Lagði flöskuna á hilluna átján ára Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 19. maí 2013 20:30 Gunnleifur og Hildur eru moldrík þegar kemur að börnum þeirra. Frá vinstri: Gunnleifur Orri, Arnar Bjarki, Signý María og Ester Ósk. Fréttablaðið/Valli
Líf markvarðarins Gunnleifs Gunnleifssonar, sem allir þekkja sem Gulla, hefur verið kaflaskipt svo ekki sé fastar að orði kveðið. Íþróttir hafa verið rauði þráðurinn og haldreipi landsliðsmarkvarðarins sem á dögunum fagnaði því að nítján ár eru liðin frá því að tappinn var settur í flöskuna. Gulli skiptir ævi sinni í fjóra kafla eftir þremur lykilaugnablikum á árunum 38. „Fótboltinn gerði mig að því sem ég er í dag,“ segir Gulli sem bjó í Stykkishólmi til fimm ára aldurs þegar hann flutti með foreldrum sínum og tveimur eldri bræðrum í Kópavoginn. Gunnleifur byrjaði að æfa fótbolta með Íþróttafélagi Kópavogs sex eða sjö ára gamall og valdi strax stöðu markmanns. „Það var gaman að vera öðruvísi en allir hinir. Vera í skemmtilegum búningum og svona,“ segir Gulli. Honum gekk vel í yngri flokkum, var valinn besti markvörðurinn á Tommamótinu í Vestmannaeyjum 1985, varð Íslandsmeistari í handbolta með HK og íþróttamaður Kópavogs tólf ára og yngri. Líklega eru fáir sem vita af því þegar hann laumaði sér með vini sínum í Fram í 5. flokki í fótbolta. Þá spilaði hann sem framherji en þjálfarinn var enginn annar en Gylfi Þór Orrason, einn besti dómari sem Ísland hefur alið. Fyrirliðinn Gulli fer fyrir fagnaðarlátum FH-inga sumarið 2012.Fréttablaðið/Anton „Hann hefur sagt að ég hefði orðið betri senter en markvörður,“ segir Gulli sem raðaði inn mörkunum í bláum búningi Safamýrarliðsins þetta sumar. Árið 1991 var ÍK úrskurðað gjaldþrota þannig að Gulli, þá 17 ára, söðlaði um og spilaði með FH sumarið 1992. Hann segist hafa verið kominn í mikið rugl á þeim tíma. „Ég mætti í slæmu ástandi í leik með FH og hætti í fótbolta eftir það.“ Setti tappann í flöskuna 18 ára gamall „Ég var ekkert í slæmum félagsskap og flestir af strákunum sem ég ólst upp með eru enn góðir vinir mínir í dag,“ segir Gulli um lífsmáta sinn á táningsárum. „Við skemmtum okkur mikið og prófuðum mikið. Lifðum lífinu, ef svo má að orði komast, og vorum kærulausir. Ég fór bara alltof langt niður og réði ekki við þetta.“ Hann bendir á að alkóhólismi hafi verið fjölskylduvandamál. „Ég var kominn mjög langt niður og ef ég hefði ekki hætt þá hefði farið mjög illa.“ Það var 8. maí 1994 sem markvörðurinn litríki sagði skilið við flöskuna. „Ég lokaði mig af frá öllu í einn mánuð inni hjá mömmu þar sem við bjuggum tvö. Ég reyndi að finna sjálfan mig og byrja á núlli,“ segir Gulli. Um fyrsta tímapunktinn var að ræða af þremur sem hann skiptir ævi sinni upp eftir. Hann segist ekki hafa farið í meðferð en notið stuðnings bróður síns sem var meðferðarfulltrúi. Gulli telur að hann hefði þó haft gott af því að fara í hefðbundið meðferðarferli eftir á að hyggja. Gulli með Íslandsmeistarabikarinn 2012 sem FH-ingar unnu með miklum yfirburðum.Fréttablaðið/Daníel Þótt hann hafi náð grjóthörðum tökum á neyslu sinni hafði hann ekki jafngott tak á lífi sínu. Gulli segir það hafa hjálpað mikið að geta leitað til HK og hent sér af krafti í handboltann þegar fótboltaskórnir fóru á hilluna sumarið 1992. „HK og Þorbergur Aðalsteinsson þjálfari stóðu þétt