Stjórnarflokkar enn taldir bera ábyrgð á efnahagshruni Erla Björg Gunnarsdóttir skrifar 28. október 2013 08:00 Kjósendur telja viðskiptabankana bera mesta ábyrgð á efnahagshruninu Mynd/Vilhelm Gunnarsson „
Sýn Íslendinga á það hverjir ollu hruninu hefur ekki breyst frá árinu 2009 til 2013. En þeim virðist að einhverju leyti vera runnin reiðin því nú telur fólk alla aðila bera minni ábyrgð en árið 2009,“ segir Hulda Þórisdóttir lektor í stjórnmálafræði við Háskóla Íslands. Hulda kannaði hverjum Íslendingar kenna um efnahagshrunið og er rannsóknin unnin úr íslensku kosningarannsókninni sem gerð er eftir hverjar Alþingiskosningar. Hún sýnir að kjósendum finnst viðskiptabankarnir, Fjármálaeftirlitið, Seðlabanki, Sjálfstæðisflokkur og ríkisstjórn Geirs H. Haarde bera mesta ábyrgð á hruninu, bæði árið 2009 og 2013. Það sýnir að kjósendur hafa engu gleymt og finnst stjórnarflokkarnir enn bera töluverða ábyrgð. Út frá þeim niðurstöðum rannsakaði Hulda næst af hverju Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur voru engu að síður kosnir aftur til valda árið 2013.Hulda ÞórisdóttirMynd/Daníel„Árið 2009 kaus fólk út frá liðnum atburðum og það var brostið traust. Árið 2013 kaus fólk upp á framtíðarvæntingar. Samkvæmt rannsókninni fannst kjósendum skuldavandi heimilanna vera mikilvægasta pólitíska verkefnið fyrir kosningarnar og kjósendur voru jafnframt mjög ánægðir með framgöngu Framsóknarflokksins í Icesave-málinu. Þannig að flokkurinn var með kosningaloforð sem rímaði við væntingar kjósenda og þar að auki ákveðinn trúverðugleika eftir Icesave,“ segir Hulda. Samkvæmt niðurstöðum Huldu fannst kjósendum allra flokka viðskiptabankarnir bera mesta ábyrgð. En kjósendur Sjálfstæðisflokksins eru þó líklegastir til þess að leita utanaðkomandi orsaka og kenna aðstæðum á erlendum mörkuðum og erlendum fjárfestum um efnahagshrunið. Kjósendur Vinstri grænna setja aftur á móti almennt meiri ábyrgð á hina ýmsu aðila og þá sérstaklega innlenda aðila og stofnanir.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Innlent Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Innlent Endurgreiðir ekki ríkinu fyrir auglýsingarnar umdeildu Erlent Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Erlent Biskup í fangelsi fyrir brot gegn drengjum Erlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Fleiri fréttir Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Ólíklegt að pestin berist til Íslands Óþolinmæði að fylla Læknavaktina Ekkert leyndarmál að herinn sé önnum kafinn Greinir skýran vilja til meira samstarfs Leggja fram þingmál um að draga umsóknina til baka Engar leyniskyttur gættu Rubio Hafnar sælgætis- og fæðingarorlofsmálum sem rökum fyrir bókun 35 Bíði og bíði eftir Bjarna Leita manna sem grunaðir eru um hópárás Hafi þegar tryggt fjármögnun varamótoranna Guðmundur Fertram og Fanney opna nýsköpunarsetur Segir gjald fyrir túlkun eftir þrjú ár sanngjarna kröfu „Viljum ekki að það sé verið að leika sér að fullveldi Íslands“ Ný skýrsla Umhverfis- og orkustofnunar: Hverfandi líkur á að olía finnist á Drekasvæðinu Rubio farinn af landi brott Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Leit að eftirmanni Harðar hefði hafist í haust eða vetur Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Samtalið efnismeira en áður þó talsverð gjá sé á milli Einn í framboði til varaformanns enn sem komið er Sjá meira