á fimmtudag Vilja leggja réttarríkið til hliðar „Mikilvæg skref“ en allt velti á því hvort Pútín sé í stuði fyrir frið Vopnahléið heldur en vígahugur ríkir enn Hafnar aftur almennu vopnahléi og leggur til viðræður Handtekinn fyrir að vara við gyðingahatri á samfélagsmiðlum Skammvinnu vopnahléi virðist lokið Pirraður yfir því hvað friður er langt utan seilingar Sovéskt geimfar hrapaði til jarðar eftir misheppnað ferðalag til Venus Fundu mögulega eitt af 67 fórnarlömbum hálfri öld síðar Kínverskir verktakar fá ekki að bora skipagöng í Noregi Vopnahlé í höfn milli Indlands og Pakistans Kim lofar hermenn sína sem börðust í Kúrsk sem hetjur Átökin ná nýjum hæðum Borgarstjóri í Bandaríkjunum handtekinn vegna mótmæla Yfirvöld Mexíkó kæra Google Gamlar nektarmyndir felldu glænýjan þjóðaröryggisráðgjafa Svíþjóðar Gerir Pirro að ríkissaksóknara í DC Bein útsending: Fyrsta messa nýs páfa Býst við að bróðir sinn Leó feti í fótspor Frans Stigmögnunin heldur áfram Hvað vitum við um Leó páfa? Norðmenn undirbúi sig undir möguleg stríðsátök „Þvílík spenna og þvílíkur heiður fyrir landið okkar“ Bíða með að stimpla AfD sem öfgasamtök Margrét Þórhildur lögð inn á sjúkrahús Samþykktu Trump-samninginn einróma Sjá meira