Myndlist á klósettinu Ólöf Skaftadóttir skrifar 20. desember 2013 09:00 Rakel McMahon verður með fyrstu sýninguna á Studio Salerni, en hún rak áður Gallerí Klósett ofar á Hverfisgötu. Fréttablaðið/GVA „
Við erum svo miklir listunnendur á Bast,“ segir Dóra Takefusa, eigandi Basts, en á föstudaginn hyggst hún opna myndlistargallerí inni á einu af salernum kaffihússins Bast á Hverfisgötu. Hugmyndin er fengin frá listakonunum Rakel McMahon, Jóhönnu Kristbjörgu og Ragnheiði Káradóttur, en þær stöllur ráku hið nýstárlega sýningarými Gallerí Klósett við Hverfisgötu 61 sem lokaði fyrir tæpu ári. „Mér finnst þetta svo mikil snilldarhugmynd og algjör synd að væri ekki virkt. Þess vegna ákvað ég með þeirra samþykki að endurvekja þetta óhefðbundna sýningarrými og opna hjá mér Studio Salerni,“ segir Dóra, sem hlakkar til að takast á við gallerírekstur. „Eins og nafnið gefur til kynna er sýningarrýmið inni á salerni, eða í sal þar sem maður gengur örna sinna,“ segir Dóra, kímin. Í dag verður fyrsta myndlistarsýning Studio Salernis. „Okkur fannst tilvalið að Rakel McMahon myndi vígja galleríið,“ útskýrir Dóra. Rakel hefur getið sér gott orð sem myndlistarkona undanfarin misseri.Galleríið verður á salerninu á kaffihúsinu Bast.„Rakel hefur haldið einkasýningar út um víðan völl og tekið þátt í fjölda samsýninga, og rekstri alls kyns verkefna á sviði menningar og lista. Hún er stjórnarmeðlimur Nýlistasafnsins og annar hluti tvíeykisins Wunderkind Collective,” segir Dóra. Viðfangsefni Rakelar einkennast gjarnan af tvíræðni, myndlíkingu og endurmati á viðteknum samfélagsnormum. „Mér finnst Rakel svo dásamlegur myndlistarmaður því það er líka svo mikill húmor í verkunum hennar sem snúast oft um kyn, kynhlutverk, kynhneigð, klisjur og staðalímyndir!“ segir Dóra að lokum og hvetur sem flesta til að kíkja við á opnunina á föstudaginn kl. 17.00.
Mest lesið Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Lífið Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Lífið Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Lífið „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Lífið Niðurgangur, æla og nóg af pungspörkum Gagnrýni Joanna Pettet er látin Bíó og sjónvarp Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Lífið Björk og Yara nýtt par Lífið Adda og Alfreð eignuðust dreng Lífið Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta Lífið Fleiri fréttir Flýta tónleikum „svo túristarnir geti farið að hátta“ Harry og Meghan heimsóttu konungshjónin Krummafótur um helgina Adda og Alfreð eignuðust dreng Sárreiðir Rúvar-ar hafna því að Megasi hafi verið slaufað Óttar og Rafnhildur Rósa eiga von á stúlku Kathy Griffin komin með 22 ára kærasta „Engir áhrifavaldar, engin þjóð“ Fylgjendafjöldi Kristrúnar fimmfaldast Frumsýning á Vísi: Síðasta „flugeldasýning“ Iceguys Myndaveisla: Ríflega fimmtíu söguleg seglskip prýddu flóann Nýtt smáforrit fyrir Þjóðhátíðargesti Björk og Yara nýtt par Dóu ekki ráðalaus þegar Dýrafjarðardagar döguðu uppi Aldrei verið skömmuð jafn mikið og í Stokkhólmi Hægara sagt en gert að ná lélegum myndum The Pitt með flestar tilnefningar til Emmy-verðlauna Hvað veistu um... Kristrúnu Frostadóttur? Qualley og Antonoff í sundur Björgvin Franz og Bryndís fundu ástina á fjölum Borgó Leiða áhorfendur gegnum garðinn eftir lokun Þrúður Vilhjálmsdóttir er látin Erótísk saga um fyrstu kynni lesin upp í brúðkaupinu Í uppáhalds kjólnum við sólseturs-bónorðið „Þurfti hann að detta niður dauður til að vera spilaður?“ Megas er látinn Guðrún Sóley gengin út „Einn af fáum lögfræðingum sem heldur upp á siðfræðina“ Harry Styles setti heimsmet Næringarfræðingi brá þegar Simmi Vill tók upp nestið Sjá meira