Höfum á 20 árum sótt 200 milljónir evra til ESB Fréttaskýring: Óli Kristján Ármannsson skrifar 22. nóvember 2013 07:00 Á gagnvirku korti á upplýsingavefnum evropusamvinna.is er hægt að sjá alla styrki sem úthlutað hefur verið hér á landi undir formerkjum Evrópusamvinnu, sundurliðað eftir landshlutum og sveitarfélögum. Evrópustofa fjármagnaði gerð kortsins. Mynd/Skjáskot
Íslendingar hafa verið virkir og afkastamiklir þátttakendur í evrópskum samstarfsáætlunum síðustu áratugi. Fram kemur á nýopnuðum yfirlitsvef á slóðinni evropusamvinna.is að frá árinu 2000 og fram á þetta ár hafi verið úthlutað um 145 milljónum evra (rétt tæpum 24 milljörðum króna) til margvíslegra verkefna hér á landi. Eru þá ekki teknir með í reikninginn styrkir sem eftir á að ganga frá á árinu, en með þeim áætlar Rannsóknamiðstöð Íslands (Rannís) að styrkir ársins nemi 15 til 16 milljónum evra. Að þeim fjárhæðum meðtöldum væru styrkveitingar frá árinu 2000 komnar í tæpa 26 milljarða króna.Hallgrímur JónassonMynd/RannísBorgum inn í samstarfið Rannís stendur í dag fyrir „Uppskeruhátíð samstarfsáætlana ESB“ í Hafnarhúsinu við Tryggvagötu í Reykjavík þar sem eru til kynningar um 50 verkefni sem hlotið hafa styrki úr evrópskum áætlunum. Í kynningargögnum kemur fram að síðustu 20 ár hafi íslensk fyrirtæki, stofnanir, skólar, félagasamtök og einstaklingar fengið um 200 milljónir evra í styrki úr evrópskum áætlunum (tæpa 33 milljarðar króna), auk þess sem um 25 þúsund Íslendingar hafi verið á faraldsfæti um alla Evrópu við nám, störf og starfsþjálfun af ýmsu tagi. Á nýja Evrópusamvinnuvefnum er hægt að sjá yfirlit styrkjanna, skipt eftir landshlutum og sveitarfélögum, allt niður í einstök verkefni. Þá fer líka fram í dag þreföld opnunarráðstefna „nýrrar kynslóðar Evrópuáætlana“ til næstu sjö ára. Það eru rannsókna- og nýsköpunaráætlunin Horizon 2020; mennta-, æskulýðs- og íþróttaáætlunin Erasmus+; og kvikmynda- og menningaráætlunin Creative Europe. Hallgrímur Jónasson, forstöðumaður Rannís, segir að vissulega sé um háar fjárhæðir að tefla, en ekki megi gleymast að Íslendingar láti líka af hendi peninga í þessar áætlanir Evrópusambandsins. „Miðað við þjóðartekjur greiðum við fyrir okkar hlutdeild í samstarfinu,“ segir hann, en viðurkennir um leið að raunin hafi verið að mun meira hafi skilað sér af fjármunum til landsins en látnir hafi verið af hendi. „Okkur gengur það vel í þessu og alveg sérstaklega upp á síðkastið.“Fyrsta alhliða ritið um sauðfjárrækt á Íslandi sem kom út í haust var styrkt af menntaáætlun ESB.Sækjum þekkingu og aðstöðu Tilgangurinn sé hins vegar ekki að sækja meiri peninga en settir eru í samstarfið. „Tilgangurinn er að komast með þetta litla samfélag okkar í rannsóknarumhverfinu, þar sem starfa um 3.500 manns, í tengsl við alla vísindamenn í Evrópu.“ Hallgrímur bendir á að á Norðurlöndum einum séu vísindamenn 230 þúsund talsins. „Við erum náttúrlega að sækjast eftir því að komast í viðbótarþekkingu og viðbótaraðstöðu til þess að geta þróað bæði rannsóknir og nýsköpun hér á landi. Það er náttúrlega þungamiðjan í þessu.“ Ein birtingarmynd þess hversu vel íslenskum fræðimönnum hafi tekist að nýta sér áætlanir Evrópusambandsins segir Hallgrímur vera aukinn fjölda ritrýndra greina sem birst hafi í virtum alþjóðlegum tímaritum. „Þar er stöðugur vöxtur undanfarin ár og vöxtur umfram það sem gerist á Norðurlöndum sem við berum okkur saman við. Vöxturinn er mun meiri hér á landi.“ Þá segir Hallgrímur að fyrirtækjum hér á landi hafi gengið vel að nýta sér áætlanir ESB. Þar beri Íslensks erfðagreining þó höfuð og herðar yfir önnur, en fjórir fimmtu hlutar af úthlutunum til fyrirtækja hafa farið til fyrirtækisins. „En það er náttúrlega vegna þess að þeir vinna góða vinnu og eru yfirburðafyrirtæki á sínu sviði.“
Mest lesið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent Engin U-beygja hjá Play Viðskipti innlent Falsaði fleiri bréf Viðskipti innlent Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Viðskipti innlent Vilja „ósýnilegar“ stöðumælasektir burt Neytendur Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Viðskipti innlent Hætta við yfirtökuna Viðskipti innlent Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Viðskipti innlent „Ávísun á ánægjuleg viðskipti“ Samstarf Forstjóri X hættir óvænt Viðskipti erlent Fleiri fréttir Atli Óskar ráðinn rekstrarstjóri framleiðslu Engin U-beygja hjá Play Veitingamenn verulega óánægðir með eftirlitið Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Spá umtalsverðum samdrætti í byggingu nýrra íbúða Falsaði fleiri bréf Veltir því upp hvort eigendum hafi verið refsað fyrir að tjá sig Hætta við yfirtökuna Harpa og Linda ráðnar forstöðumenn Stærsti samruninn í áraraðir á borð Samkeppniseftirlitsins Sylvía Kristín ráðin forstjóri Nova Íslenskur pítsastaður í Kína: „Það verður skrítnara og skrítnara að segja frá þessu“ Farþegum til landsins fjölgaði um tuttugu prósent Kvika hafi grætt töluvert á því að hafna upphaflegum tilboðum „Sem betur fer eru aðrir fiskar í sjónum“ Arion og Kvika í samrunaviðræður Eyþór hættur sem framkvæmdastjóri Hopp Svona munu stækkuð Skógarböð og hótel líta út Skrautleg saga laganna hans Bubba Sætta sig ekki við höfnun Kviku Hagnaðist um tæpar sjötíu milljónir króna Lofar bongóblíðu við langþráð langborð Minnstu sparisjóðirnir sameinast Spá 2,2 prósent hagvexti í ár Trausti Sigurður og Jóhanna nýir forstöðumenn hjá VÍS Sorglegt að þurfa að hætta rekstri eftir 38 ár í Hveragerði Starbucks opnaði á Laugavegi í dag Krefja nýjan rektor um að skólinn fari að lögum Svikarar nýti sumarfrí til að blekkja fyrirtæki til að millifæra háar upphæðir EFTA-ríkin gera fríverslunarsamning við Mercusor-ríkin Sjá meira
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent
Hindranir í vegi þess að lífeyrissjóðirnir taki þátt í hernaðaruppbyggingu Evrópu Viðskipti innlent