Skólastjóri á eftirlaunum vinnur sjálfboðastarf á leikskóla Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 7. nóvember 2013 07:00 Gunnar aðstoðar leikskólakennara við að kenna börnunum lestur og skrift í gegnum alls kyns leiki á leikskólanum. Aðsend mynd „
Það eru endalausir nýir fletir til að upplifa og sjá,“ segir Gunnar Þór Jónsson sem starfar sem sjálfboðaliði á leikskólanum Tjarnarseli í Reykjanesbæ. Hann fór á eftirlaun síðasta vor eftir fjörutíu ára starf sem kennari og skólastjóri, nú síðast sem skólastjóri Heiðarskóla í Reykjanesbæ. „Þetta á sér langan aðdraganda. Konan mín hefur verið leikskólastjóri á Tjarnarseli í 18 ár. Þetta var einn af fyrstu leikskólunum sem fór markvisst í lestrar- og skriftarkennslu og ég hef fylgst með starfi þeirra lengi, bæði hjá konunni og svo barnabörnunum sem hafa komið nánast læs upp úr leikskólanum.“ Gunnar langaði að sjá hvernig unnið er með lestur, skrift og íslenskukennslu í leikskólanum og hjálpar til með lestrarkennslu fyrir elstu börn leikskólans fyrir hádegi alla virka daga. „Það er frábært að fylgjast með þeim og fá að taka þátt af fullum krafti. Svo get ég líka kannski lagt eitthvað til málanna. Það er líka alltaf gaman að vinna með börnum og fá að kenna þeim. Mín reynsla og áhugi liggur fyrst og fremst á sviði skólamála,“ segir Gunnar. Hann segir lítið mál fyrir þau hjónin að starfa saman. „Við höfum unnið mikið saman í gegnum tíðina en ég veit svo sem ekki hvernig það er fyrir hitt starfsfólkið að kallinn sé kominn í starfsmannahópinn.“ Gunnar þvertekur fyrir að hann hafi tekið að sér starfið af því að honum leiddist eftir að hann fór á eftirlaun. „Alls ekki. En mig hefur lengi langað til að taka þátt í verkefninu og loksins fékk ég tíma fyrir það.“Ragnhildur Sigurðardóttir, aðstoðarleikskólastjóri Tjarnarsels, segir krakkana hafa gaman af því að fá Gunnar við kennsluna.Aðsend myndRagnhildur Sigurðardóttir, aðstoðarleikstjóri Tjarnarsels, hefur stýrt lestrarkennslunni í leikskólanum og fagnar framlagi Gunnars. „Það er alveg yndislegt að fá hann hérna inn. Hann kennir okkur nýjar leiðir og hann kynnist leiðum leikskólans. Svo finnst börnunum óskaplega gaman að hafa hann með,“ segir Ragnhildur. Tjarnarsel hefur í tíu ár lagt áherslu á lestrarnám. Markmiðið er að styrkja sjálfstraust barnanna og sporna við sérkennslu í grunnskólum. Það er gert með því að kynna börnin fyrir lestri í gegnum leik og vekja forvitni þeirra.
Mest lesið Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Fleiri fréttir Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Ögurstund í kjaramálum og Marco Rubio í heimsókn Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Rubio: Ísland í miðjunni Sjá meira