Sláandi stökk milli skólastiga Þorgils Jónsson skrifar 26. september 2013 08:31
Neysla á tóbaki, áfengi og vímuefnum í grunnskólum landsins hefur dregist ört saman síðustu árin og er ástandið hér á landi nú með því allra besta sem gerist í samanburði við önnur lönd. Þetta kemur fram í nýrri könnun sem framkvæmd var af Rannsókn og greiningu (R&G) við Háskólann í Reykjavík í ár og tók til allra nemenda á mið- og eldra stigi grunnskóla landsins og allra framhaldsskólanema, og var kynnt á fjölmennum morgunverðarfundi forvarnahópsins Náum áttum í gær. Þó varpa niðurstöðurnar ljósi á að víða sé pottur brotinn í neyslumynstri íslenskra ungmenna, sérstaklega hvað varðar stökkið milli grunnskóla og framhaldsskóla. Margrét Lilja Guðmundsdóttir, hjá R&G, fjallaði um niðurstöðurnar í erindi sínu og benti meðal annars á að á meðan fimm prósent 10. bekkinga síðasta vor sögðust hafa orðið ölvuð síðustu 30 daga, svöruðu 35 prósent sextán og sautján ára framhaldsskólanema þessari spurningu játandi. Þá höfðu sjö prósent 10. bekkinga prófað að neyta maríjúana samanborið við fimmtán prósent í hópi sextán og sautján ára. Margrét Lilja segir í samtali við Fréttablaðið að sú forvarnarvinna sem unnin sé, skili sér greinilega, en þarna verði greinileg viðhorfsbreyting milli skólastiga, bæði í hópi foreldra og ungmenna, sem vinna þurfi á. „Þegar komið er upp í framhaldsskólana segja krakkarnir að þau verði vör við breytt viðhorf heima fyrir og að foreldrarnir gefi þeim lausari tauminn.“ Margrét segir að þörf sé á því að skýra stefnu varðandi framhaldsskólana og hlutverk þeirra í forvarnarmálum. „En svo snýst þetta auðvitað um okkur foreldrana og að við eigum ekki að sætta okkur við það að börn undir sjálfræðisaldri séu að drekka áfengi.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira