Valið neytandans þegar upp er staðið Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 12. nóvember 2013 14:03 Steinar segir marga framleiðendur hér á landi alla af vilja gerðir til að bjóða upp á holla matvöru.
Steinar B. Aðalbjörnsson, næringarfræðingur og markaðsstjóri hjá Matís, segist fagna allri umræðu um sykurmagn í matvöru, en bloggarinn Teitur Atlason gagnrýndi markaðssetningu Mjólkursamsölunnar á jólajógúrt í gær og sagði fyrirtækið þurfa að sýna samfélagslega ábyrgð. „Það er gott að það sé vakin athygli á þessu,“ segir Steinar sem telur það rétt að of mikið af sykri sé í boði. „Þá er ég að tala almennt en ekki sérstaklega um Mjólkursamsöluna. Ég er ekki að segja að ég taki endilega undir með Teiti með hvernig hann fór fram með þetta. Hins vegar er gott að fólk úti í samfélaginu, almenningur jafnt sem fræðafólk, veki athygli á því hvernig við getum valið betur. Þá hlusta fyrirtækin líka.“ Steinar segir stóra vandamálið vera það að almenna fræðslu vanti í samfélaginu um hvað sé gott og rétt varðandi matvæli. „Við þurfum að líta á menntakerfið. Hvar er menntunin og fræðslan til að við getum tekið upplýsta ákvörðun um hvort matvæli séu góð fyrir okkur eða ekki? Viljum við ekki að börn fái grunnkennslu í næringarfræði strax í grunnskóla?“ Varðandi samfélagslega ábyrgð segir Steinar að valið sé neytandans þegar upp er staðið. „Án þess að halda hlífðarskildi yfir einum eða neinum þá er valið okkar. Ég held að það geti allir litið í eign barm, stjórnvöld, neytendur og framleiðsluaðilar, og spurt sig hvort það sé eitthvað sem megi bæta. Ég hef talað um þessa samfélagslegu ábyrgð en mér finnst pínulítill munur á því að segja beint út að vara sé holl sem er það ekki, og því að segja kannski ekkert um hana en ætlast til að fólk lesi á umbúðir.“Margir gera vel Steinar segir marga framleiðendur hér á landi alla af vilja gerðir til að bjóða upp á holla matvöru. Nefnir hann Mjólkursamsöluna sem dæmi. „Sérstaklega síðustu fimm ár hafa þeir komið með fullt af vörum með minni sykri en áður. En við látum markaðsöflin ráða of miklu.“ Þá nefnir Steinar fleiri fyrirtæki sem eru að gera vel að hans mati. „Við getum til dæmis nefnt matvöruverslunina Víði. Þar er gríðarlega gott úrval af ávöxtum og grænmeti. Þeir gæta sín líka á að vera ekki með nammibar, og að vera ekki með sælgæti við kassa. Krónan er annað dæmi, en verslunin fór fyrst af stað með Matís og setti upp veggspjöld við nammibarina þar sem viðmiðunin var einn moli á hvert aldursár. Yggdrasill leggja sig fram við að bjóða upp á hreinar og góðar vörur. Það er fullt af fyrirtækjum að gera vel, en mikilvægast er að allir, almenningur, ég sem fræðimaður og þú sem fréttamaður, séu vel upplýstir til að geta tekið góðar ákvarðanir.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Sjá meira