Stígamót opna kampavínsklúbb Haukur Viðar Alfreðsson skrifar 12. ágúst 2013 11:59 Guðrún Jónsdóttir, talskona Stígamóta. samsett mynd
Stígamót opna kampavínsklúbb á fimmtudaginn. Í tilkynningu segir að samtökin telji sig hafa fundið leið til þess að sameina faglegan rekstur sem og þáttöku í vönduðum menningarverkefnum. Vönduð dagskrá verður í boði sem mun öll fara fram afsíðis. Þá býðst gestum að kaupa sér tíu mínútna einkaatriði fyrir 20 þúsund krónur og verður boðið upp á frítt kampavín á meðan atriðin fara fram. „Föngulegar konur munu bjóða upp á spjall, söng og jafnvel dans, á íslensku, ensku og á norðurlandamálunum og má geta þess sérstaklega að sumar þeirra eru skráðar í keppnina Ungfrú Ísland 2013,“ segir í tilkynningunni, en borgarstjóra Reykjavíkur, lögreglustjóranum, ráðherrum, þingmönnum og borgarfulltrúum verður boðið sérstaklega á opnunina.Tilkynning Stígamóta:Á Stígamótum er fjármögnun eilífðarverkefni og ýmislegt hefur verið reynt til þess að tryggja sem faglegastan rekstur. Jafnframt hefur þátttaka í vönduðum menningarverkefnum verið forgangsmál.Nú telja starfskonur sig hafa fundið leið til þess að sameina þessa tvo þætti starfseminnar. Þær hafa kynnt sér nýjustu strauma og stefnur í skemmtanalífi og fjáröflun og hafa ákveðið að opna glæsilegan kampavínsklúbb á Stígamótum fimmtudaginn 15. ágúst kl. 19-22.Vönduð dagskrá verður í boði, en hún mun öll fara fram afsíðis. Gestum býðst að kaupa sér tíu mínútna einkaatriði fyrir aðeins 20.000 krónur og verður boðið upp á frítt kampavín eins og hver getur í sig látið á meðan atriðin fara fram.Þar sem um opnunarhátíð er að ræða munum við bjóða sérstaklega borgarstjóranum í Reykjavík, lögreglustjóranum, ráðherrum, þingmönnum og borgarfulltrúum á meðan húsrúm leyfir. Föngulegar konur munu bjóða upp á spjall, söng og jafnvel dans, á íslensku, ensku og á norðurlandamálunum og má geta þess sérstaklega að sumar þeirra eru skráðar í keppnina Ungfrú Ísland 2013.Þannig mun dr. Guðrún Jónsdóttir eldri fræða fólk um sögu Stígamóta á tíu mínútum og taka nokkur dansspor í leiðinni ef stemning er fyrir því. Þórunn Þórarinsdóttir mun kveða rímur, en hún hefur verið í kór í mörg ár og er með góða rödd. Theodóra treystir sér til þess að kenna fólki að prjóna lopaslá á tíu mínútum ef fólk drekkur ekki því meira. Anna Þóra Kristinsdóttir sálfræðingur mun syngja um sjálfshjálparhópa fyrir konur sem stundað hafa vændi. Anna Bentína býður upp á persónulegt og skemmtilegt spjall um nauðganir og þær Guðný og Áslaug munu þylja tölur um aðsókn á Stígamótum undanfarin ár og komast yfir ótrúlega mikið efni á þessum tíma. Sólveig verður með létta dagskrá um barnaverndarmál tengd vændi.Ýmislegt fleira verður í boði og mun Halldóra Halldórsdóttir verða tímavörður. Björg Gísladóttir er þokkastýra klúbbsins og mun skapa huggulega stemningu og jafnvel flytja ljóð. Guðrún Jónsdóttir mun taka á móti gestum og mun geta boðið upp á ýmis sértilboð.Í kampavínsklúbbnum tökum við jafnt á móti konum og körlum og munum leitast við að láta fólki líða sem best.Verið öll hjartanlega velkominSkál!
Mest lesið Samþykktu að slíta kjarasamningum Innlent Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara Innlent Niðurrif hafið á Laugasól Innlent Segist geta gert Biden, Obama og Clinton „mjög slæma hluti“ Erlent Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Innlent Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Innlent Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Innlent Eritrea skiptir um lið og sendir hermenn inn í Tigray Erlent „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Innlent Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Innlent Fleiri fréttir Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Niðurrif hafið á Laugasól „Vonbrigði að Icelandair fljúgi ekki lengur til Kulusuk“ Ljósastaurar bilaðir víða í Reykjavík Ræst út vegna logandi rafhlaupahjóls Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Sjá meira