„Nemendur fóru í stunukeppni og kynlífsstellingaleikinn“ Boði Logason skrifar 24. september 2013 17:15 Strákarnir voru beðnir um að dansa breikdans á meðan stelpurnar voru látnar keppa í að hrista rassinn á sem kynþokkafyllstan hátt. Mynd/365 og KÍ
Kennari í Menntaskólanum í Kópavogi segir að kynjafræðsla í skólum sé nauðsynleg, enda sé umhverfi okkar gegnsýrt af kynlífsvæddum einhæfum staðalmyndum kynjanna. María Hjálmtýsdóttir, skrifar pistil á vefsíðu Kennarasambands Íslands í dag. Í pistilinum segir hún frá nýnemaferð sem hún hafi farið í á dögunum „þar sem nemendur léku „hóruleikinn“, fóru í stunukeppni og lásu upp úr klámblöðum við mikinn fögnuð viðstaddra. Strákarnir voru beðnir um að dansa breikdans á meðan stelpurnar voru látnar keppa í að hrista rassinn á sem kynþokkafyllstan hátt. Að lokum var svo farið í kynlífsstellingaleikinn.“ Segir hún að upplifun sín úr ferðinni hafi sannfært sig enn betur um nauðsyn þess að kenna kynjafræði í skólum. „Þegar ég var unglingur vorum við upptekin af kynlífi og útliti eins og unglingar hafa verið síðan fyrirbærið varð til. Ég dillaði rassinum, mátaði mínípils og málaði andlitið á mér svo rækilega að förðunarmeistarar Þjóðleikhúss hefðu orðið stoltir af,“ skrifar hún. Krakkar í dag búi í veruleika sem mætti líkja við hormónahlöðnu árin sín á sterum. „Til að útvega klámspólu eða blöð nú til dags þarf ekki að fara í laumulegan leiðangur. Klámheimurinn er orðinn ýktari, grófari og aðgengilegur hverjum þeim sem er með puttann á músinni eða jafnvel bara í símanum. Samkvæmt vinsælum fyrirmyndum krakkanna eru svölu strákarnir harðir og massaðir og stelpurnar sexý. Þeir sem eru „óheppnir í framan“ eiga ekki séns. Það er glatað að vera þenkjandi „trefill“ og lokatakmark flestra samskipta er kynlíf.“ Segir hún að ein af grunnstoðum menntunar í landinu sé jafnrétti og kennurum beri að innleiða jafnréttishugsun og sjónarmið í námsefnið og kennsluna. „En er það ekki nóg? Hvers vegna þurfum við þá að kenna kynjafræði á framhaldskólastigi?“Pistil Maríu má lesa í heild sinni hér.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira