Íbúar við Tryggvagötu óttast skipulagsslys Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 12. nóvember 2013 16:46 Ævar Árnason og Elín Petersdóttir, íbúar Tryggvagötu 4 til 6, reyna að keyra í gegn um 1,9 metrana.
Íbúar Tryggvagötu 4 til 6 hafa mótmælt breytingum á deiliskipulagi Norðurstígsreits sem samþykkt var á fundi umhverfis- og skipulagssviðs þann 30. október. Í bréfi sem borgarráðsfulltrúm var sent fyrir fund sem haldinn var þann 7. nóvember kom m.a. fram að það veki furðu íbúa að slíkt skipulag hafi verið samþykkt þar sem það loki næstum aðgengi að húseigninni að sunnanverðu og íbúar skilji ekki forsendur þess að afnema umrædda kvöð, þrátt fyrir ítrekuð mótmæli á kynningarfundum og athugasemdum lögmanna sem lagðar voru fram í umhverfis- og skipulagsráði. „Það er steinhús þarna við lóðamörkin sem er friðað,“ segir Valgerður Katrín Jónsdóttir, íbúi í húsinu við Tryggvagötu 4 til 6. „Þetta er reyndar miðjan í húsinu sem er friðuð en svo eru skúrar sitt hvorum megin við sem eru það ekki. Húsið var selt árið 2007 og nýr eigandi gerði athugasemdir við þessa kvöð um umferð þá.“ Valgerður segir kvöðina á umferð hafa verið fellda niður og að aðkoman að lóð hússins við Tryggvagötu að sunnanverðu, sem nær inn á lóð steinhússins að hluta, minnki í kjölfarið úr þremur metrum í 1,9 metra. „Þetta er skipulagsslys í uppsiglingu,“ segir Valgerður en í tilkynningu frá íbúum hússins segir að með breytingunum sé aðgengið gert ónothæft þar sem meðalbreidd bifreiða sé 2,2 metrar. Verið sé að skerða aðkomu að lóðinni en norðanmegin sé einnig erfitt aðgengi sökum umferðar. „Sunnanmegin er gengið inn í geymslur og sameign. Þá þarf að gera við kjallarann og þá þurfa að koma vinnuvélar. Það þarf að vera aðkoma til að við getum búið í húsinu.“Hlíðarhús, steinhúsið umrædda.Vita ekki hvað liggur að baki Valgerður segir ekkert vera í steinhúsinu nema geymslur og að þarna sé verið að taka hagsmuni eigenda steinhússins fram yfir hagsmuni íbúanna. „Þetta er hálfgerður skúr. Það er fasteignafélagið Ný fasteign sem á skúrinn en við vitum ekki hvað liggur að baki. Hvort það sé verið að hugsa um einhverjar framkvæmdir eða þvíumlíkt.“ Afgreiðslu málsins var frestað á síðasta fundi borgarráðs en næsti fundur verður haldinn á fimmtudaginn og á Valgerður von á því að málið verði afgreitt þá. Með mótmælum íbúa fylgja álit lögfræðinga þar sem bent er á að með breytingu á núverandi deiliskipulagi sé verið að brjóta lög og geti endanleg afgreiðsla haft í för með sér verulegan kostnað skattgreiðenda ef borgarráð samþykkir breytingarnar frá umhverfis- og skipulagsnefnd.
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Fleiri fréttir Fegursta flugvél Íslands rifin „Ekkert af þessu er beinlínis að hjálpa okkur“ „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Slaka á kröfum um íbúðastærðir og verslunarrými á jarðhæð Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Loka fyrir umferð vegna bilunar í umferðarljósum Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Sérstakt viðbragð á Ljósanótt vegna unglingadrykkju Hámark bílastæða við nýbyggingar falli niður Óvirk umferðarljós valda töfum Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sjá meira