Grétars ekki óskað hjá KR Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 25. janúar 2013 16:52 Grétar Sigfinnur í leik með KR gegn Val síðastliðið sumar. Mynd/Valli
Grétar Sigfinnur Sigurðarson er líklega á leið frá KR. Honum var tilkynnt í gær að þjálfarinn Rúnar Kristinsson vilji frekar nota aðra leikmenn. „Ég er auðvitað í sjokki," sagði varnarmaðurinn Grétar Sigfinnur við Vísi í dag en hann er uppalinn KR-ingur og hefur spilað með meistaraflokki félagsins samfleytt síðan 2008. Hann lék einnig með Val og Víkingi á sínum tíma. „Mér var tjáð að þeir vilji frekar nota aðra leikmenn," bætti hann við. „Það er því kannski best fyrir mig að líta í kringum mig, þó svo að ég eigi enn eftir tvö ár af mínum samningi við KR." „Ef þjálfarar vilja fara ákveðnar leiðir að því að vinna titla þá er það auðvitað það eina sem gildir." „Ég er þó vissulega vonsvikinn og sár. Ég er þó ekki fúll út í neinn. Þetta kom bara á óvart, enda hef ég alltaf gert mitt besta." Grétar Sigfinnur segir að sín fyrsta ósk sé að vera áfram hjá KR og berjast um sæti. „Mér var samt gert ljóst fyrir því að það yrði erfitt, enda væri ég dottinn það aftarlega í goggunarröðinni." „Þeir vilja einfaldlega prófa aðra hluti og telja sig vera betur stadda þannig. Þeir hafa fullan rétt á því." „Ég er engu að síður samningsbundinn og fer ekki annað nema eitthvað skemmtilegt býðst." „Minn fyrsti kostur er að vera hér og berjast um sæti. Ég er gríðarlega mikill KR-ingur og hef verið síðan ég byrjaði í fótbolta. Mér er því mjög brugðið við þetta allt saman en við þessu er ekkert að gera." Hann segir að engin félög hafa talað við sig en Vísir hefur engu að síður heimildir fyrir því að Valur hafi kannað stöðu Grétars Sigfinns. „Ég veit ekkert um það," sagði Grétar Sigfinnur.Uppfært 17.08: Kristinn Kjærnested, formaður knattspyrnudeildar KR, vildi ekki tjá sig um málið en sagði að það væri ætlunin að funda með Grétari í dag.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segir að Cristiano Ronaldo hafi verið búinn árið 2021 Enski boltinn Eiður fær enn hlýjar þakkir á Anfield Enski boltinn Fremsta afreksfólk Íslands fær 600 þúsund í verktakalaun Sport Hjörvar gaf Ljungberg búning íslenska handboltalandsliðsins Enski boltinn Ítalinn ungi hágrét eftir sögulegan heimsmeistaratitil Formúla 1 „Drengurinn minn á skilið að hans sé minnst með ást en ekki hatri“ Enski boltinn Lést aðeins tveimur árum eftir að hún varð Evrópumeistari Sport Sjáðu mark Havertz og „augljósa vítið“ sem ekki var dæmt Enski boltinn Þjálfari Hákons grét eftir leik Fótbolti Iraola mun segja Isak að láta sig falla í framtíðinni Enski boltinn Fleiri fréttir Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Draumurinn að þjálfa Blika Tímabilið vonbrigði en bjartir tímar framundan Sjá meira