Gefur pakistönskum stúlkum kjark til að læra Þórhildur Þorkelsdóttir skrifar 12. júlí 2013 20:34 Malala Yousafza ávarpaði allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í dag.
Baráttukonan unga Malala Yousafza ávarpaði í dag allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna. Hún hefur barist fyrir rétti stúlkna til náms í Pakistan, en í október gerði talibani tilraun til að ráða hana af dögum með því að skjóta hana í höfuðið þegar hún gekk út úr skólarútu í Pakistan. Hún hefur dvalið í Bretlandi síðan og hóf skólagöngu í Birmingham í maí. Malala, sem er sextán ára, hefur haldið úti stafrænni dagbók síðan hún var ellefu ára þar sem hún tjáir sig um baráttuna fyrir skólagöngu stúlkna í landi þar sem talibanar ráða ríkjum. Barátta Malölu hefur vakið verðskuldaða athygli um gjörvalla heimsbyggðina,en The Guardian birti í kvöld grein þar sem talað er um að hugrekki hennar hafi veitt öðrum pakistönskum stúlkum kjark til að sækjast eftir menntun. Nokkrar þeirra eru jafnvel byrjaðar að blogga um baráttu sína líkt og Malala.Frá ráðstefnunni í dag, Ban Ki - moon fyrir miðju og Malala við hlið hans.Mun fleiri stúlkur stunda nú nám í Swat-dalnum, en þar gekk Malala í skóla áður en tilræðið átti sér stað.Afrah Qureshi. enskukennari í afskekktu og íhaldssömu héraði í Pakistan, hóf að lesa dagbók Malölu fyrir nemendur sína eftir að mál hennar vakti athygli. Qureshi hvatti svo stúlkurnar til að skrifa niður eigin hugsanir um málefnið. „Þessar stúlkur hafa svo ótrúlega mikinn áhuga á að læra, þær eyða jafnvel frímínútunum í skólastofunni. Það er mikilvægt að Sameinuðu þjóðirnar vinni náið með skólayfirvöldum og foreldrum til að tryggja að stúlkurnar fái bestu mögulegu menntun. Þá eru þeim allir vegir færir,“ sagði Quershi í viðtali við The Guardian. Margar þessara stúlkna eiga litla von um frekari menntun en grunnskólapróf. Sumar þeirra eru teknar úr skóla fjórtán ára gamlar , eða yngri, til að sinna skyldum sínum og ganga í hjónaband. Í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna kemur fram að 57 milljónir barna um allan heim fái ekki að fara í skóla, þar af fimm milljónir í Pakistan. Aðeins eru færri börn sem ganga í skóla í Nígeríu, en þar fer talan upp í tíu milljónir. Flest þeirra eru stúlkur.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Nafn mannsins sem lést í fallhlífastökki í Danmörku Innlent Fleiri fréttir Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Sjá meira