Innlent

Báturinn Glói sökk vestur af Skálavík

Landhelgisgæslunni barst tilkynning um að fiskibáturinn Glói hafi sokkið klukkan 15.33 í dag. Athugið að myndin tengist fréttinni ekki beint.
Landhelgisgæslunni barst tilkynning um að fiskibáturinn Glói hafi sokkið klukkan 15.33 í dag. Athugið að myndin tengist fréttinni ekki beint. MYND/VILHELM
Landhelgisgæslu Íslands barst tilkynning frá fiskibátnum Björgu Jóns um kl. 15:33 þess efnis að báturinn Glói hafi sokkið um 1 sjómílu vestur af Skálavík.

Einn maður var um borð og var honum bjargað um borð í Björgu Jóns. Einnig fór neyðarsendir bátsins í gang og sendi hann boð til stjórnstöðvar Landhelgisgæslunnar.

Björg Jóns sigldi með skipbrotsmanninn til Súgandafjarðar. Lögreglan á Vestfjörðum rannsakar nú málið.

Glói er 2 tonn að stærð og 6 metra langur trefjaplastbátur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×