Ásgeir eyðir Trausta Kristjana Arnarsdóttir skrifar 21. júní 2013 09:00 „
Í rauninni er þetta bara út af því að Ásgeir Trausti þykir of erfitt í framburði fyrir alla sem ekki eru frá Íslandi,“ segir tónlistarmaðurinn vinsæli Ásgeir Trausti Einarsson, sem framvegis verður einungis þekktur undir listamannsnafninu Ásgeir á erlendri grundu. Þá hefur Ásgeir Trausti fjarlægt Trausta-nafnið á aðdáendasíðu sinni á Facebook og á Youtube-rás sinni. „Þetta voru hugmyndir sem voru alltaf á lofti en við ákváðum að kýla á þetta núna áður en það yrði of seint.“ En ertu ekki orðinn of þekktur sem „Ásgeir Trausti“ til þess að hægt sé að breyta nafninu?„Nei, blessuð vertu. Ég hugsa að ég haldi mig nú við Trausta-nafnið hér á Íslandi, án þess að ég sé mikið að spá í þetta. Ég hugsa að það nafn sé orðið frekar fast. En svona áður en við förum á fullt úti ákváðum við bara að breyta þessu aðeins og hafa þetta einfaldara.“ Spurður að því hvort það hafi ekki verið skemmtilegt að heyra útlendingana gera tilraunir með framburð á hinu íslenska nafni, segir Ásgeir svo hafa verið. „Það var virkilega skemmtilegt. Það komu alls konar útfærslur af nafninu og oftast hef ég bara þurft að bera það fram sjálfur.“ Það er nóg að gera hjá tónlistarmanninum um þessar mundir, en von er á enskri útgáfu plötunnar „Dýrð í dauðaþögn“. „Við erum að æfa mikið núna og erum á leiðinni til Parísar á mánudaginn að hita upp fyrir Of Monsters and Men. Við verðum úti frá mánudeginum og alveg til 22. júlí. Á þessu tímabili munum við spila á hinum ýmsu tónlistarhátíðum og upphitunargiggum með Of Monsters.“Dýrð í dauðaþögn.Söluhæsta frumraunin Ásgeir Trausti gaf út fyrstu plötu sína, Dýrð í dauðaþögn, í september á síðasta ári. Platan seldist í um 22 þúsund eintökum fyrir jólin og hefur engin önnur frumraun selst jafn vel á útgáfuári sínu hér á landi. Upptökum á enskri útgáfu plötunnar er lokið en sú plata ber heitið In the Silence. Það var tónlistarmaðurinn John Grant sem þýddi texta plötunnar yfir á ensku.
Mest lesið Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Lífið Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Lífið Ranglega greind með MS-sjúkdóm Lífið Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Lífið Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Lífið Harry vill sættast við fjölskylduna Lífið Opna „líklega minnsta“ tveggja hæða gallerý í heimi Menning Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Lífið Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Lífið Verður að geta hent sér í hnébeygju Tíska og hönnun Fleiri fréttir Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Diljá Mist á lausu Stjörnulífið: Hannes heppinn með Diego Crawford minnist sonarins Pattra og Brynjar slá sér upp Eignar Ingu Sæland plötutitilinn „Ég held að maður megi semja svona við móður sína” Hefur beðið í fjögur ár eftir að frændinn afpláni dóm sinn Krakkatía vikunnar: Iceguys, Höfði og langimangi Siggi Bond og Birta Huld trúlofuð Bjóst ekki við svari strax og hvað þá frá Króatíu Örn Árnason fimmti keppandinn í Taskmaster „Þvílík gleði með þennan tíma“ Sjá meira