Tillaga um steyptar götur í Reykjavík fær ekki brautargengi Garðar Örn Úlfarsson skrifar 19. desember 2013 08:30 Svikryk fór átta sinnum yfir heilsuverndarmörk við Grensásveg í fyrra en þó aðeins tvisvar vegna umferðar segir samgöngustjóri Reykjavíkurvborgar. Fréttablaðið/Stefán „
Tilraunakaflar sem gerðir hafa verið hafa flestir eða allir misheppnast að einhverju leyti,“ segir Ólafur Björnsson, samgöngustjóri Reykjavíkurborgar, í umsögn vegna tillögu borgarfulltrúa Sjálfstæðislfokks um að steinsteypa götur þar sem umferðarþungi er mikill. „Áætlað er að um tíu þúsund tonn af malbiki slitni árlega vegna notkunar nagladekkja í borginni og endar hluti þess slits sem svifryk í andrúmslofti. Talið er að minnstu agnir af þessu ryki séu hættulegar heilsu fólks,“ segir í greinargerð með tillögu sjálfstæðismanna. „Steinsteyptar götur slitna til muna hægar undan umferðarálagi og rannsóknir benda til að við slit þess leysist mun minna svifryk úr læðingi en við akstur á malbikuðum götum. Slitmælingar á Íslandi hafa leitt í ljós að steypt slitlög slitni um það bil helmingi hægar en slitsterk malbikslög og séu því góður kostur við gatnagerð, að minnsta kosti á umferðarþungum götum,“ segja sjálfstæðismenn og bæta við að holótt malbik valdi skemmdum á bílum og skapi slysahættu. „Ljóst er að stofnkostnaður steypulagnar er hærri en malbiks. Á móti kemur að steypa endist mun lengur og því er líklegra að notkun hennar sé mun hagkvæmari til lengri tíma litið en malbiks.“ Samgöngustjóri bendir á að áður hafi komi fram sams konar hugmyndir. „Notkun á innlendu efni var ein ástæðan á meðan sement var framleitt á Akranesi,“ segir Ólafur og vísar til skýrslu frá árinu 2009. „Raunhæf dæmi sem tekin eru í umræddri skýrslu eru malbiki í hag.“Ólafur Björnsson samgöngustjóri Reykjavíkurborgar.Ólafur kveður umhverfisþætti eins og hávaða eða svifryk ekki hafa verið tekna inn í kostnaðarsamanburð. „Varðandi slitþol sýnir nýgerð rannsókn hér á landi að þáttur malbiks í svifryki mælist nú 15 prósent á 55 prósent fyrir tíu árum,“ segir samöngustjóri og nefnir að á árinu 2012 hafi svifryk farið átta sinnum yfir heilsuverndarmörk á mælistöð við Grensásveg. „Einungis tvö skipti voru rakin til umferðar.“ Þá segir samöngustjóri gerð slitlags skipta minna máli gagnvart mengun en áður. Hávaði og sót frá umferðinni sjálfri vegi þyngra. „Meta þarf vandlega ávinning og áhættu og gera tilraunir áður en ráðist er í að leggja steypt slitlög á götur í Reykjavík,“ segir í umsögn samgöngustjóra sem umferðar- og skipulagsráð samþykkti. „Raunhæf dæmi sem tekin eru í umræddri skýrslu eru malbiki í hag.“ Ólafur Björnsson samgöngustjóri Reykjavíkurborgar.
Mest lesið Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Innlent „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Innlent Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar Erlent Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Innlent „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Innlent „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Erlent Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu Innlent Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Innlent Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Erlent Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Innlent Fleiri fréttir „Við náðum í hnakkadrambið á þeim“ Flytur sig í starfi um 900 kílómetra Ekkert sem bendi til fækkunar fugla við Varmá Sjósundsmaður tilkynntur til lögreglu „Það jákvæða við þetta er að þeir verða hundeltir núna“ Árekstur við Seljalandsfoss Lést í umferðarslysi við Vík í Mýrdal Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“ Mótmæla hvalveiðum Leidd út í járnum eftir lögregluaðgerð í Skipholti Bergmál, biðlistar og bongóblíða Hafi ræst úr málum eftir martraðir um 1994 „Minnstu munaði að þetta yrði hennar hinsta ferð“ Þrjár alvarlegar líkamsárásir til rannsóknar: „Puttabrotinn á Sjallanum“ Undarlegt mál á Þingvöllum og þýsk öfgaöfl „Gekk kannski ekkert endilega hratt alltaf“ Sól úti um allt og hátt í sautján gráður Hafði fé af mótsgesti HR útskrifaði rúmlega sjö hundruð í dag Veggur af fólki mætti svöngum tónleikagestum „Þetta er stórmerkilegur áfangi“ Rútum ekið í forgangsakstri fram fyrir bílaröðina Maður á rafskútu rassskellti hlaupakonur Slysið austan við Vík var alvarlegt Bíll við bíl að Þingvöllum og umferð hreyfist hægt Aukin hætta á skriðum og grjóthruni Flugmaður féll í yfirlið við lendingu í Keflavík Til skammar að málið hafi sofnað í meðferð þingsins Fjöldi bíður niðurstöðu og stór stund á Þingvöllum Jensína Edda er Reykvíkingur ársins Sjá meira
Eins til tveggja ára bið eftir ADHD-greiningu: „Ekki spurning að þetta getur haft áhrif á vellíðan og námsárangur“