Sautján ára þreyta á snjómokstrinum Freyr Bjarnason skrifar 19. desember 2013 07:00 Hér má sjá gangstéttina sem Hrafn gengur eftir til og frá vinnu. Hér hefur snjónum verið mokað í burtu árla dags. Síðar um daginn er honum mokað aftur upp á stéttina. „
Ég er kominn með sautján ára þreytu á þessu,“ segir Hrafn Heiðdal Úlfsson, íbúi í Barðavogi í Reykjavík. Hrafn gengur á hverjum morgni í vinnuna, innan við eins kílómetra leið. Þá hafa bæjarstarfsmenn iðulega lokið við að moka snjó af gangstéttinni. Þegar hann snýr aftur heim á leið seinna um daginn hefur snjómoksturstæki mokað snjónum aftur upp á gangstéttina af götunni og þarf hann þá að labba á götunni, sem allir vita að er stórhættulegt. „Þetta er búin að vera sama sagan með moksturinn frá því ég flutti í hverfið fyrir sautján árum. Ég hef hringt nokkrum sinnum en hef ekki gert það síðastliðin tvö ár, ég hef bara gefist upp á þessu. Svo ofbauð mér þegar ég var að labba í gærmorgun [þriðjudagsmorgun],“ segir Hrafn, ósáttur við gang mála. „Þegar ég labbaði klukkan tíu mínútur fyrir níu sá ég að það var búið að moka gangstéttina. Ég hló inni í mér því ég vissi hvernig þetta yrði þegar ég labbaði til baka. Svona er þetta bara ár eftir ár og þetta er á öllum þessum gangstéttum hérna í hverfinu hjá okkur.“ Hrafn, sem er á fimmtugsaldri, segist hafa fengið loðin svör hjá borgaryfirvöldum þegar hann hefur óskað eftir að gengið verði í málið. „Að athuga og skoða, það er mjög algengt svar,“ segir hann. „Ég bara skil ekki hvers vegna er verið að eyða skattpeningunum í svona bull. Ég vil bara að þetta verði lagað. Þetta er hluti af mínum skattpeningum og ég vil að þetta sé unnið skikkanlega.“ Hann segir að eldra fólk sem býr í hverfinu vogi sér ekki út úr húsi vegna ástandsins. „Það getur ekki labbað á götunni í hálkunni og ekki á gangstéttunum því þær eru verri heldur en áður en það var skafið. Það eru borgaðar fleiri milljónir á ári í þennan mokstur, sem er til einskis.“
Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda Innlent Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Erlent Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Innlent Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Fleiri fréttir Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Pallborðið: Línurnar lagðar fyrir spennandi þing Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Þorgerður kallaði Rússa á teppið og auknar heimildir lögreglu Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Áfram stelpur verða að félagasamtökum: Margir gerendur um hvern og einn þolanda „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Víðáttumikil lægð fyrir sunnan land Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Eldur í þaki Rimaskóla í nótt Þjófnaður í þremur verslunum Fái að ráðast í húsleit og spyrja svo Bændum brugðið og skoði frekari öryggisbúnað Segir skattahækkun á baðlón bíta fastast á landsbyggðinni Rúmur helmingur flugmannanna hafi sofnað við störf Svona voru aðstæður við svínabú Stjörnugríss Stytta gjaldskyldu og opna bílahús allan sólarhringinn Sonur þingmannsins í áframhaldandi gæsluvarðhald Rúvarar verði einir eftir í Efstaleitinu Stefnan tengist ekki þjóðaratkvæðagreiðslu Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Sjá meira