"Trúi varla að hann sé að koma“ Brjánn Jónasson skrifar 26. mars 2013 06:00 Þóra Björg segir börnin yfir sig spennt Fréttablaðið/Vilhelm
Davíð Örn Bjarnason er laus úr farbanni í Tyrklandi og er væntanlegur heim á næstu dögum. Hann var handtekinn fyrir tæpum þremur vikum í Antalya í Tyrklandi sakaður um að hafa ætlað að smygla fornmun úr landi. „Ég trúi því varla að hann sé að koma heim," segir Þóra Björg Birgisdóttir, sambýliskona Davíðs. „Krakkarnir eru ótrúlega spenntir að hitta hann, þau eru búin að bíða svo lengi eftir því að hitta hann." Fyrirtaka var í máli Davíðs fyrir tyrkneskum dómstól seinnipart dags í gær. Dómarinn ákvað að leysa hann úr farbanni, en gerði honum að koma aftur til Tyrklands til að vera viðstaddur uppkvaðningu dómsins, segir Þóra. Hún segir daginn þó ekki hafa gengið áfallalaust fyrir sig hjá Davíð. Hann hafi gleymt að taka vegabréfið sitt með sér í dómsal, og þurft að sækja það í leigubíl. Hún segir það hafa reitt dómarann til reiði og hann hafi ákveðið að sekta Davíð um 700 evrur. Frá því hafi þó verið fallið, enda Davíð peningalítill og ekki átt möguleika á að staðgreiða sektina. Davíð og Þóra keyptu marmarastein í fríi í Tyrklandi sem reyndist vera fornmunur. Háar sektir eða fangelsisdómur getur legið við fornminjasmygli í Tyrklandi.
Mest lesið Sjö sakaðir um að nauðga samnemanda klukkustundum saman Erlent Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir Innlent Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Innlent Ekið á fimm ára barn á hjóli Innlent „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Innlent Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Innlent Segist hafa gefist upp á stjórnarmyndun í Svíþjóð Erlent Vilja formlega afsökun frá Selenskí Erlent Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir Innlent Fleiri fréttir Furðar sig á tali um taktík með gjaldahækkanir „Við erum ekki að mismuna eftir þjóðerni með þessum hætti“ Svindlaði ítrekað í sjálfsafgreiðslu og fékk dóm Harðari tónn en áður hafi verið sleginn Uppsagnir, undarleg taktík og umtöluð ræða Ekið á fimm ára barn á hjóli Mannasaur og hanskar um allar koppagrundir „Aðgerðaleysið og getuleysið er algjört hjá stjórnvöldum“ Farþegi handtekinn í Hollandi vegna skemmdarverka Skil næstu lægðar nálgast Tilkynnt um tvær líkamsárásir Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Sjá meira