"Grafalvarlegt mál“ Hödd Vilhjálmsdóttir skrifar 24. september 2013 19:00
Landlæknir segir það nauðsynlegt að greina þurfi betur hvaða læknisþjónustu einstaklingar í lágtekjuhópi neita sér um vegna þess að þeir hafa ekki efni á henni. Prófessorinn Stefán Ólafsson birti í dag og í gær færslur á bloggi sínu, en í þeim kemur fram að tæplega helmingi fleiri í lágtekjuhópi þurftu að neita sér um læknisþjónustu vegna kostnaðar árið 2011 en árið 2009. Fyrir fjórum árum var Ísland í áttunda efsta sæti á lista OECD, en það ár þurftu 3,7% lágtekjufólks að neita sér um læknisþjónustu þar sem það átti ekki pening fyrir henni. Árið 2011 vorum við ofar á lista Hagstofu Evrópusambandsins, eða í 6. efsta sæti og það ár þurftu tæp 7% lágtekjufólks að neita sér um læknisþjónustu vegna kostnaðar. Það vekur athygli að Ísland er þarna við hlið Grikklands og Ítalíu, sem bæði fóru illa út úr efnahagshruninu. Þau lönd sem við berum okkur gjarnan saman við, eins og Svíþjóð og Danmörk, eru með um og undir 1% í þessum efnum. Geir Gunnlaugsson landlæknir segir þetta vera áhyggjuefni. „Að sjálfsögðu er það grafalvarlegt mál af því að það er eitt af grundvallaratriðum í okkar heilbrigðisþjónustu að allir eigi að hafa jafnan aðgang að þjónustunni,“ segir hann. Hann segir tölur liðinna ára benda til þess að það sé ákveðinn ójöfnuður hvað varðar aðgengi að læknisþjónustu og þá sérstaklega hjá ákveðnum efnaminni þjóðfélagshópum. Geir er á því að það þurfi að skoða hvers vegna Ísland er mun neðar en önnur Norðurlöndin í þessum efnum. „Og reyna að greina betur hvaða þjónusta það er sem einstaklingarnir eru að neita sér um vegna fjárhags,“ segir hann.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Serbar á Íslandi mótmæla: „Það er ósanngjarnt að taka af fólki réttinn til að kjósa“ Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Sjá meira