Dúxaði átján ára frá Fjölbrautaskóla Suðurlands Guðsteinn Bjarnason skrifar 21. desember 2013 07:00 Gísli Þór Axelsson brautskráðist í gær ásamt 95 öðrum nemendum frá Fjölbrautaskóla Suðurlands. Mynd/Guðfinna Gunnarsdóttir „
Ég ætla að reyna við inntökupróf í læknisfræði í vor,“ segir Gísli Þór Axelsson, sem í gær brautskráðist af náttúrufræðibraut Fjölbrautaskóla Suðurlands á Selfossi með hæstu einkunn sem gefin hefur verið við skólann frá upphafi. Meðaleinkunnin er 9,88. Gísli Þór fæddist árið 1995 og varð átján ára gamall síðastliðið vor. Hann hefur því lokið framhaldsskólanáminu hálfu öðru ári á undan flestum jafnöldrum sínum. Þessu náði hann með því að ljúka grunnskóla ári á undan og tók síðan fjölbrautaskólann á þremur og hálfu ári. „Það var samt engin djúp pæling í því,“ segir Gísli Þór, hógværðin uppmáluð. „Ég fór þetta bara á þeim hraða sem mér fannst þægilegur. Var ekkert að flýta mér svo sem.“ Auk þess að dúxa hlaut Gísli Þór fjölmörg verðlaun í einstökum greinum. Hann fékk einnig viðurkenningu fyrir framlag sitt til félagslífs skólans og viðurkenningu frá Hollvarðasamtökum FSu. Alls útskrifuðust 96 nemendur frá FSu í gær, þar af 68 stúdentar. Fimm nemendur brautskráðust af tveimur brautum, þar af einn af tveimur stúdentsbrautum. Gísli Þór er fæddur og uppalinn á Selfossi, þannig að beint lá við að velja þennan framhaldsskóla. Hann stefnir á að hefja læknisfræðinám við Háskóla Íslands í haust.
Mest lesið Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Innlent Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Innlent Indversk tenniskona skotin til bana af föður sínum við morgunverðarborðið Erlent „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ Innlent Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Innlent Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss Innlent Lögregla rannsakar alvarlegt slys í Lágafellslaug Innlent Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku Innlent Velti bílnum við Fjarðarhraun Innlent „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Innlent Fleiri fréttir Airbnb-íbúðir leigðar undir fölsku flaggi Opinberar gamalt ástarsamband við táningsstúlku „Liggur alveg ljóst fyrir að þetta frumvarp er drasl“ Forstöðumaður spilar og syngur fyrir gesti Sundlaugar Akureyrar Sögulegur dagur á Alþingi og vændi í Airbnb-íbúðum Árekstur bíls og vespu á Hafnarfjarðarvegi Sögulegur dagur á Alþingi: Lýðræðisákvæði eða kjarnorkusprengja? Varðskipið Þór heldur heim frá Noregi í næstu viku Frumvarpið komið yfir erfiðasta hjallann en gæti átt nóg eftir Einn handtekinn í mansalsrannsókn lögreglunnar Vændiskaupendur séu oftast fjölskyldufeður á leið til vinnu eða fundar Lögregla rannsakar slys í sundlauginni í Stykkishólmi Kristrún fái ef til vill að bragða á eigin meðali fyrr en síðar Hóta að loka svæðinu við Seljalandsfoss „Hann er að eigna sér eitthvað sem hann á ekki“ „Hræðilegar fréttir fyrir lýðræðið á Íslandi“ Fordæmalaus ákvörðun sem gæti breytt Alþingi til framtíðar Dramatík á Alþingi og bílastæðablús hjá World Class Velti bílnum við Fjarðarhraun Flytja hluta starfsemi SAk vegna myglu Sjá ekki fyrir endann á umfangsmikilli rannsókn á fíkniefnaframleiðslu „Þetta er alvarlegur áfellisdómur yfir forsætisráðherra“ Vaktin: Tillagan samþykkt og annarri umræðu um veiðigjöld lokið Fundu 36 hugsanlega þolendur mansals á Íslandi í alþjóðlegri lögregluaðgerð „Eftir þetta hvassviðri í þinginu í gær heldur lífið áfram“ Tekjur af laxveiði í Borgarfirði eru vel yfir 50% af tekjum landbúnaðar á svæðinu Krefjast bóta verði ekki fallið frá áformum um skólaþorp Halda áfram að ræða veiðigjöldin Tekur önnur Íslendinga þátt í erfiðustu og lengstu kappreið í heimi Draga Dettifoss til Reykjavíkur Sjá meira