Innlent

Þyrnirósarunnar stinga leikskólabörn

Valur Grettisson skrifar
Börnin í Álftaborg stinga sig á rósarþyrnum.
Börnin í Álftaborg stinga sig á rósarþyrnum. Fréttablaðið/Pjetur
Borgarráðsfulltrúar Sjálfstæðisflokks vilja láta fjarlægja þyrnirósarunna af lóð leikskólans Álftaborg við Safamýri sem fyrst.

Á síðasta borgarráðsfundi beindu sjálfstæðismenn því til skrifstofu framkvæmda og viðhalds að runnarnir yrðu teknir hið fyrsta. Ástæðan er sú að runnarnir hafa valdið meiðslum á börnum. Þá verði athugað hvort unnt sé að bæta aðstæður á umræddri lóð fyrir yngstu börnin í leikskólanum. Málinu var frestað.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×