Borga menningarhúsið sjálfir Freyr Bjarnason skrifar 27. desember 2013 07:00 Gamla félagsheimilið í Vestmannaeyjum sem breyta á í menningarhús. Mynd/Vestmannaeyjabær
Vestmannaeyjabær greiðir úr eigin vasa endurbætur á gamla félagsheimilinu við Heiðarveg sem á að breyta í menningarhús. Endurbæturnar hafa kostað 25 milljónir króna og búist er við að um sjö milljónir bætist við kostnaðinn áður en yfir lýkur. Aðspurður segir Ólafur Snorrason, framkvæmdastjóri umhverfis- og framkvæmdasviðs, að peningurinn komi allur af eigin fé bæjarins, enda hafi sveitarfélagið ekki tekið lán í rúm sjö ár. „Húsið hefur í langan tíma liðið fyrir viðhaldsleysi og meginkostnaðurinn við það núna er að bæta aðgengi fatlaðra og gera bragarbót á því sem snýr að eldvörnum,“ segir Ólafur, sem segir verkefnið á kostnaðaráætlun. Bæjarráð Vestmannaeyja hefur sett á laggirnar stýrihóp um stofnun menningarhúss í bænum. Hópurinn mun aðstoða við að þróa starfsemi gamla félagsheimilisins yfir í menningarhús. Til stóð að hefja byggingu nýs menningarhúss fyrir um áratug en horfið var frá þeim áformum. Aðspurður hvað það hefði kostað segir Ólafur að uppi hafi verið hugmyndir um að grafa upp svokallað Heimatorg sem fór undir hraun og setja á það glerþak. Kostnaður við það hefði líklega hlaupið á milljörðum króna. Stefnt er að vígslu nýja menningarhússins á næsta ári.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð Innlent „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Innlent Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Innlent Sex vikið úr starfi vegna banatilræðis gegn Trump Erlent Fleiri fréttir Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sleginn í andlitið með hnúajárni Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Þingfundi frestað: Stjórnarandstaðan lagði fram „aðeins mýkri“ tillögu „Það er þarna sem rússneskir kafbátar fara í gegn“ Hélt á lokuðu umslagi Tillögur „ekki afhentar í lokuðu umslagi“ Uppþot og fúkyrði á þinginu og bandarískur kjarnorkukafbátur Jökulhlaupið í rénun Reyna að stilla til friðar í bakherbergjum Alþingis Segir ummæli ráðherra um sig ógeðfelld Fundu tuttugu kíló af grasi eftir húsleit í Hafnarfirði Mennirnir þrír sjáist ekki í myndefni Sjá meira