Bílstjóri í djúpum skít Jakob Bjarnar skrifar 1. ágúst 2013 09:35 Svissneski rútubílstjórinn var gripinn glóðvolgur við að tæma úr kamri rútu sinnar fyrir þremur dögum.
Bílstjóri svissneskrar rútu sem uppvís varð af því að losa úr skolptanki bifreiðarinnar í vegkanti við Selfoss þann 29. júlí síðastliðinn var yfirheyrður með aðstoð túlks í gær í síma. Lögreglan á Austurlandi þefaði hann uppi þar sem hann var staddur á Egilsstöðum. Í tilkynningu frá lögreglu kemur fram að bílstjórinn hafi viðurkennt brot sitt og var honum boðið að ljúka málinu með því að gangast undir 150 þúsund króna sektargerð vegna brots á 18. gr. reglugerð um lögreglusamþykktir, að sögn lögreglu. Málið komst í hámæli þegar Bylgjan og Vísir greindu frá málinu og liggur þannig fyrir að lögreglan hefur rakið slóð bílstjórans þvert yfir landið. Samkvæmt heimildum Vísis fóru heilbrigðiseftirlit Suðurlands, umhverfisstofnun og lögreglan á Selfossi þá af stað við rannsókn málsins. Bílstjórinn féllst á þessi málalok, það er að greiða sekt sem nemur 150 þúsundum króna og vildi taka sérstaklega fram hversu leitt honum þætti að þetta hafi gerst, um mistök hans hafi verið að ræða. Í Vísisfrétt í gær kom fram að hann hafi borið því við, þegar vegfarandi hlutaðist til um málið, að hann hefði ýtt á vitlausan takka, en viðmælandi Vísis taldi þá skýringu afar langsótta.
Mest lesið Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Fá engar bætur fyrir stolinn bíl Innlent Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Innlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Innlent Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Innlent Lykilvitni gegn Diddy: „Þetta voru hans draumórar“ Erlent Menendez bræður geta nú sótt um reynslulausn Erlent Fleiri fréttir Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Hjörtur Torfason er látinn Fá engar bætur fyrir stolinn bíl „Þetta er mikil áskorun en á sama tíma tek ég henni bara vel“ Syndir 1.600 kílómetra í kringum landið: Borðar tíu þúsund kalóríur á dag fyrir svaðilförina Ekkert fundist af báti sem sagður er hafa hvolft Gjörunnin matvæli tæpur helmingur af orkuinntöku landsmanna Tilkynnti um stolið hjól og réðst svo á þjófinn „Þetta var ekki rétt, alveg klárlega“ Máttu skikka nemanda í tvö sjúkrapróf samdægurs Njósnari sér að sér og synt í kring um Ísland Vill deila þekkingu á jarðvarma með Úkraínu Bað forseta að taka „stjórnarliða á skólabekk og tukta þá til“ Sjö ára fangelsi fyrir tvær tilraunir til manndráps Blindir vilja Hljóðbókasafnið heim Stjórnarandstaða kvartar undan starfi í velferðarnefnd Breyttar forsendur og pólitískar áherslur á bak við ákvörðunina Úlfar hættir sem lögreglustjóri Ráðherra hafnaði loftslagsrannsókn vegna ófullnægjandi lagaramma Hafnar því alfarið að hafa lekið gögnunum Nú má heita Gúníta Ljósynja Dawn Sjá meira