Landlæknir veitir faglega eftirlitið Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 21. desember 2013 07:00 Laura Scheving Thorsteinsson segir gæði og öryggi fara alltaf saman, með auknum gæðum eykst öryggið. Fréttablaðið/Vilhelm Mynd/Vilhelm
Embætti Landlæknis fer með eftirlitshlutverk í heilbrigðisþjónustu og sinnir kvörtunum almennings vegna þjónustunnar. Embættið veitir tilmæli, áminningu og í alvarlegustu tilvikum sviptir fagfólk starfsleyfi. Þegar um óvænt dauðsföll er að ræða, þar sem dauði eða örkumlun sjúklings verður vegna mistaka, þá fer málið til lögreglu. Þá eru viðurlögin í höndum dómskerfisins. Í grein Fréttablaðsins í gær sögðu stjórnendur Landspítalans að dómsmál vegna mistaka heilbrigðisstarfsmanna í starfi geti verið hættuleg þróun fyrir öryggismál sjúklinga. Tilkynningar starfsfólks vegna mistaka er nefnilega ein meginforsenda þess að hægt sé að bæta verklag, koma í veg fyrir fleiri mistök og þróa þannig svokallaða öryggismenningu á vinnustaðnum þar sem gæði og öryggi er haft að leiðarljósi. Eftirlit og gæði hjá Landlækni Laura Scheving Thorsteinsson er verkefnastjóri á sviði eftirlits og gæða hjá Landlækni. Hún segir atvik vera mjög algeng í heilbrigðisþjónustu þótt alvarleg atvik séu fátíð. Mikilvægast sé þó að bregðast við þeim öllum á réttan hátt. „Á stórri stofnun geta atvik gerst á hverjum degi en þau valda ekki öll skaða. Flækjustig heilbrigðisþjónustu hefur aukist mikið enda hefur legutími styst verulega. Það þýðir að sjúklingar liggja bara inni þegar þeir eru mjög veikir, þurfa mikið eftirlit og mikla þjónustu. Fyrr á tímum lá fólk inni þar til það varð frískt. Þannig að í dag eru í raun alltaf erfið tilfelli inni á spítölum og almennu deildirnar eru farnar að líkjast gjörgæsludeildum fyrir tuttugu árum og á niðurskurðartímum getur þannig ástand orðið ansi erfitt fyrir starfsmenn.“ Algengustu orsakir atvika er vegna skipulagsgalla Laura segir helstu ástæður fyrir að atvik verði í heilbrigðisþjónustu vera vegna ágalla í skipulagi, kerfislægra atvika, manneklu, fólk þekki ekki verklagsreglur eða þær ekki fyrir hendi, hafi ekki fengið næga þjálfun eða misskilnings í samskiptum. Hlutverk Landlæknis er meðal annars að setja fram leiðbeiningar um bætta verkferla. „Það sem mestu máli skiptir er menning á vinnustað. Þar sem er þróuð öryggismenning þar er meira öryggi. Það eru fjórir þættir sem efla öryggismenningu; áhugi stjórnenda á öryggismálum, góð samskipti og samstarf starfsfólks og skráning atvika. Útgangspunkturinn er ekki að leita að sökudólgum heldur að leita lausna og skoða hvernig við getum gert betur. “ Skráning atvika hefur aukist Þegar Fréttablaðið bað um tölfræðiupplýsingar um atvik í heilbrigðiskerfinu hjá Landlækni kom í ljós að slíkt er ekki fyrir hendi. „Viö köllum inn skráningu á atvikum tvisvar á ári en nú er komin samtímaskráning. Þannig að við höfum skráð atvik hjá okkur en við vitum að það er vanskráning og því ekki um heildar tölfræði að ræða. Aftur á móti hefur skráning aukist mikið á síðustu árum. Heilbrigðisstarfsfólk hefur meiri áhuga á skráningu og sér gildi hennar. Einnig er verið er að vinna að rannsókn um óvæntan skaða. Við erum búin með fyrsta hlutann af þremur og niðurstöður eru mjög áþekkar því sem komið hefur í ljós úr sambærilegum rannsóknum í öðrum löndum,“ segir Laura.
Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Fleiri fréttir Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Sjá meira