Kapelluklukkan fannst í frystihúsi Svavar Hávarðsson skrifar 24. desember 2013 07:00 Myndin er tekin árið 1911 af kapellualtarinu á Fáskrúðsfirði. Líkneskin tvö standa nú í Landakotskirkju. Afsteypur hafa verið gerðar og munu standa á upprunalegum stað í kapellunni endurgerðri eystra. mynd/ljósmyndasafn reykjavíkur „
Það var ekki á elleftu stundu, heldur þeirri tólftu sem ráðist var í að bjarga spítalanum. Ástandið á honum þegar hafist var handa var með þeim hætti,“ segir Þorsteinn Bergsson, framkvæmdastjóri Minjaverndar, en Franski spítalinn á Fáskrúðsfirði verður tekinn í notkun í vor. Fosshótel hafa tekið að sér að reka hótel í spítalanum sem nú er nærri því fullbókað fyrir sumarið. Minjavernd fór að horfa til þess árið 2006 að endurbyggja spítalann. Áður hafði hópur áhugafólks á Fáskrúðsfirði bundist samtökum og leitað leiða til að endurbyggja húsið. Töluverður áhugi var líka hjá Frökkum, læknasamtökum og öðrum aðilum, m.a. í vinabæ Fáskrúðsfirðinga – Gravelines í Frakklandi.Húsið var svo gott sem ónýtt þar sem það stóð á Hafnarnesi, eyðibyggð austarlega á suðurströnd Fáskrúðsfjarðar.mynd/þorsteinnHugsunin af hálfu Minjaverndar var fyrst sú að endurbyggja húsið þar sem það stóð þá úti í Hafnarnesi. Síðar var ákveðið að flytja húsið á þann stað þar sem spítalinn hefur nú verið endurbyggður, neðan Hafnargötu á Fáskrúðsfirði. Enn fremur var ákveðið að endurgera sjúkraskýlið og líkhúsið auk þess sem gamla kapellan verður endurbyggð sem kapella og nýtt sem slík. Þorsteinn segir að leitað hafi verið að gömlum munum sem tilheyrðu kapellunni, sem bar meiri árangur en menn þorðu að vona. „Gamla klukkan fannst fljótlega, en hún hafði verið í höndum áhugamanns á Fáskrúðsfirði um húsverndun og sögu um alllangt skeið. Hann fann klukkuna í strigapoka uppi á lofti í gömlu frystihúsi sem var rifið fyrir áratugum. Hún verður sett á sinn stað í nýjan klukknaturn,“ segir Þorsteinn.Myndin er tekin 11. desember af húsinu nær fullbyggðu á sínum stað neðan Hafnargötu. Þar mun Fosshótel reka glæsilegt hótel.Fleira kom til því á gömlum myndum innan úr kapellunni sjást styttur af dýrlingum, sem Minjavernd hóf leit að í samstarfi við kaþólska söfnuðinn í Reykjavík [sjá til hliðar]. Kom upp úr dúrnum að þessar sömu styttur höfðu verið fluttar suður, en kapellan var afhelguð 1929 sama ár og Landakotskirkja, eða Kristskirkja, var í byggingu. „Við fórum með þessar myndir á fund kaþólikka hér í bænum og þá kom í ljós að dýrlingamyndirnar standa uppi í Landakoti í dag og eru í miklum metum. Þeir hafa gert afsteypur af styttunum tveimur sem séra Jakob Rolland fór með austur, og eru geymdar hjá Pétri, Davíð og Pétri, munkum af reglu hettumunka á Kollaleiru í Reyðarfirði,“ segir Þorsteinn. „Gamla harmoníið fannst svo á dögunum í geymslu kaþólska safnaðarins og fer austur og þjónar sem hljóðfæri kapellunnar.