við bakið á mér,“ segir Gulli sem var hörkuskytta hjá Kópavogsfélaginu. Hann er þó ekki í neinum vafa um að fótboltinn hafi hentað sér betur. „Ég nennti ekki að spila vörn og átti kannski ekki mikla framtíð þrátt fyrir að vera ágætis skytta,“ segir Gulli hógvær. Hann tók fram hanskana með HK í sumarlok 1994 og hitti svo fyrir vin sinn úr handboltanum, Róbert Haraldsson, hjá KVA frá Reyðarfirði í 3. deildinni sumarið 1996. „Það gekk mjög vel en mér leið ekki vel þar. Ég er svo mikið borgarbarn og var óþroskaður,“ segir Gulli sem gekk til liðs við HK fyrir sumarið 1997. Liðið vann 2. deildina og Gulli segist hafa verið farinn að taka fótboltann alvarlega. Áhugi frá Manchester United Í ársbyrjun 1998 kom símtal úr Vesturbænum. Atli Eðvaldsson og Guðmundur Hreiðarsson markvarðaþjálfari voru teknir við KR og vildu fá Gunnleif sem varamarkvörð fyrir Kristján Finnbogason. „Ég eiginlega stökk á það enda KR stærsta félagið á landinu,“ segir Gunnleifur og bætir við að Guðmundur eigi stóran þátt í hvernig hann hafi þróast sem markvörður. Hann segist vel hafa vitað að Kristján væri aðalmarkvörður KR en lítið spáð í því. „Ég var hrokafullur á þessum tíma og taldi að ekkert myndi stoppa mig,“ segir Gulli. Gunnleifur hefur varið mark Íslands með miklum sóma undanfarin ár.Fréttablaðið/Vilhelm Um mitt sumar fékk Gulli tækifærið sem hann nýtti heldur betur. Hann hélt markinu hreinu í 641 mínútu og KR var hársbreidd frá því að landa Íslandsmeistaratitlinum. Frammistaða Gulla í markinu spurðist út og fór hann til Wimbledon á reynslu. Þá greindu fjölmiðlar frá því að Sir Alex Ferguson, knattspyrnustjóri Manchester United, hefði augastað á Gulla. „Mér fannst þetta svakafínt og talaði um þetta um allan bæ. Þetta var skemmtilegt og mikið hrós,“ segir Gulli. „En það hafa verið hæðir og lægðir í þessu,“ segir Gulli sem var kominn á bekkinn sumarið 1999 þegar KR vann langþráðan Íslandsmeistaratitil og vann einnig bikarinn. „Það fannst mér mjög erfitt og ákvað að reyna fyrir mér annars staðar.“ Svo fór að Gulli samdi við Keflavík og lék með liðinu næstu tvö tímabil. Konan sem bjargaði Gulla Þótt gengið á knattspyrnuvellinum suður með sjó hafi verið með ágætum var einkalífið hjá markverðinum í molum. Hann segist hafa verið að blekkja sjálfan sig þegar hann flutti suður. Hann hafi verið kærulaus, viðhorf sitt hafi ekki verið rétt og hann hafi ekki borið ábyrgð á neinu. „Mér fannst bara tímaspursmál þar til ég færi út í atvinnumennsku og yrði milljónamæringur,“ segir Gulli. Athyglin sumarið 1998 hafi stigið honum til höfuðs og hann hafi verið kominn í mjög slæm mál fjárhagslega séð. Hann spilaði sína fyrstu landsleiki á þessum tíma, kynntist vinum fyrir lífstíð í Keflavík en leið ekki vel. Hann sagði skilið við Keflavík haustið 2001 og hélt í heimahagana í HK. „Ég var ekki á góðum stað þegar ég hætti í Keflavík og ég og þáverandi eiginkona mín skildum,“ segir Gulli. Í kjölfarið fór hann að reikna dæmið upp á nýtt. Hann fór að vinna hjá HK ásamt því að spila með félaginu og kynntist núverandi eiginkonu sinni, Hildi Einarsdóttur, sumarið 2002. Um annan tímapunktinn var að ræða. Gunnleifur handsalar þriggja ára samning við Breiðablik.Fréttablaðið/Anton „Eftir að við kynntumst fór ég að hugsa hlutina upp á nýtt,“ segir Gulli og er greinlegt að Hildur, sem spilaði um