Þríhnúkagígur: Opið bréf til Jóhönnu Sigurðardóttur Björn Guðmundsson skrifar 24. janúar 2013 06:00 Forsætisráðherra, Jóhanna Sigurðardóttir. Þú hefur ekki enn svarað erindum mínum frá 9. og 23. sept. 2012. Síðara bréfið hljóðaði svo: „Ágæta Jóhanna 9. september sendi ég þér tölvupóst varðandi áform um aðgengi að Þríhnúkagíg. E.t.v. hefur hann farið fram hjá þér í öllu annríkinu, allavega hefur mér ekki borist svar. Sama dag sendi ég Svandísi Svavarsdóttur póst um sama málefni. Hún svaraði mér strax og benti mér á að hafa samband við þig vegna þess að Þríhnúkagígur er innan þjóðlendu og því í þinni umsjá. Þetta vissi ég reyndar og hafði þess vegna þá þegar sent þér póstinn. Hafði líka nefnt þetta í grein í Fréttablaðinu 21/8, sem fjallaði um náttúruspjöll af völdum Þríhnúka ehf. við Þríhnúkagíg. Þríhnúkagígur er innan lögsögu Kópavogs en er jafnframt innan fólkvangs og þjóðlendu. Svo virðist sem bæjarstjórn Kópavogs sé reiðubúin að afhenda einkafyrirtækinu Þríhnúkum ehf. náttúruperluna Þríhnúkagíg til að hafa að féþúfu. Mér er það með öllu óskiljanlegt að menn geti hreinlega afhent einkaaðilum náttúruperlur landsins og látið vinna tjón á þeim. Getur hver sem er fengið í sína umsjá náttúruperlu úr þjóðlendu, unnið á henni spjöll og selt svo ferðamönnum aðgang til að verða sjálfur ríkur? Í þessu máli virðist þú, sem umsjáraðili þjóðlendna, vera síðasti öryggisventillinn til að vernda hagsmuni þjóðarinnar gegn óskiljanlegum ákvörðunum misviturra bæjarstjórnarmanna. Forsætisráðherra þarf að veita leyfi sitt fyrir fyrirhuguðum framkvæmdum í og við Þríhnúkagíg sem ég tel ekki vera neitt annað en stórkostleg landspjöll. Ég fæ ekki betur séð en að þér beri skylda til að kynna þér málið og taka afstöðu. Sjálfur hyggst ég skrifa meira um málið í Fréttablaðið. Ég veit að þú hefur margt á þinni könnu og að velferð þjóðarinnar er þér ofarlega í huga. Verndun Þríhnúkagígs og nágrennis hans snýst einmitt um velferð komandi kynslóða sem þarna eiga að geta notið útivistar á ósnortnu víðerni aðeins steinsnar frá höfuðborgarsvæðinu. Sem ósnortið víðerni er svæðið ómetanleg auðlind og hennar verður að gæta. Þú ert þar í lykilstöðu. Ég óska eftir svari frá þér. Með vinsamlegri kveðju, Björn Guðmundsson“ Þannig hljóðaði ítrekun mín.Truflandi þögn Nýlega sendi Skipulagsstofnun frá sér álit um mat á umhverfisáhrifum vegna fyrirhugaðra framkvæmda við Þríhnúkagíg. Einstaklingar, félagasamtök og stofnanir sendu inn athugasemdir til Skipulagsstofnunar áður en hún framkvæmdi matið. Í álitinu er vakin athygli á að ekki hafi borist athugasemd frá forsætisráðuneytinu. Í fyrra bréfi mínu stendur m.a. um þjóðlendur: „Er um að ræða landsvæði sem þjóðin fer með í heild sinni og eru sameiginleg auðlind þjóðarinnar sem forsætisráðherra hefur umsjá með…Kveða lögin á um að enginn megi hafa afnot þjóðlendu fyrir sjálfan sig, þar með talið að reisa þar mannvirki, gera jarðrask, nýta hlunnindi, vatns- og jarðhitaréttindi án leyfis. Til að nýta land og landsréttindi innan þjóðlendu þarf leyfi hlutaðeigandi sveitarstjórnar sem og forsætisráðuneytisins sé nýting heimiluð til lengri tíma en eins árs, sbr. 3. mgr. 3. gr. laganna.