“Minjavernd hóf að huga að endurgerð hússins árið 2006, og teikningar sýndu að möguleikarnir voru ótæmandi.mynd/LáraBjörns Frá niðurlægingu til bjartrar framtíðarUndir aldamótin 1900 byggðu Frakkar þrjá spítala á Íslandi, á Fáskrúðsfirði, í Vestmannaeyjum og í Reykjavík. Að Búðum á Fáskrúðsfirði reis Sjúkraskýli 1896, síðan Kapella, spítalinn 1904, síðan Líkhús og loks Læknishús 1907. Kirkjugarður var staðsettur utan við þorpið og þar er vitað um 49 grafir. Spítalinn var fyrsta sjúkrahús reist á Íslandi og hafði ýmsar tækninýjungar sem fá hús höfðu á Íslandi. Vatn var rennandi í krana, vatnsklósett og frárennsli, rafstöð var í kjallara, apótek, skurðstofa og sjúkraherbergi.Sjúkraskýlið stendur á sínum upphaflega stað, er nú íbúðarhús og heitir Grund. Kapellan var afhelguð 1923, flutt upp í þorpið, gerð að tvíbýlishúsi og síðar rafmagnsverkstæði og geymslu. Líkhúsið var rifið. Læknishúsið var orðið mjög hrörlegt þegar það var gert upp fyrir bæjarskrifstofur Fáskrúðsfjarðar, en stóð síðan aftur autt eftir sameiningu sveitarfélaga í Fjarðabyggð. Franski spítalinn var um tíma notaður sem skóli að Búðum, en tekinn niður 1939 fjöl fyrir fjöl og efni hans flutt sjóleiðina út á Hafnarnes. Þar var hann endurreistur sem fjölbýlishús með 5 íbúðum og skóla. Hann var í notkun þar rétt fram yfir 1960 en fór þá í eyði.
Mest lesið Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Innlent Hótar að svipta Rosie O'Donnell ríkisborgararétti Erlent Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Innlent Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Innlent Tókust á um veiðigjöld og þinglok Innlent Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Innlent Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Innlent Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Innlent Hiti gæti náð 25 stigum í dag Veður Ursula von der Leyen kemur til Íslands Innlent Fleiri fréttir Velti bílnum út í sjó í Súgandafirði „Eini rasisminn sem ég hef upplifað á Íslandi er frá lögreglunni" Tókust á um veiðigjöld og þinglok Gámur á akrein hringtorgs í Hveragerði Þurfi að bæta skráningu ofbeldisbrota gegn fangavörðum Ursula von der Leyen kemur til Íslands Formenn takast á, fangelsismál og Trump á völlinn Ekki farið fram á gæsluvarðhald yfir fimmmenningunum Ingi Garðar er Reykvíkingur ársins Kallaði Kristrúnu „Trump okkar Íslendinga“ Kristrún og Guðrún mætast í Sprengisandi Flestir ánægðir með Kristrúnu en fæstir Ingu Fundu kannabisplöntur við húsleit Dettifoss komið til hafnar Mörg hundruð börn hittist og drekki sig full í sumarpartýum Ofbeldi í garð fangavarða eykst Hnífstungumaður úrskurðaður í gæsluvarðhald Fjögur mál kláruð fyrir þingslit: „Skynsamleg lúkning sem forseti leggur til“ Þinglokasamningur í höfn Þingfundi slitið eftir ítrekaðar frestanir og snörp orðaskipti Eldfimt ástand á þingi, árásir á fangaverði og full ungmenni á víðavangi Segir enga sérstaka ástæðu fyrir áhuga á 71. greininni Minnisblað Flokks fólksins: „Við þurfum að fá svar við þessu“ Þingfundur hafinn eftir ítrekaðar frestanir Dettifoss nálgast endamarkið Þurfi að taka á þeim sem telji sig geta keypt líkama annarra Hríðskotabyssa í poka kom Íslendingi á lista CIA Nafn mannsins sem lést í mótorhjólaslysinu Vonar að minnihlutinn sýni ábyrgð svo ekki þurfi að beita ákvæðinu aftur Telja jákvæðu skrefin of fá Sjá meira