tíma sem framherji með Breiðabliki, hefur verið mikill áhrifavaldur í lífi Gunnleifs. „Hún er mín helsta fyrirmynd í lífinu,“ segir Gulli. „Hildur er mun yngri en ég en algjörlega mín stærsta og besta fyrirmynd,“ segir Gulli en tíu ára aldursmunur er á þeim. Þau gengu í það heilaga árið 2009 og eiga saman þrjú börn sem fæddust með tveggja ára millibili árin 2006, 2008 og 2010. Auk þess á Gulli dóttur úr fyrra sambandi sem fædd er árið 2001. Á sökina á ríg Breiðabliks og HK Gunnleifur stendur í dag á milli stanganna hjá Breiðabliki, erkifjendum HK-inga. Það vakti eðlilega mikla athygli þegar hann gekk í raðir Blika síðastliðið haust en hann segist umfram allt halda með einu liði, fjölskyldu sinni. Þriggja ára samningur var í boði og ekki hafi verið erfitt að ganga í raðir Blika. „Ég á sennilega mesta sök á þessum ríg HK og Breiðabliks,“ segir Gulli og hlær. Hann segir sig og félaga sína meðvitað hafa eflt ríginn á milli HK og Breiðabliks þegar hann sneri aftur í HK eftir árin tvö í Keflavík. „Við vildum efla hjartað og sálina í HK. Auka félagskenndina og ná okkur þannig á flug,“ segir Gulli. Óhætt er að segja að HK hafi farið á flug því fimm árum síðar lék liðið í deild þeirra bestu í fyrsta skipti. Þrátt fyrir áhuga annarra félaga hélt Gulli tryggð við sitt félag. Í febrúar 2009 stóð Gulla til boða að spila með liði FC Vaduz í svissnesku deildinni en liðið er staðsett í Liechtenstein. „Það var frábært í Liechtenstein,“ segir Gulli um hálfa árið sem hann dvaldi í dvergríkinu ásamt fjölskyldu sinni. Guðmundur Steinarsson, fyrrverandi liðsfélagi úr Keflavík, mælti með honum og auk þess lék Skagamaðurinn Stefán Þórðarson með liðinu. „Við skelltum okkur á þýskunámskeið og vorum orðnir þokkalega góðir,“ segir Gulli aðspurður hvernig gengið hafi að tala þýskuna. Hann spilaði þó minna en hann reiknaði með og ber knattspyrnugoðsögninni þýsku, Pierre Littbarski, ekki vel söguna. „Hann var ekki starfi sínu vaxinn sem þjálfari eins og hann var góður leikmaður.“ Gunnleifur þekkir netmöskvana á Kópavogsvelli betur en flestir.Fréttablaðið/Valli Gulli spilaði síðustu leikina með HK í 1. deildinni um sumarið og skömmu síðar kom kallið frá FH. Hann varð bikarmeistari með FH sumarið 2010 og fyrirliði þegar liðið varð Íslandsmeistari í fyrra. „Það var risastórt augnablik fyrir mig. Að vera fyrirliði besta liðs landsins og taka á móti titlinum sem við unnum með þessum yfirburðum.“ Gulla bauðst að vera áfram í eitt ár hjá FH en var í leit að lengri samningi sem hann fékk hjá Breiðabliki. Hætti að blóta Foreldrar Gulla létust vegna veikinda fyrir aldur fram með mánaðarmillibili árið 2007. „Það var síðasti tímapunkturinn enn sem komið er,“ segir Gulli. Þá hafi hann farið að velta fyrir sér hvað skipti raunverulegu máli í lífinu. Hann hafi farið að rækta sjálfan sig og tekið nokkrar ákvarðanir um líf sitt. „Ég reyni að vera almennilegur við fólk, góð manneskja, blóta ekki og vil láta gott af mér leiða úti í samfélaginu,“ segir Gulli. Hann er stöðugt að minna sig á þessa hluti en telur sig betri mann í dag. Það hjálpi honum líka á knattspyrnuvellinum. Spurður hvort ekki hafi verið erfitt að hætta að blóta, í umhverfi knattspyrnumanna sem láta ýmislegt flakka hvort sem er á æfingum eða leikjum, segist hann eiga auðvelt með að standa við ákvarðanir sínar. Hann tekur sem dæmi uppáhaldslið sitt Manchester City sem hann hefur haldið með í þrjá áratugi. „Áður fyrr lögðust heilu helgarnar undir pirring og vonbrigði ef City tapaði,“ segir Gulli sem tók þá ákvörðun fyrir nokkrum árum að hætta að svekkja sig á þessu. Hann myndi fagna ef liðið ynni en „ef þeir tapa þá tapa þeir bara“. „Ég ætla ekki að láta það bitna á fjölskyldu minni, vinum eða öðru fólki í kringum mig ef fótboltaliðið mitt tapar.