Víkingar kjöldregnir á Selfossi | Dramatík í Grindavík Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 25. júlí 2013 21:41 Ingólfur Þórarinsson skoraði gegn sínum gömlu félögum í Víkingi í kvöld. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Selfoss vann 6-1 sigur á toppliði Víkings í 13. umferð 1. deild karla á heimavelli í kvöld. Grindavík og Haukar skildu jöfn 1-1 í toppslag. Víkingar sáu aldrei til sólar á Selfossvelli í kvöld. Heimamenn skoruðu þrjú mörk í fyrri hálfleik og leiddu að honum loknum 3-0. Áfram hélt stórskotahríð Selfyssinga í síðari hálfleiknum og lokatölurnar hreint ótrúlegar, 6-1. Ingólfur Þórarinsson, Javier Lacalle, Ingi Rafn Ingibergsson, Kristján Freyr Óðinsson og Svavar Berg Jóhannsson skoruðu mörk heimamanna. Mark Víkings skoraði Pape Mamadou Faye úr vítaspyrnu. Dramatíkin var mikil í Grindavík þar sem markalaust var þar til komið var í uppbótartíma. Fyrirgjöf Juraj Grizelj snemma í viðbótartíma fór framhjá öllum pakkanum í vítateig gestanna og lak af stönginni og inn. Flest benti í heimasigur Grindvíkinga sem hefði komið þeim í toppsætið en enn var tími fyrir gestina. Andri Steinn Birgisson skoraði stórkostlegt mark með skoti utan teigs á fjórðu mínútu viðbótartímans. Magnús Björgvinsson fékk tækifæri til að stela sigrinum fyrir Grindvíkinga sekúndum síðar en Sigmar Ingi Sigurðarson varði skot hans vel. Víkingur er enn í toppsætinu með 25 þrátt fyrir niðurlæginguna á Selfossi. Grindavík er í öðru sæti með 24 stig og Haukar í því þriðja með 22 stig. Selfyssingar eru í 7. sæti með 17 stig. Önnur lið í deildinni eiga leik til góða. Upplýsingar um markaskorara eru fengnar frá Fótbolti.net.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Enski boltinn Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Íslenski boltinn Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Handbolti Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Enski boltinn „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Íslenski boltinn Mun aldrei jafna sig á tapinu gegn Íslandi á EM: „Var mér mjög erfitt“ Fótbolti Fleiri fréttir „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Besta-spáin 2026: Mæta með læti Sjá meira