Innlent

Ráðstafa milljörðum úr ráðherrastólunum

Kolbeinn Óttarsson Proppe skrifar
Ráðherrar eru gjarnir á að semja um útgjöld fyrir ríkissjóð síðustu vikur fyrir kosningar, þegar þeir eru lausir undan fjárveitingarvaldi Alþingis.
Ráðherrar eru gjarnir á að semja um útgjöld fyrir ríkissjóð síðustu vikur fyrir kosningar, þegar þeir eru lausir undan fjárveitingarvaldi Alþingis.
Hvað hefur ríkisstjórnin samið um há útgjöld síðan þingi var frestað?

Ríkisstjórnin og einstaka ráðherrar hafa samið um útgjöld fyrir hönd ríkissjóðs sem hlaupa á milljörðum króna frá því að Alþingi var frestað 28. mars.

Nokkuð erfitt er að henda nákvæmlega reiður á upphæðinni, þar sem ekki er ljóst hver kostnaður verður að fullu við ókeypis tannlækningar fyrir börn fyrr en í janúar 2018. Frá þeim tíma verður hann 1,5 milljarður króna á ári.

Að barnatannlækningum slepptum er stærsti einstaki útgjaldaliðurinn aðgerðir í þágu yfirveðsettra heimila að meðtöldum lánsveðslánum. Kostnaðurinn af þeirri aðgerð er óljós, en sé miðað við kostnað við 110 prósent leiðina er áætlað að kostnaðurinn verði 1,5 til 2,5 milljarðar króna.

Þá hefur ríkisstjórnin samþykkt að heimila Íbúðalánasjóði að lána Félagsstofnun stúdenta 1.260 milljónir króna, en ríkissjóður mun niðurgreiða lánið sem nemur mismuninum á 3,5 prósenta vöxtum og almennum útlánsvöxtum sjóðsins.

Rétt er að taka það fram að í nokkrum tilvikum er um reglubundin útgjöld að ræða. Innanríkisráðherra hefur tilkynnt um viðbótarframlag til lögreglunnar vegna rannsókna á skipulagðri brotastarfsemi í apríl undanfarin ár.

Ögmundur Jónasson innanríkisráðherra og Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra eru duglegastir að gera samninga um útgjöld. Innanríkisráðherra hefur gert þrjá slíka upp á 268 milljónir króna og staðið að þeim fjórða, ásamt velferðar- og forsætisráðherra sem nemur 79 milljónum króna.

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur staðið einn að einum slíkum samningi, en það er fyrrnefndur samningur vegna tannlækninga barna. Þá var það að tillögu hans að ríkisstjórnin samþykkti lánið til Félagsstofnunar stúdenta sem og að ráðstafa 250 milljónum króna úr Atvinnuleysistryggingasjóði í átaksverkefni um sumarstörf fyrir námsmenn.

Ögmundur og Guðbjartur eru síðan í ráðherranefndinni sem skrifaði undir viljayfirlýsingu um aðgerðir vegna lánsveðslána, ásamt Katrínu Júlíusdóttir fjármálaráðherra og Steingrími J. Sigfússyni atvinnuvegaráðherra.

Rétt er að taka það fram að útgjöld vegna tannlækninga barna er að finna í fjárlögum ársins 2013. Það breytir þó ekki heildartölunni varðandi samþykkt útgjöld eftir að þingi var frestað, sem er 3,4 til 4,4 milljarðar króna.

Augljós tilraun til að kaupa vinsældir
Gunnar Helgi Kristinsson prófessor. Mynd/GVA
„Þetta er ekkert annað en tiltölulega augljós tilraun til að kaupa sér vinsældir," segir Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við HÍ, um útgjöld ráðherra á síðustu vikunum fyrir kosningar, þegar þing er farið heim.

Hann segir þetta hafa verið gagnrýnt áður, meðal annars árið 2007 þegar útgjöldin hafi verið umtalsverð. Þá hafi þeir sem nú standa í því sama verið gagnrýnir. Gunnar Helgi vill koma böndum á þetta.

„Þetta er mjög óheppilegt. Það væri langeðlilegast að það væri reynt að koma einhverjum böndum á heimildir ráðherra til að gera svona hluti eftir að kosningabarátta er hafin. Kannski einhverja mánuði fyrir kosningar, eða eitthvað slíkt.“

Gunnar Helgi segir að í raun geti ráðherrar ekki skuldbundið ríkissjóð á þennan hátt, slíkt verði að gerast í fjárlögum eða með aukafjárveitingum sem eru háðar samþykkti Alþingis. „Það þarf auðvitað samþykki Alþingis þegar fjáraukalög eru lögð fram og auðvitað getur Alþingi þá strangt til tekið hafnað þessari fjárveitingu, þó það sé ekki hefð fyrir að gera það.“

Samþykkt eftir að þing fór heim24. apríl - 40 milljónir

Uppbygging í stækkuðu friðlandi í Þjórsárverum. Ríkisstjórnin samþykkir tillögu forsætisráðherra.

23. apríl - 3 milljónir

Stuðningur við hælisleitendur. Innanríkisráðherra.

23. apríl - 1,5 til 2,5 milljarðar

Viljayfirlýsing um aðgerðir vegna lánsveða. Katrín Júlíusdóttir, Steingrímur J. Sigfússon, Ögmundur Jónasson og Guðbjartur Hannesson.

23. apríl - 25 milljónir

Viðbótarframlag til lögreglu vegna rannsóknar á skipulagðri glæpastarfsemi. Innanríkisráðherra.

21. apríl - 240 milljónir

Styrkir til Landsbjargar vegna endurbóta á björgunarskipum. 30 milljónir

19. apríl - 20 milljónir

Samið við 18 fyrirtæki um markaðsátak fyrir saltfisk. Atvinnuvegaráðherra og utanríkisráðherra.

9. apríl - 250 milljónir

Átaksverkefni um sumarstörf fyrir allt að 650 námsmenn. Ríkisstjórnin samþykki að tillögu velferðarráðherra.

5. apríl - 1.260 milljónir

Íbúðalánasjóði veitt heimild til að lána Félagsstofnun stúdenta til byggingar námsmannaíbúða. Ríkisstjórnin samþykkir að tillögu velferðarráðherra.

5. apríl - 79 milljónir

Forgangsaðgerðir til að bregðast við neyðarástandi í kynferðisbrotum gegn börnum. Ríkisstjórnin samþykkir að tillögu forsætis-, velverðar- og innanríkisráðherra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×