VR menn vilja stöðugleika frekar en launahækkanir Hanna Rún Sverrisdóttir skrifar 26. september 2013 13:44 Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR segir að það ljóst að þessar niðurstöður þessara kannana sýni að það að auka kaupmáttinn skipti félagsmenn höfuðmáli við gerð kjarasamninga. mynd/365
Félagsmenn VR vilja að aðaláherslan í næstu kjarasamningum verði lögð á kaupmátt og stöðugleika. Þetta er niðurstaða tveggja kannana meðal félagsmanna sem gerðar voru á síðustu vikum. Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður VR segir að það ljóst að þessar niðurstöður þessara kannana sýni að það að auka kaupmáttinn skipti félagsmenn höfuðmáli við gerð kjarasamninga. Meirihluti félagsmanna VR eða 63% eru hlynntir því að efnt verði til þjóðarsáttar þar sem áhersla yrði lögð á stöðugleika fremur en launahækkanir. Helstu ástæður fólks fyrir því samkvæmt könnuninni eru að koma í veg fyrir víxlverkun launa og verðlags og til að efla kaupmáttinn. Þeir sem voru andvígir hugmyndinni um þjóðarsátt sögðust hins vegar efins um að staðið yrði við hana, að þjóðarsátt hafi ekki virkað hingað til. „Við hjá VR höfum líka verið að tala fyrir því að leggja áherslu á þjóðarsátt en með því að nálgast það viðfangsefni, tryggjum við betur kaupmáttaraukninguna“, segir Ólafía. Hún segir að það sé ekki nóg að tryggja launahækkun í launaumslagi, sem hverfi svo í einhverjum hækkunum á gjaldskrá viku síðar eða jafnvel samdægurs. „Með því að auka kaupmátt félagsmanna erum við að leggja það til að það verði áhersla á þjóðarsátt þannig að hægt sé að koma í veg fyrir að launahækkanir fari beint upp í verðlagið,“ segir hún. Með þjóðarsátt er átt við að allir aðilar komi að borði, ríkið, Samtök atvinnulífsins, Samtök Verslunar og þjónustu og fólk á vinnumarkaði.
Mest lesið Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Innlent Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík Innlent „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Innlent Gerir hlé á „frelsisaðgerðum“ í Hormússundi Erlent Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Innlent Hantaveiruskipið á leið til Kanarí og kemur ekki til Íslands Erlent Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Innlent Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Innlent Fjórar „brúðir ISIS“ snúa aftur til Ástralíu Erlent Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Innlent Fleiri fréttir Örlítið fleiri fæðingar en frjósemin stendur í stað Ein minniháttar líkamsárás á annars rólegri vakt lögreglu Engin ákvörðun fyrr en eftir kosningar en íbúar uggandi Hættum að vera þjóð ef við höldum ekki upp á íslenskuna Undirstöður Fossvogsbrúar reknar niður í sjávarbotninn Setja skýr skilyrði fyrir meirihlutasamstarfi í Reykjavík „Það yrðu gríðarleg vonbrigði ef svo væri“ Kona á sjötugsaldri lenti á sjúkrahúsi með 125 pakkningar innvortis Vill fjölga börnum sem eru eingöngu á brjósti til sex mánaða Burðardýr í bráðaaðgerð og hindranir í samstarfi Gögnum nemenda mögulega stolið af Canvas Mælti sér mót við barn og réðst á það Talstöðinni í Kópavogi lokað: Enginn talmeinafræðingur tilbúinn til að taka við rekstrinum Ný könnun í Kópavogi: Meirihlutinn heldur en Samfylking á siglingu Sættir sig ekki við niðurstöðu klofins Mannréttindadómstóls Hátt í hundrað heimili hugsanlega yfir tekjumörkum hjá Félagsbústöðum Herjólfur siglir frá Landeyjum og um þrjú prósent hjá Félagsbústöðum með tekjur umfram skilyrði Allt í blússandi botni í Bolungarvík þrátt fyrir lokun Kjörbúðarinnar Á sextugsaldri og sótti um fimmtíu störf en fær ekki vinnu Pallborðið: Kópavogsoddvitar mætast og glæný könnun Vonarneisti eftir erfiðan vetur Erla Björg ráðin menningarritstjóri Rúv Veðsjúkir giska á að Hildur verði næsti borgarstjóri Enn aðeins hægt að sigla til Landeyjahafnar við kjöraðstæður Tímabært að ræða einhverfu kvenna Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Tvær líkamsárásir og nokkrir þjófnaðir á höfuðborgarsvæðinu Lögðu herbergið í rúst og létu sig hverfa Vona að hægt verði að keyra til Eyja eftir tíu ár „Þú hefðir átt að vera með okkur í nótt“ Sjá meira