Fæti brugðið fyrir fornfræga göngu Garðar Örn Úlfarsson skrifar 27. desember 2013 14:00 Heimsþekktir skíðagöngumenn hafa tekið þátt í Fossavatnsgöngunni sem öðlast sífellt alþjóðlegri skírskotun. Mynd/Fossavatn.com „
Ljóst er að aðstandendur mótsins eru komnir í verulega slæma klípu sem ekki hefur verið fundin lausn á,“ segir Steinþór Bjarni Kristjánsson, formaður stjórnar Fossavatnsgöngunnar, í bréfi til Ísafjarðarbæjar. Steinþór vekur athygli á því í bréfi sínu að íþróttahúsið á Torfanesi hafi verið tekið frá fyrir handboltamót sömu helgina og skíðafólkið ætli að þreyta Fossavatnsgönguna í byrjun maí á næsta ári. „Fossavatnsgangan fer fram hér á Ísafirði á hverju vori. Þetta ætti raunar flestum að vera kunnugt um, enda hefur hún verið árviss viðburður í bæjarlífinu frá árinu 1935, með litlum hléum,“ útskýrir Steinþór fyrir bæjaryfirvöldum. Steinþór segir hið alþjóðlega skíðasamfélag hafa sívaxandi áhuga á Fossavatnsgöngunni og erlendum þátttakendum fjölgi ár frá ári. „Stærstu mótaraðir heims á þessu sviði, Worldloppet og Euroloppet, hafa sóst eftir samstarfi við Fossavatnsgönguna,“ skrifar Steinþór. Þetta feli í sér að Fossavatnsgangan starfi í alþjóðlegu samkeppnisumhverfi og keppi við erlendar göngur um hylli skíðafólks. Alls kyns önnur dagskrá en skíðagangan sjálf sé hluti Fossavatnsgöngunnar. „Afnot af íþróttahúsinu á Torfnesi hafa verið lykillinn að þessari viðbótardagskrá og að þeirri mótsumgjörð sem Fossavatnsgangan hefur getið sér gott orð fyrir víða um heim,“ segir Steinþór. Afar bagalegt sé að búið sé að taka íþróttahúsið á Torfnesi frá fyrir handknattleiksmót því ekkert annað hús í sveitarfélaginu rúmar þann fjölda fólks sem sækir gönguna. „Í vor munu koma hingað eftirlitsmenn frá Alþjóðlega skíðasambandinu og Worldloppet-samtökunum til að gera úttekt á mótshaldi, aðbúnaði og umgjörð,“ segir Steinþór. Vandinn sé því mikill. „Ekki verður hægt að bjarga málinu með því að breyta dagsetningu göngunnar, því allt markaðsstarf erlendis hefur miðast við fyrstu helgina í maí. Dagsetningin er komin inn í mótaskrár, með annars hjá Alþjóðlega skíðasambandinu, og ferðaskrifstofur erlendis eru þegar byrjaðar að auglýsa og selja ferðir í Fossavatnsgönguna umrædda helgi,“ undirstrikar Steinþór. Í samtali við Fréttablaðið segist forsvarsmaður Fossavatnsgöngunnar viss um að málið leysist. „Það er hægt að leysa allt en ef við fáum ekki íþróttahúsið verður það ekki besta lausnin.“Sjá heimasíðu Fossvatnsgöngunnar.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira