Hefur kreppan áhrif á námsárangur barna? Jónína Gunnarsdóttir skrifar 12. desember 2013 06:00 Niðurstöður voru nýlega kynntar úr Pisa-könnuninni sem gerð er á þriggja ára fresti og varð útkoma íslenskra barna menntamálaráðherra, Illuga Gunnarssyni, mikið áfall. Illugi vill í kjölfarið grandskoða menntakerfið og er það vel, en fleira þarf að skoða. Könnunin sýnir að íslensk börn hafa frá árinu 2000 verið að fara niður á við í les- og stærðfræðiskilningi. Aðeins hægði á þessu árið 2006 til 2009 en eftir það má sjá áberandi hnignum og við mælingu 2012 eru Ísland og Svíþjóð ásamt Mexíkó og Chile lökust af þeim 32 OECD-löndum sem mæld voru. Þegar útkoman var skoðuð eftir landshlutum komu Suðurnesin langverst út en þar var útkoman áberandi slökust. Hvað veldur því að Suðurnesin koma langverst út úr þessari mælingu þegar bornir eru saman landshlutar? Það á sér eflaust ýmsar skýringar en getur verið að langvarandi atvinnuleysi foreldra og fátækt hafi þar einhver áhrif? Rannsóknir sýna að börn sem alast upp við fátækt eiga erfiðara uppdráttar og kemur það niður á andlegri heilsu þeirra. Barnaverndartilkynningum í Reykjanesbæ og Sandgerði hefur farið fjölgandi undanfarin ár, sem gefur sterkar vísbendingar um að ástandið sé farið að bitna á börnunum. Í fréttatíma Bylgjunnar þann 3. desember var rætt við bæjarstjóra Reykjanesbæjar sem gat ekki leynt undrun sinni og sagðist vera mjög hissa á þessari niðurstöðu. Tveimur dögum áður hafði þó á forsíðu Fréttablaðsins verið vísað í skýrslu Barnaverndarstofu þar sem fram kom að á fyrstu 9 mánuðum þessa árs hafi barnaverndartilkynningar í Reykjanesbæ verið 50% fleiri en árið 2012. Hefur þeim farið fjölgandi jafnt og þétt eftir hrun og eru tilkynningar til Barnaverndar langflestar þaðan ef miðað er við fólksfjölda, en í Reykjanesbæ búa 14.200 manns og er heildarfjöldi barnaverndartilkynninga 8% af heildarfjölda tilkynninga á landsvísu. Þegar hlutfall barnaverndarmála á hver þúsund börn er notað sem mælistika var landsmeðaltalið 54,6 börn en í Reykjanesbæ var hlutfallið 80 börn.Áhrif fátæktar á börn Við megum ekki halda áfram að stinga höfðinu í sandinn og horfa fram hjá þeim vanda sem fátækt hefur á börnin. Það búa mörg börn við það að þurfa oft að hrekjast frá einum stað til annars vegna húsnæðisleysis foreldra og búa jafnvel í húsnæði sem ekki getur talist til mannabústaða. Það eru einnig til börn sem búa við það þegar líða fer á mánuðinn að ekki er til matarbiti á heimilinu því peningarnir duga ekki til. Jafnhliða fjölgun barnaverndartilkynninga hefur fjölgun bráðamála og tilvísana á Barna- og unglingageðdeild aukist ár frá ári og eru þar langir biðlistar. Er líklegt að börn sem upplifa tíða flutninga, langvarandi atvinnuleysi foreldra og það vonleysi og depurð sem það óhjákvæmilega hefur í för með sér fái þá uppörvun, umönnun og hvatningu sem þau þurfa til að standa sig vel í skóla? Eða getur verið að hluta af vanda barnanna megi rekja til þessara þátta? Að þessu sögðu tel ég að fleiri þættir en það sem gerist innan veggja skólans hafi áhrif á námsárangur barna. Þess vegna þarf samfélagið allt að hlúa betur að börnunum, sérstaklega þeim sem minna mega sín og eiga um sárt að binda. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvar eigum við heima? Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Já er uppgjöf og Nei er ekki nóg Ágústa Árnadóttir skrifar Skoðun Hversu lengi eigum við að bíða? Kristín María Birgisdóttir skrifar Skoðun Akkeri og trygging fyrir Ísland Gunnar Örn Gunnarsson skrifar Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks á Íslandi Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Mannréttindi eru ekki gjöf stjórnvalda Jón Þorsteinn Sigurðsson skrifar Skoðun Heilsuspillandi aðbúnaður fanga er dýrt stjórnunarlegt fúsk Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun 29. ágúst ‒ Fullveldið endurheimt? Jean-Rémi Chareyre skrifar Skoðun Fyrsta jáið skiptir máli Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Atvinnulífið ætti að vilja sjá samninginn Margrét Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar Skoðun Endalok einkalífsins: Hið alsjáandi auga Finnur Ágúst Ingimundarson skrifar Skoðun Að semja gegn sjálfum sér Gísli Hjálmtýsson skrifar Skoðun Ástæður þess að ég kýs NEI þann 29. ágúst Sigurður P. Sigmundsson skrifar Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Ég ætla að treysta komandi kynslóðum Margrét Sveinsdóttir skrifar Skoðun Hvernig er að eiga sæti við borðið Ásta Guðrún Helgadóttir skrifar Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar Skoðun Þjóðinni er að blæða út – og þetta á bara að reddast Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Hörmuleg húsnæðisstaða ungs fólks í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Pólitískir vindhanar sem vilja nú hafa afstöðu af þjóð Þórður Snær Júlíusson skrifar Skoðun „Við hefðum aldrei átt að ganga í ESB,“ sagði engin þjóð aldrei Eiríkur Ragnarsson skrifar Skoðun Bandaríkin Gunnar Björgvinsson skrifar Skoðun Bollaleggingar Sigurður Kári Kristjánsson skrifar Skoðun Höggdeyfir fyrir hverja? Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Ísland, já takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Já-sjá leiðir til Já-já Guðmundur Edgarsson skrifar Skoðun Hvernig tryggjum við börnum okkar framtíð á Íslandi? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Sjá meira
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun
Skoðun Afborgunarlaus lán eru ekki neyðarúrræði – svar við dritdreifingu Halldór Jörgen Olesen skrifar
Skoðun Upplýsingaóreiðan sem enginn virðist ætla að uppræta – opin spurning til Þorgerðar Hnikarr Bjarmi Franklínsson skrifar
Skoðun Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson skrifar
Skoðun Heimurinn brennur minna – en það er aðeins hálf sagan sögð hjá Lomborg Haukur Logi Jóhannsson skrifar
Skoðun Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson skrifar
Sumar án aðgerða Halla Gunnarsdóttir,Jakob Tryggvason,Andri Reyr Haraldsson,Eiður Stefánsson,Gunnar Sigurðsson,Óskar Hafnfjörð Gunnarsson Skoðun
Einkunnir sem ekki er hægt að treysta og foreldrar sem eiga að bera ábyrgð Sigvaldi Egill Lárusson Skoðun