Fá iPhone til Íslands eftir krókaleiðum Þorgils Jónsson skrifar 24. september 2013 08:30 Fjöldi fólks lagði leið sína upp í verslun Nova í gær þar sem sala hófst á nýju iPhone-símunum. Fréttablaðið/Daníel
Enginn þeirra sem selur iPhone-síma frá Apple hér á landi kaupir símana beint frá Apple, heldur í gegnum milliliði, annaðhvort hér eða erlendis. Nova, Síminn og Epli.is hófu í gær sölu á nýju iPhone-símunum, 5c og 5s. Apple er ekki með formlegt umboð hér á landi fyrir iPhone. Þó er Epli.is með umboð fyrir tölvur og iPad, og þjónustuumboð fyrir aðrar vörur. „Markaðurinn hér á landi hefur bara þótt of lítill hingað til,“ segir Bjarni Ákason, framkvæmdastjóri Epli.is, sem hefur þurft að nálgast tæki á svipaðan hátt og aðrir íslenskir söluaðilar. Bjarni bætir þó við aðspurður að yfir 40.000 iPhone-símar séu í notkun hér á landi. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins hafa íslenskar verslanir því reitt sig á aðila sem kaupa síma erlendis, jafnvel yfir afgreiðsluborðið í smásöluverslunum.Bjarni ÁkasonMögulegt er að breyting verði þar á á næstunni þar sem heimildir Fréttablaðsins herma að einhver símafyrirtækjanna hér á landi hafi verið í þreifingum við Apple um að kaupa inn beint frá fyrirtækinu og mögulega muni draga til tíðinda í þeim málum á næstunni. „Mig grunar að eitthvað fari að gerast í þeim málum,“ segir Bjarni. Liv Bergþórsdóttir, framkvæmdastjóri Nova, segir í samtali við Fréttablaðið að fyrirtækið sé með sína birgja í þessum málum. Þetta sé hefðbundin aðferð og símafyrirtæki selji oft búnað til annarra. Hrannar Pétursson, framkvæmdastjóri samskiptasviðs Vodafone, segir þess stutt að bíða að nýju iPhone-símarnir komi í sölu hjá þeim. „Þetta er dagaspursmál,“ segir hann og bætir við aðspurður að hingað til hafi Vodafone keypt sína síma bæði af aðilum hérlendis og erlendis. „Við látum það bæði ráðast af verði og framboði á hverjum tíma.“ Hrannar segir aðspurður um hvort ekki mætti vænta lægra útsöluverðs hér á landi ef hægt væri að kaupa beint frá Apple og sleppa þannig við milliliðinn að svo þurfi ekki að vera. „Það er ekkert sjálfgefið að innkaupsverð til okkar myndi lækka við það að kaupa beint frá Apple.“
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira