Nýta gögn úr skattaskjólum við rannsóknir Haraldur Guðmundsson skrifar 8. október 2013 06:45 Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri var á meðal fyrirlesara á málþingi um skattaskjól í Norræna húsinu í gær. Fréttablaðið/Arnþór.
Samningar Norðurlandanna um upplýsingaskipti við aflandssvæði hafa í nokkrum tilvikum styrkt rannsóknir skattayfirvalda á málum hér á landi. Skattrannsóknarstjóri segir löndin standa vel að vígi í baráttunni gegn skattaskjólum. Gögn sem hafa fengist í gegnum samninga Norðurlandanna um upplýsingaskipti við svonefnd skattaskjól hafa í nokkrum tilvikum styrkt rannsóknir skattayfirvalda á málum hér á landi. Norðurlöndin hafa gert fleiri slíka samninga en nokkur önnur ríki, að Bandaríkjunum undanskildum, og standa því vel að vígi í baráttunni gegn skattaskjólum. Þetta segir Bryndís Kristjánsdóttir skattrannsóknarstjóri en hún var á meðal fyrirlesara á málþingi um skattaskjól í Norræna húsinu í gær. Þar kom meðal annars fram að af þeim 43 samningum sem Norðurlöndin hafa gert eru átján í gildi hér á landi. Þeir hafa skilað skattayfirvöldum mikilvægum gögnum frá þekktum skattaskjólum eins og Jómfrúaeyjum og Belís. „Þar erum við hins vegar að glíma við það vandamál að mikilvægar fjárhagsupplýsingar, svo sem bókhaldsgögn eða gögn um ársreikninga, eru oft ekki til í þessum löndum. Af þeim sökum hafa samningarnir ekki skilað jafn miklum árangri og þeir annars gætu,“ segir Bryndís. Í þessu sambandi segir Bryndís rétt að geta þess að Efnahags- og framfarastofnunin, OECD, athugar þessa dagana hvort fullnægjandi kröfur séu gerðar innan þessara ríkja þegar kemur að söfnun mikilvægra fjárhagsupplýsinga. Bryndís bendir einnig á að flest mál sem hafa komið inn á borð skattrannsóknarstjóra frá hruni tengjast fjármunafærslum í gegnum Lúxemborg, þar sem bankaleynd er enn rík. „Það er svolítið sérstakt við Ísland hvað þessi skattaskjólsmál eru tengd Lúxemborg því í öðrum löndum dreifast málin á mun fleiri lönd.“ Spurð hvort íslensk stjórnvöld geti í gegnum áðurnefnda samninga lagt fram lista af einstaklingum sem grunaðir eru um að eiga bankareikninga eða félög í skattaskjólum og fengið upplýsingar um þá segir Bryndís málið ekki svo einfalt. „Við verðum að óska eftir upplýsingum eftir einstökum málum og höfum ekki heimildir til að afla upplýsinga um allt og alla,“ segir Bryndís Kristjánsdóttir.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fleiri fréttir SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Jafnréttisstofa sver af sér ábyrgð Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Bein útsending: Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Einn handtekinn eftir líkamsárás í Kópavogi Framlengja samninga út næsta ár Margrét hyggst kæra til Mannréttindadómstóls Evrópu Segja boltann hjá stjórnvöldum Sjá meira