“ Þögn þín truflar mig af þremur ástæðum. Í fyrsta lagi geta það ekki talist góðir siðir að svara ekki málefnalegu og kurteislega orðuðu erindi. Þú ert fyrsti ráðherrann sem ekki svarar erindi frá mér. Í öðru lagi gæti þögn þín hugsanlega stafað af því að þú hyggist afhenda náttúruperluna Þríhnúkagíg þegjandi og hljóðalaust í hendur manna sem ætla að vinna á henni óafturkræf náttúruspjöll og hafa þegar valdið landspjöllum þar og í nágrenninu. Í þriðja lagi hef ég undir höndum leiðbeiningarit frá forsætisráðuneytinu um upplýsingalög í þágu almennings. Þar stendur: „Lög um upplýsingarétt um umhverfismál frá árinu 2006 byggja á tilskipun Evrópusambandsins sem er innleidd í EES-samninginn. Lögin veita rýmri aðgang að upplýsingum um umhverfismál en fólk gat fengið áður en þau voru sett. Þeim er ætlað að stuðla að sterkari vitund um málefni á umhverfissviði, frjálsum skoðanaskiptum og aukinni þátttöku almennings þegar verið er að móta ákvarðanir um umhverfismál”. Í lögunum kemur fram að erindum sem varða umhverfismál sé skylt að svara innan 60 daga. Þú vinnur að því að koma Íslandi í ESB og ættir því að ganga á undan með góðu fordæmi hvað varðar lög sem ættuð eru þaðan. Það að þú skulir ekki hafa svarað erindi mínu getur ekki talist í anda upplýsingalaga svo ekki sé fastar að orði kveðið. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Mest lesið Er sanngjarnt að hækka virðisaukaskatt á mat og gistingu til að láta erlenda ferðamenn borga meira? Þórir Garðarsson Skoðun Heiðmörk: Gaddavír og girðingar Auður Kjartansdóttir Skoðun „Ef hún hefði haft val, hefði konan mín þá kosið að láta heilabilunina hafa sinn gang?” Ingrid Kuhlman Skoðun Að vera eða ekki vera – hvað er raunverulegur árangur? Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,Inga Hlín Pálsdóttir Skoðun Réttlát leiðrétting veiðigjalda Elín Íris Fanndal Skoðun Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun Halldór 24.05.2025 Halldór Stéttarkerfi Halldóra Lillý Jóhannsdóttir Skoðun Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt? Einar G Harðarson Skoðun Daði Már týnir sjálfum sér Heiðrún Lind Marteinsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun „Ef hún hefði haft val, hefði konan mín þá kosið að láta heilabilunina hafa sinn gang?” Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Réttlát leiðrétting veiðigjalda Elín Íris Fanndal skrifar Skoðun Að vera eða ekki vera – hvað er raunverulegur árangur? Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,Inga Hlín Pálsdóttir skrifar Skoðun Er sanngjarnt að hækka virðisaukaskatt á mat og gistingu til að láta erlenda ferðamenn borga meira? Þórir Garðarsson skrifar Skoðun Heiðmörk: Gaddavír og girðingar Auður Kjartansdóttir skrifar Skoðun Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar Skoðun #blessmeta - önnur grein Guðrún Hrefna Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Hvers virði er lambakjöt? Hafliði Halldórsson skrifar Skoðun Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð Elín Íris Fanndal skrifar Skoðun Þjóðareign, trú og skattar Svanur Guðmundsson skrifar Skoðun Hamas og átökin við Ísrael – hvað er ekki sagt upphátt? Einar G Harðarson skrifar Skoðun Gjaldfrjálsar máltíðir fyrir leikskólabörn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Næstu sólarhringar á Gaza skipta sköpum Hlynur Már Vilhjálmsson skrifar Skoðun Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar