Bæjarstjóri klökknaði er sást í Grundarfjörð Garðar Örn Úlfarsson skrifar 23. september 2013 07:00 Alda Hlín Karlsdóttir, menningarfulltrúi Grundarfjarðar, við skiltið með franska undirnafninu á Hrannarstíg. Mynd/ Tómas Freyr Kristjánsson „
Þessi tengsl eiga sérstaklega djúpar rætur í hugum Frakkanna,“ segir Alda Hlín Karlsdóttir, menningarfulltrúi Grundarfjarðar, um nýlega heimsókn sendinefndar franska vinabæjarins Paimpol. Grundarfjörður og Paimpol tóku upp vinabæjarsamband fyrir tíu árum en tengsl þeirra ná hins vegar allt aftur til átjándu aldar er sjómenn frá Paimpol sigldu til þorskveiða við Íslandsstrendur. Talið er að allt að þrjú þúsund menn frá Paimpol hafi týnt lífi í þessum ábatasömu en áhættusömu leiðöngrum. „Franski bærinn byggist upp á auði héðan úr Grundarfirði. Þeir eru miklu meðvitaðri um tengsl bæjanna og vináttan er þeim afar dýrmæt. Þetta ætlum við að styrkja enn frekar og efla,“ segir Alda Hlín. Sendinefnd úr Grundarfirði fór utan í mars þar sem Alda Hlín kveður höfðinglegar móttökur hafi beðið Íslendinganna. Um þar síðustu helgi endurguldu Frakkarnir heimsóknina. Auk þess sem formlegt vinabæjarsamband hefur verið með bæjunum í tíu ár, sem nú var haldið sérstaklega upp á, er sjálfstætt starfandi vinafélag milli íbúa í bæjunum, Grundapol.Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, Anne Smith, opinber listamaður franska sjóhersins, Einar K. Guðfinnsson, forseti Alþingis, Lionel Tardy, þingmaður frönsku útlendingadeildarinnar, Marc Bouteiller, sendiherra Frakka á Íslandi, Björn Steinar Pálmason, bæjarstjóri Grundarfjarðar, Annie Mobuchon, staðgengill bæjarstjóra Paimpol og Jean-Yves de Chaisemartin, bæjarstjóri Paimpol. Mynd/GrundarfjörðurBæjarstjóri Paimpol, Jean-Yves de Chaisemartin, fór fyrir Frökkunum sem heimsóttu Grundarfjörð. Þeir hlýddu meðal annars á sinfóníutónleika frönsk-íslensku vinabæjarhljómsveitarinnar FIFO á sunnudag og farið var í hringferð um Snæfellsnes. „Þegar við komum akandi til baka og sást í Grundarfjörð þá klökknaði franski bæjarstjórinn er honum varð hugsað til sögunnar sem tengir bæina saman. Íslandsferðirnar voru gríðarleg blóðtaka fyrir Paimpol en byggðu jafnframt upp bæinn á þeim tíma.“ Auk þess sem Eldfjallasafnið var heimsótt og bragðað á hákarli í Bjarnarhöfn var bæjarstjóranum gefin eftirmynd af franskri fallbyssu sem fannst við Kirkjufell. Síðast en ekki síst fékk gatan Hrannarstígur undirnafnið Rue de Paimpol í virðingarskyni við gestina. Í Paimpol er reyndar gata sem ber heitið Rue des Islandais Grundarfjörður.
Mest lesið Telur Thomas Møller hafa fengið tækifæri til að eyða sönnunargögnum Innlent Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Innlent Fór í skólann og búið að farga dekkjastæðunni þegar heim var komið Innlent Kennarar boða tíðindi Innlent SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Innlent Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Innlent Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Innlent Framlengja samninga út næsta ár Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Innlent Fleiri fréttir Hringdi inn þegar konan reyndist gift öðrum manni Tugmilljóna gjaldþrot félags fíkniefnasmyglara „Við erum að gefa boltann upp“ Þétta samstarfið í útnorðri „Við erum tilbúin að skoða lengingu skólaársins“ Bein útsending: Blaðamannafundur Kristrúnar, Beinis og Jens Frederik SA á leið í árshátíðarferð á meðan klukkan tifar í kjaradeilu Sver af sér ábyrgð á rannsókn um karlmennsku Bílvelta á Vesturlandsvegi Sauð upp úr þegar Ragnar kallaði orð Ásgeirs óábyrg Verða að viðurkenna barn getið með staðgöngumæðrun Segir „gerviþak“ breyta litlu um „ryksugu“ Rúv Viðræður VR við SA á leið inn „blindgötu“ Tímarit eigi hvergi stað og fái enga styrki Segir fjölmiðlanefnd stjórnlausa og sektaóða Geti reynst erfitt að standa við verðlagsloforðin Hvetur flokka til að afla leyfa fyrir tónlist í pólitískum áróðri Rubio hafi staðfest varnarskuldbindingar gagnvart Íslandi Breyti myndböndum af börnum að borða og dansa í barnaníðsefni Kennarar boða tíðindi Nóg að spyrja þá sem þurfa að borga launin Sex atvinnulausir um hvert laust starf Bein útsending: Áskoranir á norðurslóðum Glapræði að hafna væntanlegri launahækkun Kjarabarátta kennara bitni á námi barnanna Sólveig Anna segir glapræði að segja upp samningum Leigubremsan „augljóslega mjög heimskuleg“ Þurfi að bæta eftirlit í stað þess að meina au pair aðgang Fundur VR og SA hafinn Samkomulagið hafi ekki áhrif á viðræður VR Sjá meira