Mismunandi verktakar í mokstrinum Freyr Bjarnason skrifar 20. desember 2013 07:00 Vertakar frá tveimur mismunandi fyrirtækjum annast snjómokstur í Barðavogi. Fréttablaðið/GVA
Verktakar frá tveimur mismunandi fyrirtækjum annast snjómokstur í Barðavogi í Reykjavík. Í Fréttablaðinu í gær greindi íbúi við Barðavog frá því að snemma dags væri snjór mokaður af gangstéttinni sem hann gengur eftir á leið sinni til vinnu. Seinni partinn þegar hann gengur heim á leið hefur snjó af götunni verið mokað aftur yfir gangstéttina. „Verktakar sjá um að moka göturnar að fyrirskipun eftirlitsmanna,“ segir Sigurður Geirsson, yfirverkstjóri hjá umhverfis- og skipulagssviði Reykjavíkurborgar, aðspurður. „Það er kannski hægt að gera betur einhvers staðar. Ef menn vinna enn betur saman þeir sem moka gangstéttir og götur, þá er eflaust hægt að laga það.“ Aðspurður segir Sigurður málið snúið hvað Barðavog varðar. Þar er gangstétt öðrum megin sem liggur alveg upp við götuna. Þangað kemur snjórinn óhjákvæmilega þegar hann er skafinn af götunni. „Snjórinn gufar ekki upp, einhvers staðar fer hann. Ef það er hægt að fjarlægja snjóinn eða keyra hann í burtu, væri það gott en það er óheyrilegur kostnaður við það. Það er svipað með hundruð annarra gatna í borginni, litlar götur með stétt öðru megin.“ Spurður hvort mögulegt sé að ryðja snjónum aftur í burtu af gangstéttinni segir hann það erfitt. Tækin fyrir gangstéttirnar séu um þrjú tonn að þyngd og þau ráði ekki við svo mikinn snjó. Sigurður Geirsson, yfirverkstjóri hjá umhverfis og skipulagsviði borgarinnar, er þakklátur fyrir ábendingu íbúans í Barðavogi og segir að reynt verði að leysa málið eftir bestu getu. „Þetta gerist á hverjum einasta vetri þegar snjóar oftar en einu sinni á dag. Við erum að fara á stjá klukkan þrjú á nóttunni og erum á vakt til ellefu á kvöldin. Við erum þessir góðu jólasveinar sem erum alltaf á ferðinni.“
Mest lesið Gul viðvörun vegna austan stórhríðar annan í páskum Veður „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Innlent „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Innlent Svarar engu um hver viðbrögð yrðu næðu íranskar hersveitir til flugmannsins Erlent NASA deilir myndum af jörðinni: „Treystið okkur, þið lítið æðislega vel út“ Erlent „48 klukkustundir þar til allt fer til fjandans“ Erlent Mæla með að fólk leggi fyrr af stað Veður Mímir hótaði að siga Vítisenglum á gagnrýninn borgara Erlent Snjóflóð skammt frá borginni líklega af mannavöldum Veður Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Innlent Fleiri fréttir Viðreins býður fram sinn fyrsta lista á Akranesi Unnið að tillögum um lengingu brimvarnargarða Landeyjahafnar „Vatnsbólið er nánast tómt, það er að tæmast“ Hleypt inn í hollum í Vesturbæjarlaug Eldri borgarar einmana en eigi erfitt með að rífa sig upp á ný Segir stjórnvöld vinna gegn ferðaþjónustunni „Það er munur á karllíkama og kvenlíkama“ Mæla gegn því að ganga ofar en að Steini í Esjunni Óvissa í ferðaþjónustu og stuð á Aldrei fór ég suður Þrír vistaðir í fangaklefa og einn fluttur á bráðamóttöku Fyrsti innflytjandinn til að lesa Passíusálmana í kirkju skáldsins „Enginn ætti að þurfa að fara í annað land til þess að fá viðeigandi heilbrigðisþjónustu“ Lögregla lét loka þremur afhendingarstöðum áfengis „Þetta hlýtur að verða metdagur“ Snjóruðningstæki sat fast Göngin lokuð á næturnar í sjö vikur: „Hélt að þetta væri aprílgabb“ Sjúkrahúsið skilar ekki páskagjöf Smáríkisins Glórulaust að veginum hafi ekki verið lokað fyrr Brotist inn og gert sig heimakominn Ljósmyndarinn lifir ekki á „tagginu“ einu saman Framsókn næði ekki inn á þing Þáttaskil í sögu Lýðskólans á Flateyri Innanlandsflugi aflýst vegna veðurs Hryðjuverkamálið á dagskrá Landsréttar í maí Umferðin gengur hægt en stóráfallalaust fyrir sig Íslendingur tók þátt í að gera tunglskotið að veruleika Oddvita sparkað af listanum og segir af sér formennsku Sendiherrum og skrifstofustjórum stokkað Ísland, Grænland og Færeyjar saman hefðu sterka samningsstöðu Kjartan Guðmundsson er látinn Sjá meira