Risapottar 1X2 eru búnir til fyrir jólin Freyr Bjarnason skrifar 28. desember 2013 07:00 Stefán Konráðsson hjá Íslenskri getspá er ánægður með risapottana sem myndast nokkrum sinnum á ári. Fréttablaðið/Stefán
Ákveðin peningaupphæð er lögð til hliðar og sett í stóran pott í getraunaleiknum 1X2 sem dælt er úr nokkrum sinnum á ári, þar á meðal um jólin. Til að mynda voru um 440 milljónir í pottinum fyrir þrettán rétta síðasta laugardag, sem var sá stærsti í sögu Íslenskra getrauna. Alls skiptu 204 tipparar með sér vinningnum, sem nam rúmlega tveimur milljónum króna. „Við erum afar ánægðir að fá risapott. Þá fá íþróttafélögin sinn hluta af sölunni. Því hærri pottur, því meiri líkur á að það seljist meira,“ segir Stefán Konráðsson, framkvæmdastjóri Íslenskrar getspár, aðspurður. Svíar, sem eru í samstarfi við Íslendinga og Suður-Afríkumenn, ráða ferðinni hvað risapottana varðar. Til að mynda voru þrír risapottar fyrr á árinu vegna áttatíu ára afmælis Svenska Spel sem heldur utan um sænsku getraunirnar. Að sögn Stefáns myndast risapottarnir annars á þrjá vegu. Í fyrsta lagi þegar enginn er með þrettán rétta og fer potturinn þá yfir á næstu viku. Í öðru lagi þegar margir eru með 10 eða 11 rétta og enginn nær lágmarksvinningnum, sem er fimmtán krónur sænskar [um 266 íslenskar krónur]. Fer þá potturinn yfir á næstu viku. Í þriðja lagi er ákveðinn hluti af hverri seldri krónu tekinn frá fyrir pott sem er notaður þegar einungis einn er með þrettán rétta. Þessi regla tók gildi á haustmánuðum 2010. Þá var útborgunarhlutfalli í getraunum breytt úr 46% í 65% og um leið var útborgunarhlutfalli hvers vinningsflokks breytt örlítið. Við þessa breytingu hækkuðu vinningar mjög og áhugi jókst. Til að mynda hafa tíu stærstu pottarnir í sögu Íslenskra getrauna myndast á síðustu þremur árum. Nýju reglurnar kveða á um að sú manneskja sem hlýtur 13 rétta fær tíu milljónir sænskra króna [um 177 milljónir íslenskra króna] í vinning sama þótt lægri upphæð hafi verið í pottinum. Peningurinn sem er lagður til hliðar vegna þessarar reglu safnast saman og er notaður í risapott eins og þann sem var í boði um síðustu helgi. Rétt eins og á sama tíma fyrir ári var ákveðið að tvöfalda sænsku milljónirnar tíu fyrir jólin. Stefán segir að mest sé tippað í kringum jólin en svo dregur úr því þegar nær dregur vorinu. Risapottar um jólin hafa því verið nokkuð oft í boði í gegnum árin til að mæta eftirspurninni og auka hana á sama tíma. „Það eru margar umferðir spilaðar um jólin. Þótt það sé mikið um að vera í jólaboðum eru margir sem setjast niður og horfa á fótboltann líka,“ segir hann.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira