Mengun frá stóriðju komin að mörkum Svavar Hávarðsson skrifar 8. maí 2013 07:00 Það takmarkar uppbyggingu að styrkur brennisteinstvíoxíðs við jaðar þynningarsvæðisins hefur náð þolmörkum. Mynd/Faxaflóahafnir
Uppbyggingu frekari starfsemi á iðnaðarsvæðinu á Grundartanga eru settar skorður og mun að óbreyttu takmarkast við lítil fyrirtæki. Styrkur brennisteinstvíoxíðs innan þynningarsvæðis loftmengunar fyrir Norðurál og járnblendiverksmiðju Elkem hefur náð þolmörkum. Þetta er meðal þess sem kemur fram í úttekt óháðra sérfræðinga um umhverfisáhrif stóriðjunnar á Grundartanga sem var kynnt í gær. Skýrslan var unnin að frumkvæði Faxaflóahafna sf. sem landeiganda á Grundartanga. „Það hefur ríkt ákveðin tortryggni; ákveðnar grunsemdir um það að mengun, til dæmis flúormengun, sé meiri en mælingar fyrirtækjanna gefa til kynna,“ sagði Hjálmar Sveinsson, formaður stjórnar Faxaflóahafna, og sagði að þess vegna hefði verið ráðist í úttektina. Hann taldi vinnuna mikilvæga því nú væri óþarfi að rífast um staðreyndir mála og jafnframt að framtíðaráætlanir Faxaflóahafna og sveitarfélagsins lytu að því að lítil fyrirtæki bætist í hóp þeirra tíu fyrirtækja sem þar eru fyrir. „Þá er mikilvægt að hafa rannsókn sem á að vera hafin yfir allan vafa, svo við vitum hvaða fyrirtækjum við getum hleypt inn á svæðið,“ sagði Hjálmar. Guðjón Jónsson, efnaverkfræðingur hjá VSÓ ráðgjöf og formaður starfshópsins, tiltók það helst við kynningu niðurstaðna rannsóknarinnar að þolmörkum væri náð á þynningarsvæðinu á Grundartanga hvað varðaði styrk brennisteinstvíoxíðs frá álveri Norðuráls og járnblendiverksmiðju Elkem. Kemur fram í skýrslunni að kvaðir í reglugerð um mengun brennisteinstvíoxíðs eru ekki uppfylltar. Á þetta við um ákvæði um sólarhringsgildi fyrir gróðurverndarmörk en það gildi hefur mælst 21 sinni yfir leyfilegum mörkum en má fara sjö sinnum yfir mörk á ári. Sólarhringsgildi fyrir heilsuverndarmörk hefur einu sinni farið yfir hámarksgildi, en má fara þrisvar yfir mörk á ári. Í því samhengi vakti Guðjón athygli á því að kröfur til iðjuveranna í starfsleyfum væru sambærilegar því sem gerist annars staðar. „Í einhverjum tilfellum eru þær strangari hér á landi en þær birtast í Evróputilskipunum,“ sagði Guðjón og bætti við að vöktun umhverfisins gæfi skýra mynd af umhverfisálaginu á Grundartanga, og ekki væri ástæða til að efast um eftirlitið eða þann mengunarvarnabúnað sem nýttur er af fyrirtækjunum.
Mest lesið Nærri því áttatíu borgarar liggja í valnum Erlent Ætla að streyma aftöku í beinni Erlent „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Innlent Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Innlent Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Innlent Máttu tæma lónið Innlent Vonar að Ísraelar hafni Netanjahú Erlent Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Innlent Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Innlent Konan sem var borin út er látin Erlent Fleiri fréttir Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Bein útsending: Forsætisráðherra boðar til blaðamannafundar Dagskrá aflýst í dag og óljóst hvernig ræðukeppnin fer fram Loftslagstilraun hefst í Hvalfirði á næstu dögum Margrét Löf í sextán ára fangelsi en heldur föðurarfinum Veitingamaður sektaður um tvö hundruð milljónir Ekki rétt sem Halla segir Hefja formlegar viðræður um myndun nýs meirihluta Íslensk nóbelsverðlaun og erfið staða framhaldsskólanna Vill fækka borgarfulltrúum um átta Lögreglan leitar upplýsinga um rispaða bíla Fjármálaráðherra flautaður niður af sviði Kristrún reyni að hafa milligöngu í deilunni Ekki eigi að refsa fólki fyrir að hafa stutt á milli barna Nemendur í Reykjavík koma best út úr PISA Kristrún og Þorgerður sækja ekki Hringborð norðurslóða Kjaravaktin: Samkomulag í höfn á elleftu stundu Draumur reiðhjólaviðgerðarmannsins rættist Áreitti tíu ára stúlku ítrekað í fjóra daga Kveikja og slökkva á ljósastaurum vegna bilunar Bein útsending: Fjármálaráðstefna sveitarfélaga 2026 Hafi ekki „fært sig eina litla tommu“ Ráðherra lét henda þeim út þegar rætt var um Heiðarfjall Kjaftshögg, blys og hrákur á VÍ - MR Samþykktu að slíta kjarasamningum Sjá meira