Skoðun Huglæg réttlætiskennd og skattar á verðmætasköpun Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Loksins fær þyrlan heimili fyrir norðan Njáll Trausti Friðbertsson skrifar Skoðun Opið bréf til stjórnvalda Elín Ýr Arnar Hafdísardóttir skrifar Skoðun Við skuldum þeim að hlusta Ólafur Adolfsson skrifar Skoðun „Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv. Flosi Þorgeirsson skrifar Skoðun Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar Skoðun Alvarleg staða í umhverfi fréttamiðla Rósa Guðbjartsdóttir skrifar Skoðun Stéttarkerfi Halldóra Lillý Jóhannsdóttir skrifar Skoðun Stöðvum Hamas. Einungis þannig getum við stöðvað hryllinginn á Gaza BIrgir Finnsson skrifar Skoðun Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Æfingin skapar meistarann! Sigurjón Már Fox Gunnarsson skrifar Skoðun 140 sinnum líklegra að verða fyrir eldingu Sigurður G. Guðjónsson skrifar Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar Skoðun Traust í húfi Eyjólfur Ármannsson skrifar Skoðun Verðmætasköpun án virðingar Berglind Harpa Svavarsdóttir skrifar Sjá meira
Er sanngjarnt að hækka virðisaukaskatt á mat og gistingu til að láta erlenda ferðamenn borga meira? Þórir Garðarsson Skoðun
„Ef hún hefði haft val, hefði konan mín þá kosið að láta heilabilunina hafa sinn gang?” Ingrid Kuhlman Skoðun
Að vera eða ekki vera – hvað er raunverulegur árangur? Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,Inga Hlín Pálsdóttir Skoðun
Skoðun „Ef hún hefði haft val, hefði konan mín þá kosið að láta heilabilunina hafa sinn gang?” Ingrid Kuhlman skrifar
Skoðun Að vera eða ekki vera – hvað er raunverulegur árangur? Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,Inga Hlín Pálsdóttir skrifar
Skoðun Er sanngjarnt að hækka virðisaukaskatt á mat og gistingu til að láta erlenda ferðamenn borga meira? Þórir Garðarsson skrifar
Skoðun Tuttugu ár af röddum sem áður voru þaggaðar, og framtíðin er okkar Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar
Skoðun Lífið er eins og konfektkassi, þú veist aldrei hvernig mola þú færð Elín Íris Fanndal skrifar
Skoðun Hvernig gengur nýjum kennurum í grunnskólakennslu? Ingólfur Ásgeir Jóhannesson,Aðalheiður Anna Erlingsdóttir,Andri Rafn Ottesen,Maríanna Jónsdóttir Maríudóttir,Valgerður S. Bjarnadóttir skrifar
Skoðun „Litla stúlkan og ruddarnir“ - Hugleiðing um stöðu Íslands á alþj.vettv. Flosi Þorgeirsson skrifar
Skoðun Mikilvæg gagnrýni eða tilraun til valdayfirtöku í Sósíalistaflokknum? Ása Lind Finnbogadóttir skrifar
Skoðun Matvælaverð hefur nær þrefaldast frá stofnun Viðskiptaráðs! Sigríður Ingibjörg Ingadóttir skrifar
Skoðun Dagur líffræðilegrar fjölbreytni 2025 Rannveig Magnúsdóttir,Ole Sandberg,Ragnhildur Guðmundsdóttir,Rebecca Thompson,Skúli Skúlason,Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir skrifar
Skoðun Konum í afplánun fjölgar: Með flókin áföll á bakinu Tinna Eyberg Örlygsdóttir,Sigríður Ella Jónsdóttir skrifar
Er sanngjarnt að hækka virðisaukaskatt á mat og gistingu til að láta erlenda ferðamenn borga meira? Þórir Garðarsson Skoðun
„Ef hún hefði haft val, hefði konan mín þá kosið að láta heilabilunina hafa sinn gang?” Ingrid Kuhlman Skoðun
Að vera eða ekki vera – hvað er raunverulegur árangur? Ásta Kristín Sigurjónsdóttir,Inga Hlín Pálsdóttir Skoðun