Umfjöllun um ofbeldi í skólum: Flestir foreldrar ánægðir með samskipti skólastarfsfólks við börn Hrund Þórsdóttir skrifar 24. september 2013 18:45
Í umfjöllun í Íslandi í dag í gærkvöldi um ofbeldi og vanrækslu í íslenska skólakerfinu, kom fram að formaður Regnbogabarna fær mörg símtöl á dag frá foreldrum sem telja að brotið sé á börnum þeirra. Fréttastofa hefur ítrekað reynt að afla upplýsinga um fjölda kvartana vegna framkomu kennara og annarra skólastarfsmanna við börn, en eftir því sem við komumst næst heldur enginn utan um þessar tölur. Ómögulegt virðist því að fá yfirsýn yfir umfang vandamálsins. Áhugavert er þó að skoða tölur úr foreldrakönnun Skólapúlsins sem 105 grunnskólar notuðu við innra sjálfsmat í mars síðastliðnum. Í úrtakinu voru um 8.600 foreldrar og var svarhlutfall á bilinu 70 til 100%. Nokkrar spurningar snertu á ánægju foreldra með samskipti starfsfólks skólanna við börnin og svöruðu foreldrar hvort þeir væru mjög ánægðir, frekar ánægðir, frekar óánæðir eða mjög óánægðir með samskiptin. Spurt var um ánægju foreldra með samskipti umsjónarkennara við barnið og þar sögðust 57 foreldrar eða 0,8% svarenda mjög óánægðir. 3% sögðust frekar óánægðir sem þýðir að 96,2% foreldra voru ánægðir. Einnig var spurt um ánægju með samskipti annarra kennara en umsjónarkennara við barnið og þar sögðust 58 foreldrar eða 0,8% svarenda mjög óánægðir. Þá voru 5,5% frekar óánægðir, sem þýðir að 93,7% foreldra voru ánægðir. Loks var spurt um ánægju með samskipti starfsfólks, annarra en kennara, við barnið og þá sögðust 70 foreldrar, eða 1% svarenda, mjög óánægðir. 5,2% voru frekar óánægðir sem þýðir að 93,8% voru ánægðir. Samkvæmt könnuninni er því mikill meirihluti foreldra ánægður með samskipti kennara og annarra skólastarfsmanna við börnin en eftir stendur hópur fólks sem upplifir festuleysi. Margir sem telja kennara eða aðra skólastarfsmenn hafa brotið á börnum sínum, hafa haft samband við fréttastofu í dag og segja óljóst hvert á að leita með slík vandamál, að enginn hlutlaus aðili rannsaki þau mál sem upp komi og að lítið sem ekkert eftirlit virðist haft með Olweusaráætluninni gegn einelti, sem margir skólar vinna eftir.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira