Dansað gegn kynbundnu ofbeldi í Hörpu 12. febrúar 2013 15:17
UN Women á Íslandi, V-dagssamtökin og Lunch Beat hvetja vinkonur, vinir, mömmur, pabba, bræður og systur að mæta í hádeginu þann 14. febrúar í Hörpu þegar einn milljarður kvenna, karla og barna um allan heim munu dansa til að sýna konum og stúlkum sem hafa upplifað hafa ofbeldi vegna kyns síns stuðning og krefjast þess að kynbundið ofbeldi heyri sögunni til. Í tilkynningu frá UN Women kemur fram að þó íbúar á Íslandi séu kannski ekki stór hluti af milljarði, þá getur almenningur hér á landi haft áhrif. „Tökum þátt í því að láta jörðina hristast undan samtakamætti okkar," segir í tilkynningunni en tilgangurinn er sá að fá milljarð manna til þess að dansa og þannig stuðla að breyttri veröld þar sem ofbeldi gegn konum þrífst ekki. Það er sjónvarpskonan Margrét Erla Maack sem mun opna viðburðinn og Lunch Beat teymið mun sjá til þess að draga fram það besta í fólki ásamt plötusnúðnum Margeiri, sem mun sjá til þess að dansinn duni. Aðgangur er ókeypis þökk sér tónlistarhátíðinni Sónar. Hægt verður að leggja frítt í bílastæði Hörpu á meðan dansgleðin stendur yfir. Hér á eftir er svo yfirlýsing frá UN Women: Við neitum að búa í heimi þar sem: · Nauðgunarmenning er normið · Þar sem konum er kennt að hafa varann á sér þegar þær eru einar úti · Þar sem ungar stúlkur eru þvingaðar og seldar í hjónabönd · Þar sem konur eru útskúfaðar úr samfélaginu ef brotið er á þeim kynferðislega · Þar sem konur eru myrtar ef þær eru taldar hafa kastað rýrð á heiður fjölskyldunnar · Þar sem konum er refsað fyrir að kæra kynferðisbrot · Þar sem refsileysi ríkir þegar konur eru niðurlægðar í netheimum Sýnum samstöðum, dönsum af gleði og krafti fyrir mannréttindum kvenna, fyrir heimi þar sem konur og stúlkur þurfa ekki að líða ofbeldi vegna kyns síns. Hér fyrir ofan má sjá myndband sem hefur verið gert í tilefni dagsins.
Mest lesið Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur Innlent „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ Innlent „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Innlent Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Innlent Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Erlent Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Erlent Fækkar lögregluembættum Innlent Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Innlent „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Innlent Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Erlent Fleiri fréttir Gert ráð fyrir atkvæðagreiðslu um aðildarviðræður í dag Gular viðvaranir og snjókoma næsta sólarhringinn Enn tekist á um ESB í þingsal og verðbólgan hjaðnar lítið Gylfi verður bæjarstjóri á Ísafirði „Stattu vörð um fjallkonuna fríðu, láttu ekki nauðga henni“ Sendiráðsstarfsmaður fluttur heim öryggisins vegna Fækkar lögregluembættum Líta stöðuna í Varmá mjög alvarlegum augum Fagnar því að allir þingmenn fái að kynna sér ESB-gögnin Steinum kastað í bifreiðar og rúða brotin í skóla Hjólhýsabyggð færist í Gufunes þrátt fyrir aðfinnslur „Í einu tilviki var talað um nauðgunarleik“ „Ég varð bara reiður, endalaust reiður“ Aukaþingfundur boðaður: Miðflokksmenn fá að halda áfram í fyrramálið „Höfum þegar tekið upp tólið og heyrt í fjármálaráðherra“ Konan komin í leitirnar Arnarnesvegi ætlað að stytta bílaraðir Meirihlutanum liggur á í kvöld en ekki Miðflokknum „Viðreisnarbottar“ skýrt dæmi um erlend áhrif Lögregla kölluð til þegar slegist var um bílastæði Boða róttækar breytingar: Ari íhugar tilboð sem Líf vildi fá Hjónasjálfa, gleði og faðmlög í Viðey Nýr borgarstjóri mætir í beina útsendingu Landsnet lagði landeigendur í Hæstarétti Býr sig undir það versta en vonar það besta Fótbolti.net legið niðri í á annan sólarhring Krefjast þess að bankarnir dragi hækkanir til baka Hallgrímur kom í þáttinn sem mótvægi við oflof um Davíð Breytingum fórnað fyrir starfsfrið: „Friðjónslínan“ hafi ráðið för Bókstafir verði að tölustöfum Sjá meira