“ Því er þó fjarri að áhugi hans á íþróttinni fögru sé minni fyrir vikið. „Ég og þú, fótboltamenn og fjölmiðlamenn, við lifum fyrir fótboltann. Við hugsum um hann, tölum um hann, horfum á hann og spilum hann. Ég sé ekki eftir neinu á fótboltaferlinum og það gerði mig að því sem ég er í dag. Ég er ánægður með mig í dag.“
Besta deild karla Mest lesið Var ekki rekin úr Ólympíuþorpinu fyrir óviðeigandi hegðun: Ég fór sjálf Sport Bara þrír sem fá að heimsækja Michael Schumacher Formúla 1 Vildi láta reka Heimi í fyrra en eys nú yfir hann lofi Fótbolti Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn Aron og Bjarki báðir út úr hóp í úrslitaleiknum Handbolti Áhyggjufullir eftir tap gegn „algjöru meðalliði“ Íslands Fótbolti Mbappe í aðalhlutverki þegar Frakkar tóku bronsið Fótbolti Tók við verðlaunum merktur Aroni sem var veikur heima Handbolti Landsliðskonan reddaði málunum fyrir leik á Kópavogsvelli Íslenski boltinn Heimi fannst lítið mál að svara glerhúsagagnrýni gamla landsliðsþjálfarans Fótbolti Fleiri fréttir Landsliðskonan reddaði málunum fyrir leik á Kópavogsvelli Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Sjáðu frábært liðsmark FH, markaveislu Blika og Þrótt halda sig á toppnum Leik lokið: Þróttur - Þór/KA 2-0 | Þróttur með þriggja stiga forskot á toppnum Uppgjör: Fram - Stjarnan 3-1 | Framarar sannfærandi Uppgjörið: Breiðablik-FHL 6-0 | Sex Blikakonur á skotskónum Uppgjörið: Víkingur-FH 1-4 | Eintóm hamingja hjá FH-konum í Víkinni Gummi Ben fékk gullmerki Þórs afhent á Spáni Blómstra á meðan Valskonur eru sögulega slakar Framlengja við markahæsta manninn sinn Uppgjörið: Tindastóll-Valur 2-2 | Bið Valskvenna lengist enn Brynjar Björn í þjálfarateymi Víkings Caroline kveður Þrótt og heldur heim til Bandaríkjanna Sjáðu fimm flottustu mörk maímánaðar Leiknir byrjar vel undir stjórn Gústa Gylfa og ÍR-ingar á toppinn Andri Már fékk tískuráð á stórleiknum á Kópavogsvelli Völdu þann leikmann í Bestu deildinni sem er líkastur þeim sjálfum Ágúst Gylfason snýr aftur í boltann og tekur við Leikni „Þá verður þú bara að taka höggin“ Bönnin þegar Besta hefst aftur: Víkingar missa lykilmann og Vestri án tveggja Pétur Rúnar á bekknum hjá Stólunum í 3. deildinni Ummæli Davíðs Smára ekki á borði aganefndar Sýndu reiði Davíðs skilning en fannst hann fara yfir strikið „Okkar markmið hefur alltaf verið að vera í toppbaráttunni“ Umfjöllun: Valur-Fram 2-1 | Níu stig í Valshúsi á níu dögum Sjáðu miðjumark Sverris, tvennu Tobiasar, rautt á Alex og Atla stela sigri Dagskráin í dag: Litrík umferð gerð upp í Stúkunni „Þetta mark átti ekki að telja“ Leik lokið: Breiðablik - Víkingur 3-1 | Allt í hnút á toppnum „Erum með sjö stigum meira en á sama tíma í fyrra“ Sjá meira
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn
Vilja sjá Þórólf hugsa líka um konurnar: „Gæti gert þetta að ríkasta liði landsins“ Íslenski boltinn