Gleðilegan Fjölmenningardag! Margrét Sverrisdóttir skrifar 11. maí 2013 07:00 Í dag, laugardaginn 11. maí, er Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar haldinn hátíðlegur í fimmta sinn. Markmiðið með hátíðarhöldunum er að fagna þeirri fjölbreyttu menningu sem borgarsamfélagið býður upp á og hlutverk fjölmenningardagsins er öðru fremur að fagna borgarbúum af ólíkum uppruna sem eiga fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn. Samfélag og menning eru síbreytileg og þróast í takt við tímann og íslenskt samfélag og innflytjendur mætast með samtakamætti og gleði í þessum hátíðarhöldum.Fjöldi sjálfboðaliða Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar ásamt fulltrúum úr fjölmenningarráði hafa sinnt undirbúningi Fjölmenningardagsins af miklum krafti ásamt fjölda sjálfboðaliða. Fjölmenningardagurinn hefur öðlast sess í hugum borgarbúa og ár frá ári hefur þátttakan aukist í hátíðahöldunum. Í ár er metþátttaka á markaðinum sem haldinn verður í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem sýnir hversu mikill áhugi er meðal borgarbúa að kynna ólíka menningarheima með ýmsum varningi og matargerð. Íbúar klæðast skrautlegum búningum og borgin iðar af lífi.Markaður opinn öllum Að venju hefst hátíðin með skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju að Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar verður markaður, öllum opinn, þar sem kynnt verður handverk, hönnun og matur frá ýmsum löndum. Skemmtidagskrá verður í næsta húsi, Tjarnarbíói og afrískir tónleikar í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, þar sem hljómsveitin The Bangoura Band leikur fyrir dansi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Fyrir hönd mannréttindaráðs Reykjavíkur hvet ég alla borgarbúa til að taka virkan þátt í hátíðinni og njóta alls þess sem hún hefur upp á að bjóða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Halldór 13.06.2026 Halldór Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson Skoðun Skoðun Skoðun Reiður Hjólabúi Geirdís Hanna Kristjánsdóttir skrifar Skoðun Þegar jafnrétti verður skýringin á vanlíðan karla Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Hafa íslenskir neytendur lakari rétt en evrópskir? Arngrímur Stefánsson skrifar Skoðun Hagfræði almennings Guðmunda G. Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Veit „óvinur númer eitt“ að hann er númer eitt? Jón Steinar Sæmundsson skrifar Skoðun Að loka augunum fyrir hinu augljósa skrifar Skoðun Færeyingar eru ekki í ESB en… Sigurður Steinar Ásgeirsson skrifar Skoðun Mikilvægar staðreyndir um lög um brottfararstöð Jóhannes Óli Sveinsson skrifar Skoðun Upplýsingaóreiða ráðherra Hörður Þorsteinsson skrifar Skoðun Öll trixin í bókinni Árni Guðmundsson skrifar Skoðun Dagur í lífi Íslendinga árið 2040 Haukur Logi Jóhannsson skrifar Skoðun Skólafrí - skelfing eða sæla Fjalar Freyr Einarsson skrifar Skoðun Sagan um afganginn sem hvarf Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Að senda kjósendum fingurinn Atli Bollason skrifar Skoðun Hver ertu þegar þú réttlætir að barn sé lokað inni? Jasmina Vajzović Crnac skrifar Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Skynsemi fremur en upphrópanir í útlendingamálum Sævar Þór Jónsson skrifar Skoðun Já, tökum okkur Færeyinga til fyrirmyndar Hjörtur j. Guðmundsson skrifar Skoðun Að gefast upp Haraldur Eiríksson skrifar Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar Skoðun Við þurfum ekki ESB – eða hvað? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Það er verið að efla framhaldsskóla og verkmenntun Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Seiðkarlar fyrri alda Steingrímur Gunnarsson skrifar Skoðun Hverjir borga brúsann? Franklín Ernir Kristjánsson skrifar Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar Skoðun Hvað varð um gangbrautirnar? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Misskilningur: RÚV, Silfrið og meint hlutdrægni Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Árnar eru ekki hreinsistöð fyrir sjókvíaeldi Brynjar Arnason skrifar Skoðun Þarf vinnuskóli að vera vesen? Íris Róbertsdóttir skrifar Sjá meira
Í dag, laugardaginn 11. maí, er Fjölmenningardagur Reykjavíkurborgar haldinn hátíðlegur í fimmta sinn. Markmiðið með hátíðarhöldunum er að fagna þeirri fjölbreyttu menningu sem borgarsamfélagið býður upp á og hlutverk fjölmenningardagsins er öðru fremur að fagna borgarbúum af ólíkum uppruna sem eiga fjölbreyttan menningarlegan bakgrunn. Samfélag og menning eru síbreytileg og þróast í takt við tímann og íslenskt samfélag og innflytjendur mætast með samtakamætti og gleði í þessum hátíðarhöldum.Fjöldi sjálfboðaliða Mannréttindaskrifstofa Reykjavíkurborgar ásamt fulltrúum úr fjölmenningarráði hafa sinnt undirbúningi Fjölmenningardagsins af miklum krafti ásamt fjölda sjálfboðaliða. Fjölmenningardagurinn hefur öðlast sess í hugum borgarbúa og ár frá ári hefur þátttakan aukist í hátíðahöldunum. Í ár er metþátttaka á markaðinum sem haldinn verður í Ráðhúsi Reykjavíkur, sem sýnir hversu mikill áhugi er meðal borgarbúa að kynna ólíka menningarheima með ýmsum varningi og matargerð. Íbúar klæðast skrautlegum búningum og borgin iðar af lífi.Markaður opinn öllum Að venju hefst hátíðin með skrúðgöngu frá Hallgrímskirkju að Ráðhúsi Reykjavíkur. Þar verður markaður, öllum opinn, þar sem kynnt verður handverk, hönnun og matur frá ýmsum löndum. Skemmtidagskrá verður í næsta húsi, Tjarnarbíói og afrískir tónleikar í Listasafni Reykjavíkur í Hafnarhúsinu, þar sem hljómsveitin The Bangoura Band leikur fyrir dansi. Aðgangur er ókeypis og allir velkomnir meðan húsrúm leyfir. Fyrir hönd mannréttindaráðs Reykjavíkur hvet ég alla borgarbúa til að taka virkan þátt í hátíðinni og njóta alls þess sem hún hefur upp á að bjóða.
Skoðun Hver borgar þegar ríkið tekur yfir heilbrigðiseftirlitið? Ásmundur E. Þorkelsson,Hörður Þorsteinsson,Sigrún Guðmundsdóttir skrifar
Skoðun Draghi-skýrslan og Ísland: framleiðni, samkeppnishæfni og kostnaður krónunnar Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Fullveldið er undirstaða sveigjanleikans: Hvers vegna EES-samstarfið dugar okkur Kristinn Karl Brynjarsson skrifar
Skoðun Þegar rekstrarkröfur grafa undan faglegu starfi í þverfaglegri endurhæfingu Gunnhildur L. Marteinsdóttir skrifar