Ölfusréttir haldnar í góðu veðri í gær 24. september 2013 07:00 Gott veður var í Ölfusi í gær og gekk smölun ágætlega. mynd/dfs.is
Margt fólk mætti í Ölfusréttir í gær til að draga um 900 fjár í dilka. Ölfusréttirnar voru byggðar í núverandi mynd árið 1977 og taka um tólf þúsund sauðfjár. Magnús Hlynur Hreiðarsson, ritstjóri og fréttamaður á Selfossi, var einn af gestum Ölfusrétta. Hann sagði réttafjörið hafa verið á sínum stað. „Það var mjög gaman að koma í Ölfusréttir og upplifa stemminguna þar. Þrátt fyrir að féð væri ekki margt þá voru allir í góðu skapi og réttarfjörið var á sínum stað. Ég sá ekki víndropa á nokkrum manni enda segja bændur að það sé svo mikið af börum í Ölfusi að það dugi bændum að fara þangað. Þá kom mér líka á óvart að það var ekkert sungið í réttunum, maður er vanur að heyra smá söng í réttum, ég saknaði söngsins“, segir Magnús Hlynur.Páll Þorláksson, bóndi á Sandhóli, segir nýliðun eiga sér stað í sauðfjárrækt í Ölfusimynd/dfs.isAldursforseti réttanna, Páll Þorláksson frá Sandhóli, var mjög ánægður með hvernig til tókst og segir nýliðun eiga sér stað í sauðfjárrækt á svæðinu. „Hér er margt ungt fólk að eignast fé. Fyrir um tíu árum kom hér bakslag vegna riðu og því er ánægjulegt að sjá hvað hér var margt ungt fólk með fé,“ segir Páll. Ekkert áfengi var haft um hönd í réttunum en Páll segir svo alltaf vera og að hann muni ekki eftir ölvuðum manni í Ölfusréttum. „Þeir sem vilja fá sér bjór fara hér föstudaginn fyrir smölun í það sem við köllum skrautreið. Síðan mæta allir hressir í smölun daginn eftir.“ segir Páll.
Mest lesið Orbán játar sig sigraðan Erlent Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ Innlent Níu ára drengur læstur í bíl föður síns í Frakklandi frá árinu 2024 Erlent Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Innlent Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Innlent Maður hífður upp úr Ölfusá Innlent Komið að ögurstundu Erlent Friðarviðræður runnu út í sandinn Erlent Lágflugið vekur athygli erlendis Innlent Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Innlent Fleiri fréttir Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Tilkynna málið til lögreglu: Flugstjórinn í sínu síðasta flugi Sjö á sjúkrahús eftir árekstur á Mosfellsheiði Maður hífður upp úr Ölfusá Farþegaþota í útsýnisflugi um hundrað metrum yfir Heimaey Ellefu framboðslistar á kjörseðli borgarbúa í vor Fjórar í valdastöðum á fréttamynd ársins Maður stunginn í heimahúsi á Akureyri Hafi áhrif á vísitöluna en vonandi væntingar líka Aðgerðirnar ekki til þess fallnar að koma í veg fyrir að forsenduákvæðið virkist Annar hvalrekinn á nokkrum dögum Fyrir þinginu að breyta svarmöguleikum þó enginn vafi leiki á umsóknarstöðu Til skoðunar að breyta svarmöguleikum á kjörseðli og sprenging í stofnun bókaklúbba Gæsluvarðhaldskröfu yfir Írisi hafnað Ók á tæplega tvöföldum leyfilegum hraða Spá enn vaxtahækkun í maí Gapandi búrhval rak á land: „Heljarinnar skepna“ Verzló hreppti hljóðnemann eftir sigur gegn MR Landskjörstjórn telur spurningu Þorgerðar gildishlaðna Góðan daginn býður góðan dag Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður að kvöldi Sjá meira